Fréttatíminn - 18.02.2011, Side 51
Plötuhorn Dr. Gunna
let Me Be there
Ellen Kristjánsdóttir
Pétur Hallgrímsson var í
rokkbandinu Ex á árum áður,
svo í popptríóinu Lhooq.
Síðan hefur hann mest unnið
sem verktaki, meðal annars
með Emilíönu Torrini og Lay
Low, en er nú loks í aðal-
hlutverki ásamt Ellen, semur
öll lög og texta (stundum
með Ellen) og spilar á gítara.
Ellen er frábær söngkona
og er hér á kunnuglegum
slóðum, músíklega.
Yfirbragð plötunnar er
angurvært og „kaffihúsa-
legt“. Sum lögin góð, önnur
full lítið áberandi, velflest
í poppuðum kántrígalla og
slæd-gítarinn sjaldan langt
undan. Þessi plata er af-
slappandi eins og klukkutími
í snarpheitum potti.
Ballið á Bessastöðum
Lög úr samnefndu leikriti
Ballið á Bessastöðum er
hresst og skemmtilegt leikrit
eftir Gerði Kristnýju og
gengur nú í Þjóðleikhúsinu.
Bragi Valdimar Skúlason
henti í níu lög við söngtexta
sem hann samdi með Gerði.
Lögin eru sum alveg frábær,
eins og titillagið, og bæði er
boðið upp á grallara-stuð
og ballöður. Lögin eru líka
ósungin fyrir heima-karókí-
ið. Memfismafían var kölluð
út, leikararnir syngja, auk
Valdimars Guðmundssonar
(úr hljómsveitinni Valdimar),
Siggu Toll og Sigga Gumm.
Þetta er ágætis diskur,
frábær minjagripur fyrir
unga leikhúsgesti og stendur
jafnvel einn og sér.
James Blake
James Blake
Allmikið „hæp“ hefur verið
í kringum þennan rúmlega
tvítuga Breta, enda er
þessi fyrsta plata hans í
fullri lengd nokkuð lunkin.
Hann syngur með tilfinn-
ingu og flytur píanódrifnar
geimaldar soul-ballöður,
sem eru fullar af merkingar-
þrungnum þögnum og tor-
kennilegum aukahljóðum.
Hann hefur nefnt enska
bandið The XX sem áhrifa-
vald og það kveikir áhuga
því fyrsta plata The XX er
frábær. Þetta er ung og
fersk tónlist, nokkuð poppuð
og aðgengileg, en líka
leyndardómsfull og svöl. Ég
heyri þetta fyrir mér hljóma
á auglýsingastofum og í
framsæknum tískubúðum.
Þetta er þannig stöff. Töff.
dægurmál 51Helgin 18.-20. febrúar 2011
kvikMynDir
Fegurð Carmenar slær unga hermanninn alveg út af laginu.
S ambíóin bjóða upp á nokkr-ar sýningar á hinni vinsælu óperu Georges Bizet um
Carmen í mars. Sýningarnar sem
fólki gefst kostur á að sjá í bíó eru
í þrívídd og eru samstarfsverkefni
Konunglega óperuhússins í London
og RealD. Þrívíddinni er ætlað að
hafa þau áhrif að áhorfendur í bíó-
sal á Íslandi geti látið sér líða eins
og þeir séu í bestu sætum óperu-
hússins.
Óperan verður frumsýnd í kvik-
myndahúsum um víða veröld kl. 17
hinn 5. mars og þá sýna Sambíóin
hana í Kringlunni og á Akureyri.
Næstu sýningar verða síðan í Sam-
bíóinu í Kringlunni 9. mars kl. 18,
12. mars kl. 17 og 26. mars kl. 17.
Carmen var tekið heldur fálega
þegar óperan var frumsýnd í París
í mars 1875 en varð síðar ein dáð-
asta og vinsælasta ópera sem sögur
fara af. Söguþráðinn þekkja flestir
en í óperunni segir af eldheitum
ástríðum, afbrýðisemi og svikum.
Óperan gerist í Sevilla á Spáni í
kringum 1820 og hverfist um sí-
gaunastúlkuna blóðheitu og gullfal-
legu, Carmen. Hún dregur reynslu-
lítinn liðsforingja, Don José, á tálar
og samband þeirra kemur allri hans
tilveru í uppnám. Hann snýr baki
við unnustu sinni, gerir uppreisn
gegn yfirboðurum sínum og geng-
ur til liðs við smyglaragengi. Þegar
Carmen lætur hann svo róa fyrir
nautabanann Escamillo tryllist hann
úr afbrýðisemi með skelfilegum af-
leiðingum.
Christine Rice syngur hlutverk
Carmenar, Bryan Hymel er í hlut-
verki Don José og Aris Argiris leik-
ur Escamillo.
Carmen verður sýnd með enskum
texta í Sambíóunum.
Ástríðurnar eru eldheitar í óperu
Bizets.
Þrjár víddir Carmenar
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
TVEGGJA TÍMA HLÁTURSKAST... MEÐ HLÉI
Opal – bætir andrúmslo�ið
Fáðu þér frískandi Opal og skelltu þér á Nei ráðherra! – fjörlegan og sprenghlægilegan gamanleik – í Borgarleikhúsinu.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Tilvalið fyrir fundinn
eða starfsmannapartýið!