Fréttatíminn


Fréttatíminn - 18.02.2011, Page 2

Fréttatíminn - 18.02.2011, Page 2
Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@ frettatiminn.is www.noatun.is Fermingarveislur Nánari upplýsingar á noatun.is eða í næstu Nóatúns verslun. 1990 kr./mann verð frá aðeins 22 milljarða skuld og engar eignir Það er ekki feitan gölt að flá í þrotabúi Fjárfestingarfélags- ins Máttar. Jóhannes Ásgeirsson, bústjóri þrotabús- ins, segir í samtali við Fréttatímann að kröfur nemi um 22 milljörðum króna. „Það er hins vegar fljót- gert að telja upp eignirnar – þær eru engar,“ segir Jóhannes. Máttur var í eigu Milestone, félags bræðranna Karls og Steingríms Werners- sona, og félaga í eigu bræðranna Einars og Benedikts Sveinssona. Helstu fjárfesting- ar félagsins voru í Icelandair og BNT, eign- arhaldsfélagi olíurisans N1. Íslandsbanki er langstærsti kröfuhafi búsins en bankinn hefur þegar yfirtekið eignir félagsins í tveimur fyrr- nefndum félögum. -óhþ  EndurgrEiðslur Þrotabú landsbankans Endurgreiðslur á Icesave gætu hafist í haust Forgangskröfur þurfa að vera klárar áður en farið verður að borga úr búi Landsbankans Þrotabú Landsbankans mun ekki greiða krónu úr búinu fyrr en dómstólar hafa úrskurðað um hvaða kröfur teljast til for- gangskrafna. Stærsta bitbeinið sem tekist er á um í þeim efn- um er svokölluð heildsöluinn- lán en það form notuðust erlend fyrirtæki og félagasamtök við í viðskiptum sínum við bank- ann. Slitastjórn Landsbankans telur að innlánin séu forgangs- kröfur en almennir kröfuhafar telja svo ekki vera og eru nú í gangi fjölmörg dómsmál þess efnis í héraðsdómi. Ef heild- söluinnlánin verða úrskurðuð sem almennar kröfur lækka forgangskröfur í bú bankans um tæplega 150 milljarða. Sam- kvæmt slitastjórn bankans eru dómsmálin komin langt á veg og vonast menn eftir niður- stöðu á næstu vikum. Þá kem- ur til kasta Hæstaréttar og er vonast til að úrskurður þar liggi fyrir áður en rétturinn fer í sumarfrí. Þá fyrst verður hægt að greiða út forgangs- kröfur, að sögn slitastjórnar. Það skiptir því miklu máli fyr- ir þrotabúið að forgangskröfur verði skýrar sem fyrst þannig að sem minnstir vextir verði greiddir af Icesave-skuldinni. Slitastjórn Landsbankans þarf að bíða dóms til að geta greitt kröfur úr þrotabúinu. Ljósmynd/Teitur Karl Wernersson Sigmundur Davíð Gunnlaugsson veit ekkert um fjármál flokksins sem hann stýrir. Segist ekki blanda saman pólitík og peningum. Ljósmynd/Hari  stjórnmálaflokkar ársrEikningaskil f ramsóknarflokkurinn er eini flokkur-inn á Alþingi sem hefur ekki enn skil-að ársreikningi sínum fyrir árið 2009 til Ríkisendurskoðunar jafnvel þótt lög sem Alþingi samþykkti kveði á um að stjórnmála- samtök skili ársreikningum sínum til Ríkis- endurskoðunar fyrir 1. október árið á eftir. Sveinn Arason ríkisendurskoðandi segir í samtali við Fréttatímann að hann sé mjög hissa á því að flokkar skuli ekki virða sett tímamörk varðandi skil á ársreikningum. „Þessir flokkar stóðu að samþykkt á þessum lögum. Þeir vildu sjálfir að við stæðum að birtingu þessara ársreikninga og það er í raun með ólíkindum að flokkarnir skuli ekki virða þessar reglur betur. Það er sérkenni- legt, óeðlilegt og óheppilegt að þeir geti ekki skilað á réttum tíma,“ segir Sveinn. Spurður segir Sveinn að Ríkisendurskoð- un hafi ekki úr mörgum úrræðum að moða við innheimtu ársreikninga frá flokkunum. „Við getum ekki annað gert en að tala við menn og biðja þá að skila á réttum tíma – brýna þá til að virða lögin sem þeir settu sjálfir,“ segir Sveinn. Ríkisendurskoðun hefur ekki mótað sér afstöðu til þess hvernig best sé að skerpa á skilum ársreikninga hjá stjórnmálasam- tökum. „Ég veit ekki hvaða refsingu ætti að beita þótt sjálfsagt væri best að hún væri í formi peningasektar. Virkar það ekki alltaf best?“ spyr Sveinn. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, for- maður Framsóknarflokksins, segir í tölvu- pósti í gegnum aðstoðarmann sinn, Jóhannes Skúlason, að hann komi ekki nálægt fjár- málum flokksins. „Ég hef fylgt þeirri stefnu að láta skrifstofuna alfarið um fjármálin til að blanda ekki saman stjórnmálum og rekstri flokksins. Ég veit því nánast ekkert um þetta. Síðast þegar ég vissi (fyrir áramót) strand- aði þetta á því að reikningar höfðu ekki skilað sér frá einhverjum tveimur félögum af þessum tæplega hundrað sem tilheyra flokknum. Ég held að formaður eins félags hafi verið við vinnu erlendis, einhver heil- mikil saga sem ég setti mig ekki inn í,“ segir Sigmundur í tölvupósti sem svar við spurn- ingu Fréttatímans um slæleg skil flokksins á ársreikningi fyrir árið 2009. Hann vildi ekki svara spurningu um það hvort hann teldi það eðlilegt að stjórnmálaflokkur sem vildi láta taka sig alvarlega, gæti ekki skilað ársreikn- ingi í samræmi við lög og reglur. Ekki náðist í Hrólf Ölvisson, framkvæmda- stjóra flokksins, þrátt fyrir margítrekaðar tilraunir. Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@frettatiminn.is Framsókn ekki enn skilað ársreikningi fyrir 2009 Ríkisendurskoðandi segir það óheppilegt og óeðlilegt að stjórnmálasamtök geti ekki skilað ársreikn- ingum sínum á réttum tíma. Ég veit því nánast ekkert um þetta. Magnús Ármann lofar að borga persónulegar skuldir Athafnamaðurinn Magnús Ár- mann lofar því í langri grein í Fréttablaðinu í gær, fimmtu- dag, að standa skil á öllum þeim persónu- legu ábyrgðum sem hann er í gagnvart lánardrottnum félaga í hans í eigu. Þar með er talin 240 milljóna króna greiðsla til Arion banka sem hann var dæmdur til að greiða vegna ábyrgðar fyrir Materia Invest, félag í eigu hans, Þorsteins M. Jónssonar og Kevins Stan- ford. Aðaltilgangur greinarinnar er þó að tilkynna að embætti sérstaks saksóknara hafi hætt rannsókn á þætti Magnúsar í svokölluðu Imon-máli þar sem grunur leikur á að Landsbankinn hafi orðið uppvís að markaðsmisnotkun vegna sölu bréfa í bankanum til Imon, félags í eigu Magnúsar, fyrir milljarða rétt áður en bankinn var tekinn yfir af Fjármálaeftirlitinu. -óhþ Lúxusvilla úr sölu en ekki seld Lúxusvillan Fjölnisvegur 3, sem var í eigu afhafnamannsins Björgólfs Thors Björgólfssonar en endaði eftir skuldauppgjör kappans inni í félaginu Mynni ehf., sem er í eigu skilanefndar Landsbankans, er komin af sölu- skrá eftir nokkrar vikur á skrá. Mynni ehf. er enn eigandi hinnar 326 fermetra villu samkvæmt opinberum gögnum en ekki fæst uppgefið hvort eignin er seld eða hefur einfaldlega verið tekin af skrá í bili. -óhþ 2 fréttir Helgin 18.-20. febrúar 2011

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.