Fréttatíminn - 08.07.2011, Page 52
Sími 552 4040 | www.utilegukortid.is | utilegukortid@utilegukortid.is
42 Campsites
around Iceland
for Only €119
AFL - Starfsgreinasamband
Aldan stéttarfélag
Bandalag Háskólamanna
Blaðamannafélag Íslands
BRÚ - Félag stjórnenda
Drífandi stéttarfélag
Efling stéttarfélag
Eining - Iðja
Fagfélagið
Félag flugmálastarfsmanna ríkisins
Félag iðn- og tæknigreina
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Félag íslenskra hljómlistarmanna
Félag málmiðnaðarmanna á Akureyri
Félag opinberra starfsmanna á Vestfjörðum
Félag starfsmanna stjórnarráðsins
Félag tanntækna og aðstoðarfólks tannlækna
Félag verslunar- og skrifstofufólks, Akureyri og nágrenni
Foss - Félag opinberra starfsmanna á Suðurlandi
Hlíf
Kennarasamband Íslands
Kjölur
Landssamband lögreglumanna
Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna
Lyfjafræðingafélag Íslands
Matvís
Póstmannafélag Íslands
Rafiðnaðarsamband Íslands
Samstaða
Útilegukortið býður þér og
fjölskyldunni þinni nær
ótakmarkaðan aðgang að
42 tjaldsvæðum um allt land
fyrir aðeins 14.900 krónur.
SFR - Stéttarfélag í almannaþjónustu
Sjómannafélag Eyjafjarðar
Sjómannafélagið Jötunn
Sjúkraliðafélag Íslands
Skjöldur - Starfsmannafélag Arion banka
Starfsmannafélag Dala- og Snæfellssýslu
Starfsmannafélag Fjarðarbyggðar
Starfsmannafélag Garðabæjar
Starfsmannafélag Hafnarfjarðar
Starfsmannafélag ÍAV
Starfsmannafélag Kópavogs
Starfsmannafélag Mosfellsbæjar
Starfsmannafélag N1
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar
Starfsmannafélag Suðurnesja
Stéttarfélag Vesturlands
Verkalýðs- og sjómannafélag Sandgerðis
Verkalýðs- og sjómannafélag Bolungarvíkur
Verkalýðsfélag Akraness
Verkalýðsfélag Snæfellinga
Verkalýðsfélag Suðurlands
Verkalýðsfélag Vestfirðinga
Verkstjórafélag Akureyrar
Verkstjórafélag Austurlands
Verkstjórafélag Suðurnesja
VM - Félag vélstjóra og málmtæknimanna
VR
Vörður - Félag stjórnenda á Suðurlandi
Þjónustuskrifstofa Stéttarfélaga á Suðurlandi
Eftirfarandi stéttar- starfsmanna- og verkalýðsfélög niðurgreiða að hluta eða
að miklu leyti Útilegukortið til sinna félagsmanna. Kannaðu málið hjá þínu félagi.
Kortið fæst hjá Íslandspósti eða í
verslun Víkurverks Víkurhvarfi 6.
Útilegukortið - ferðafélaginn þinn
Símtól fyrir
farsíma
Sífellt fleiri rannsóknir benda til
þess að geislun frá farsímum geti
mögulega verið varasöm heilsu
fólks. Til að hafa allan varann á er
því farsíma-
notendum ein-
dregið ráðlagt
að nota hand-
frjálsan búnað.
Sérstaklega
þeim málglöðu.
Slíkur búnaður
mun stórlega draga úr áhrifum
hinna háskalegu geisla á heila-
starfsemina.
Símtólið frá bandaríska fyrir-
tækinu Yubz er svo sannarlega
ekki handfrjálst en að sögn fram-
leiðandans dregur það úr geislun
farsíma um 96 til 100 prósent.
Notagildið er sem sagt afbragð
fyrir utan augljós töffheitin við
tólið. Sjá nánar á http://www.
yubz.com
Skartgripahönn-
uður fyrir slysni
Elsa stEinunn lyfjafræðingur sEm hannar hringa í hjávErkum
Elsa Steinunn Halldórsdóttir lyfjafræðingur sækir innblástur
í náttúruna til skartgripagerðar og leitar þar einnig að réttu
efnunum til að meðhöndla Alzheimers-sjúkdóminn.
Elsa Steinunn
Notar náttúrunöfn
á hringana sem
hún hannar, þar á
meðal spörð, gára
og fjöru.
Ljósmynd/Hari
l eirinn er svo skemmtilegur og mikið hægt að leika sér með hann bæði í litum og formum,“ segir Elsa Steinunn Halldórs-
dóttir lyfjafræðingur sem hefur stofnað fyrirtækið
Elsa Design utan um eigin hönnun á hringum og
eyrnalokkum úr leir. „Þetta byrjaði bara sem skart
fyrir sjálfa mig, vini og vandamenn en svo leiddi
eitt af öðru. Nú eru tvær verslanir í Danmörku að
selja hringana og ein í Svíþjóð auk verslana hér á
Íslandi.“
Elsa hóf skartgripagerðina óvænt fyrir tveimur
árum. „Ég var í sakleysi mínu að sauma föt á stelp-
una mína og vantaði tölur á treyju sem ég var að
sauma. Ég ákvað því að leira mínar eigin tölur og
svo þróaðist þetta út í það að ég fór að búa til skart
og hanna mín eigin form. Á sama tíma var leirinn
farinn að njóta aukinna vinsælda í skartgripagerð
hér á landi. Þetta vatt því upp á sig og nú get ég
ekki hætt.“
Elsa Steinunn fékk hönnunarvernd á átta
formum hjá einkaleyfisstofu fyrir um ári: „Ég sæki
innblástur í náttúruna; er eiginlega orðin heltekin
af náttúrunni og sæki til dæmis öll heitin á hring-
unum þangað,“ en hringarnir bera nöfnin spörður,
gári og fjara.
„Ég er að ljúka doktorsnámi í lyfja- og efnafræði
náttúrunnar á næsta ári og nú er ég að rannsaka
ákveðna plöntutegund sem heitir lyngjafni með það
fyrir augum að finna í henni efni sem getur aðstoð-
að okkur við meðhöndlun á Alzheimers-sjúkdómn-
um.“ Að sögn Elsu er nú þegar verið að nota efni úr
plöntum sem eru mjög skyld lyngjafna í lyf gegn
Alzheimers-sjúkdómnum víða um heim. „Efnin í
þessari plöntu eru talin hafa mikinn lækningamátt.
Það eru ekki allir sem vita
það að um þriðjungur allra
lyfja sem eru á markaði
í dag eiga uppruna sinn
í náttúrunni,“ segir Elsa
og bætir við að framtíðar-
draumurinn sé að skapa
og vera út í náttúrunni,
hvort heldur sem er til að
fá innblástur til að búa til
skart eða finna efni í lyf til
að lækna sjúkdóma.
Elsa Design er til sölu í
Bútik, Minju á Skólavörðu-
stíg, Islandia og Hrím á
Akureyri.
Lj
ós
m
yn
di
r/
M
ar
ía
R
ún
ar
sd
ót
ti
r
48 dægurmál Helgin 8.-10. júlí 2011