Fréttatíminn - 18.02.2011, Síða 48
48 tíska Helgin 18.-20. febrúar 2011
tíska
Kolbrún
Pálsdóttir
skrifar
Markmiðið
að vera öll eins?
Síðustu ár hefur verið í umræðunni að fá versl-
unina Hennes og Mauritz hingað til lands. Og nú
stendur sú umræða líklega sem hæst. Einhverjar
heimildir segja að það eigi að opna tvær verslanir
hér á landi en ég veit þó ekki hversu öruggar þær
eru. Heyrði þó einhvern tíma að eigendur verslun-
arinnar neituðu að flytja hana til landsins vegna
þess hversu mikið þeir græddu á okkur nú þegar.
Þetta er líklega sá áfangastaður sem við Íslend-
ingar sækjum helst í þegar við höldum erlendis.
Ég tala þó aðallega fyrir sjálfa mig. Það fæst allt
þar; ódýr fatnaður, snyrtivörur og fylgihlutir.
Ég og mínir líkar missum vitið og kaupum fyrir
næstu árin. Draumurinn væri þó að þurfa ekki að
fjárfesta í heilum flugmiða til þess að fá tækifæri
til að versla í H&M. Eða hvað?
Segjum sem svo að heljarinnar H&M-verslun
rísi á Laugaveginum. Mikil gleði. Vörurnar rjúka
út og allt gengur rosalega vel. Eða hvað? Myndi
það ekki þróast þannig að annar hver kvenmaður
á þessu landi myndi eiga samskonar flíkur. Ég
tel að við séum nú þegar nógu innilokuð á þessu
einstaklega litla skeri. Við myndum líklega fljótt
missa áhugann á þessari verslanakeðju og hætta
að versla eins mikið við þá. Er það ekki annars
pínu markmið að fá að vera ólík næstu mann-
eskju?
Við megum svo ekki gleyma því að fyrir nokkrum
árum var verslunin til staðar hér á landi. Ég man
ekki betur en að hún hætti vegna þess að þá
vorum við, viðskiptavinirnir, ekki nógu tryggir.
Hún gekk einfaldlega ekki vegna þess að við
höfðum ekki áhuga. Við ættum að loka þessari
umræðu og leyfa spenningnum að lifna við þegar
við höldum til Norðurlandanna. Eintóm gleði!
Samstiga í einu og öllu
Tvíburarnir Erla og Hulda Franklín
eru mjög samstiga í lífinu. Þær elska
báðar tísku og tónlist en stunda þó
nám í ólíku umhverfi. Hulda er í Versl-
unarskóla Íslands en Erla í Menntaskól-
anum við Hamrahlíð.
„Öll fötin sem við eigum eru í sam-
eign svo ætli stíllinn okkar sé ekki eins.
Hann er pínu töffaralegur, þægilegur
en á sama tíma gellulegur,“ segir
Hulda. „Þrátt fyrir að við eigum sömu
fötin er það lykilatriði að klæðast ekki
eins; hallærislegt ef við færum að
ganga í alveg eins fötum frá degi til
dags ...“ „... reynum aðeins að brjóta
það upp,“ bætir Erla við.
Draumaverslunin hennar Huldu er
Acne í Svíþjóð. Hún á að vísu engar
flíkur þaðan þar sem verðlagið er
mjög hátt. Erla er ekki sama sinnis. „Ef
ég ætti verslun, þá væri það einhver
vintage-búð. Fullt af einstökum, fal-
legum fötum sem entust endalaust.“
Þegar stelpurnar voru litlar litu þær
mikið upp til Olsen-tvíburanna og gera
í rauninni enn. „Við höldum ennþá upp
á þær. Þær hafa gott auga fyrir tísku
og eru alltaf glæsilega klæddar,“ segir
Hulda og lítur á systur sína.
Í næsta tölublaði breska karlatíma-
ritsins GQ mun forsætisráðherra
Rússlands, Vladimir Putin, verða
í ítarlegu viðtali um heilsu sína og
lífsstíl. Breskir fjölmiðlar hafa lengi
viljað ná viðtali við kappann en aldrei
fengið tækifæri til þess. Ofurfyrir-
sætan Naomi Campbell var fengin
til að taka viðtalið og lagði hún erf-
iðar spurningar fyrir ráðherrann.
Putin svaraði hreinskilnislega og
var lipur í svörum. Hann mun þó
ekki komast á forsíðu tímaritsins því
Naomi sjálf, sem komin er á fimm-
tugsaldurinn, stal senunni og mun
prýða forsíðuna, nakin.
Hvítar tennur og fallegt bros
Fallegt bros er áberandi. Þess vegna skiptir
góð umhirða á vörum og tönnum höfuðmáli.
Við verðum að sjá til þess að bursta tennurnar
oft á dag og hlúa vel að vörunum, sérstaklega
í vetrarkuldanum. Sumir eiga
þó í erfiðleikum með að ná
þeirri fullkomnun sem þeir
sækjast eftir. Ef til vill er erfitt
að ná hinum fullkomna hvíta
lit á tönnunum. Þá er óþarfi að
örvænta því hægt er að nálgast
tannhvíttunarefni sem endist
í sex til tólf mánuði. Beauty
White tannhvíttunarefnið fæst
á 5.500 krónur á hafnasport.is og gerir tenn-
urnar skínandi hvítar á aðeins 20 mínútum. Efnið
hefur fengið verðlaun víðsvegar um heiminn
fyrir framúrskarandi árangur.
5
dagar
dress
Mánudagur
Erla
Skór: Top Shop
Buxur: KRONKRON
Vesti: H&M
Skyrta: All Saints
Hulda
Skór: Einvera
Buxur: H&M
Bolur: Kolaportið
Pels: Rokk og rósir
Hattur: Spúútnik
Þriðjudagur
Hulda
Skór: Top Shop
Sokkabuxur: Oreblu
Stuttbuxur: Spúútnik
Skyrta: Monki
Erla
Skór: Einvera
Leggings: Vero Moda
Kjóll: Weakday
Miðvikudagur
Hulda
Skór: Gs skór
Kjóll: Warehouse
Pels: Spúútnik
Erla
Skór: Einvera
Kjóll: Zara
Peysa: Top Shop
Fimmtudagur:
Hulda
Skór: Einvera
Leggings: Vero Moda
Skyrta: Spúútnik
Jakki: H&M
Erla
Skór: Bianco
Buxur: H&M
Bolur: Top Shop
Hattur: Spúútnik
Hannar ódýran fatnað
Ofurskutlan Katie
Price eða Jordan
eins og hún kallaði
sig hér áður fyrr,
kom mörgum á óvart
síðastliðinn sunnudag
þegar hún tilkynnti að
ný fatalína eftir hana
sjálfa væri að koma
á markað. Hún hélt
litla tískusýningu í
Lundúnum um helgina
þar sem hún klæddist
sjálf nýju hönnuninni
og stillti sér upp fyrir
framan myndavélarnar
á sýningarpallinum.
Mikil velta verður í nýju
línunni þar sem nýjar
vörur munu bætast
við 22. dag hvers
mánaðar. Í kjölfarið
nefndi hún nýju línuna
Day 22 eða Dagur 22
og segir hún söguna
á bak við nafnið ansi
skemmtilega. Nýja
línan mun innihalda
fatnað, töskur, skó
og sólgleraugu og
vöruverðið á að vera í
algjöru lágmarki.
Naomi Campbell reynir
fyrir sér í blaðamennsku
Föstudagur:
Hulda
Skór: Monki
Leggings: Vero Moda
Kjóll: Top Shop
Skyrta: H&M
Pels: Gyllti kötturinn
Erla
Skór: Einvera
Kjóll: Warehouse
Jakki: Fatamarkaður
Hjálpaðu okkur að finna nafn á mjólkurkúna
á www.ms.is. Þú gætir unnið glæsilegan vinning.
Allir krakkar 12 ára og yngri mega taka þátt.
Hvað á kýrin að heita?
www.ms.is