Fréttatíminn - 18.02.2011, Page 52
52 dægurmál Helgin 18.-20. febrúar 2011
fyrsta fatalínan Kron by KronKron lítur dagsins ljós
Hönnunin
einkennist
af sam-
spili lita.
„Hrífandi falleg bók … Bæði grátur
og hlátur … alveg magnað verk.“
Hr afn Jökulsson / kilJan
friðrik a Benónýsdóttir / fréttaBlaðið
Þú verður
að lesa Hana
skáldsagan ljósa
eftir
kristínu steinsdó
ttur
hrífur þig með sé
r
komin
í kilju
– Lifið heil
Lægra
verð
í Lyfju
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
5
33
85
0
1/
11
Gildir út febrúar.
Voltaren Gel
15% verðlækkun.
100 g. Áður: 3.390 kr. Nú: 2.879 kr.
Litadýrð frá Kron
Tískusýningar
fram yfir Grammy
Söngvarinn Kanye West hefur ekki átt sjö dagana sæla
þegar tónlistarverðlaunahátíðir eru annars vegar. Hann
hefur oftar en ekki valdið miklu uppþoti með drykkju
sinni og dólgslátum. Svo virðist sem
söngvarinn hafi áttað sig á því að
verðlaunahátíðir séu ekki ætlaðar
honum. Grammy -hátíðin var haldin
um síðustu helgi og þar var Kanye
tilfnefndur í mörgum flokkum. Þrátt
fyrir það lét hann ekki sjá sig. Þess
í stað sótti hann tískuvikuna í New
York þar sem hann sat á fremsta
bekk og fylgdist með nýjasta
sköpunarverki hönnuðarins Alex-
anders Wang. Kanye hefur verið
mikill áhugamaður um tísku og
hefur reglulega sótt tískusýningar gegnum árin. Það er þó
greinilegt að söngvarinn hefur forgangsraðað viðburðum
á nýjan hátt þetta árið. -kp
n ýja vorlínan okkar er gríð-arlega falleg,“ segir Magni Þorsteinsson, hönnuður
og annar af eigendum Kron by
KRONKRON. „Hún er samsett af
kjólum og sokkabuxum í allri sinni
litadýrð. Þetta eru helst silkikjólar
sem eru klassískir, tímalausir og
rómantískir. Hönnunin einkennist
af samspili lita og efnasamsetning-
in er alltaf í aðalhlutverkinu. Nýja
fatalínan er í sama stíl og skórnir
okkar, sem við höfum verið að selja
síðan árið 2008, og við fáum mik-
inn innblástur frá þeim.“
Kærustuparið Magni og Hugrún
Dögg Árnadóttir hófu sína eigin
hönnun á skóm fyrir þremur árum
og hefur þróunin verið hröð síðan.
Skólínan þeirra hefur vakið mikla athygli víðsvegar um
heiminn og eru skórnir nú seldir í tæplega 70 verslunum í
25 löndum. Það hefur legið í loftinu í nokkurn tíma að þau
tækju næsta skref og settu líka á markað fatalínu. Það er
nú orðið að veruleika og fötin er litrík og öðruvísi en flest
annað sem er í boði. -kp
Í síðustu viku barst nýja fatalínan frá Kron by KRONKRON í verslunina á Vitastíg. Þetta
er fyrsta fatalínan sem merkið sendir frá sér og er hún litrík, tímalaus og ævintýraleg.
Hugrún og Magni Nýja fatalínan frá Kron by KRONKRON orðin að veruleika.
Fatalínan frá
KRONKRON
fetar í fótspor
skónna, sem
eru seldir í 25
löndum.
Forræðisdeilan yfirstaðin
Leikkonan Halle Berry og barnsfaðir hennar,
Gabriel Aubry, slitu nýlega samvistir og hefur
deila þeirra um forræði yfir dótturinni Nölu
verið gríðarlega hávær síðan í lok síðasta
árs. Klærnar eru úti og þau hafa hnakkrifist
í gegnum fjölmiðla vestanhafs og afhjúpað
leyndarmál hvort annars fyrir almenningi. Á
miðvikudaginn var fóru þau fyrir dómstóla þar
sem Halle Berry fékk sínu framgengt. Hún fær
fullt forræði yfir dóttur sinni og segist vera
ánægð með að þetta sé yfirstaðið og geta
haldið aftur til vinnu. Gabriel er hins vegar
ósáttur og segir að þessi ákvörðun muni hafa
Mars gerist sekur
Söngvarinn Bruno Mars, sem sló í gegn
á síðasta ári með laginu sínu „I wanna be
a Millionaire“, var gripinn með kókaín í
fórum sínum í september síðastliðnum. Í
gær, fimmtudaginn 17. febrúar, fór málið
fyrir dóm og var hann dæmdur sekur.
Samkvæmt samkomulagi, sem komið var
á, þarf hann að vinna 200 klukkustundir
í samfélagsþjónustu ásamt tólf mánaða
skilorði. Ef vera skyldi að hann stæðist
eiturlyfjapróf næsta árið mun málið
strokast út af sakaskrá hans.
slæm áhrif á dóttur sína.
Núverandi kærasta kappans
er skutlan Kim Kardashian
sem hefur ekkert viljað til
málanna leggja.
Bruno Mars í dóms-
húsinu 17. febrúar