Fréttatíminn - 18.02.2011, Page 27
world class.is
Súperform
Peak Pilates
Hot Rope Yoga
Mömmutímar
Fitnessbox
TRX Combó
Zumba Fitness
CrossFit
SpinningFit
Ketilbjöllur
Herþjálfun
Lífstíll 20+ SKRÁÐU ÞIG NÚNAá worldclass.is og í síma 55 30000
B
es
tu
n
B
irt
in
g
ah
ús
VIÐ SÝNUM 2011 ÁRGERÐINA AF HOBBY HJÓLHÝSUNUM Á VERÐI SEM KEMUR Á ÓVART.
FULLUR SALUR AF SÝNINGARHÚSUM.
Allir vagnarnir eru endurhannaðir að utan sem innan og hlaðnir
nýjungum. Stórglæsilegar innréttingar, fyrirkomulag og tæki.
Nýtt eldhús, nýr sérhannaður stór ísskápur, nýtt stjórnborð
fyrir rafmagn og vatn.
Opið laugardag 12 til 16 og sunnudag 13 til 17.
Verið velkomin, það er alltaf heitt á könnunni.
Ath. Einnig verður haldin húsbílasýning
helgina 5 og 6 mars.
VÍKURVERK - ALLT Í FERÐALAGIÐ.
VÍKURHVARF 6 - 203 KÓPAVOGUR - SÍMI 557 7720 - WWW.VIKURVERK.IS
FERÐUMST INNANLANDS.
2011
VERÐ FRÁ KR.2.990.000,-
MEST SELDU
HJÓLHÝSI Í EVRÓPU
2.990.000
3.795.000 3.990.000
3.995.000 4.290.000
4.290.000 4.470.000 4.290.000 4.200.000 4.880.000 4.780.000
Hún segist hafa grátið á hverju
kvöldi fyrsta árið eftir andlát
Óskars og dvalið meira og minna í
kirkjugarðinum við leiðið hans.
„Samt veit ég að hann er ekki
þar. Kistan hans er þar, en hann
sjálfur er á betri stað. Við jarðar-
förina var kirkjan troðfull, hann
var svo elskaður. Það er eitt sem
mig langar að koma á framfæri í
þessu viðtali: Fyrstu vikuna eftir
andlát Óskars var alltaf að hringja
og koma til mín fólk, með blóm
og kerti og votta mér samúð. Eftir
jarðarförina var eins og ég hefði
gleymst. Þá fyrst kemur tómleik-
inn og sorgin og söknuðurinn er
svo yfirþyrmandi að það er ÞÁ sem
sá sem hefur misst þarf á vinum að
halda. Það voru allir að ráðleggja
mér; fara út að hlaupa, fara í sund,
henda mér út í vinnu, ganga á fjöll,
en það hafði ég gert í mörg ár. Ég
hélt áfram að gera þetta, og sótti
tólf spora fundina, og þar gat ég
grátið eins og mig lysti, en nokkr-
um mánuðum eftir andlát Óskars
hrundi ég andlega og líkamlega
og þurfti að fara á Heilsuhælið í
Hveragerði. Ég er mjög trúuð en
ég fór í gegnum reiðina og spurði
Guð hvað eftir annað: „Af hverju
tókstu hann? Af hverju léstu hann
lifa svona erfiðu lífi og enda það á
svona hörmulegan hátt?“ Það er
mjög áríðandi að tala við fagfólk,
presta, sálfræðinga, sorgarsam-
tök – og fara á tólf spora fundi.
Það er svo mikill máttur í þeirri
mannrækt. Það er gott að tala við
foreldra sem hafa gengið í gegnum
sömu reynslu og það er hægt að
leita í Foreldrahús. Ég fékk alls
staðar hjálp þar sem ég sóttist eftir
henni en ég get alveg viðurkennt að
það komu oft stundir þegar ég bað
Guð að taka mig líka til sín, ég gæti
ekki meira, því eitthvað dó innra
með mér. En ég á tvö önnur börn
sem ég hef mjög gott samband við
og ég á sex barnabörn sem ég lifi
fyrir. Eftir að Óskar dó fannst mér
barnabörnin vera að vaxa frá mér,
en þegar nafna mín Edda Rós fædd-
ist í fyrra fannst mér ég endurfæð-
ast. Barnabörnin eru það sem gefur
lífi mínu gildi og sýna mér hvað
lífið getur verið yndislegt. Minn til-
gangur í lífinu er að vernda barna-
börnin mín fyrir þessum vonda
heimi. Hingað streyma harðari
eiturlyf og í meira magni en fyrir
tíu árum og enn fleiri ungmenni
lenda í þeim og deyja. Ég er með
altari heima sem ég útbjó og á því
stendur mynd af Óskari mínum. Ég
hef logandi kertaljós hjá henni og
ég tala mikið við fallega stubbinn
minn. Ég veit að ég á eftir að hitta
hann aftur í ríki eilífðarinnar.“
Anna Kristine
ritstjorn@frettatiminn.is