Fréttatíminn


Fréttatíminn - 18.02.2011, Síða 54

Fréttatíminn - 18.02.2011, Síða 54
V ið teljum þetta vera mjög nauð-synlegt fyrir geðheilsu okkar í þessum heimi sem við erum komnar í,“ segir Heiða Helgadóttir, framkvæmdastjóri Besta flokksins, en eins og alþjóð veit hafa flestir sem að flokknum koma hingað til látið sig nán- ast allt annað en stjórnmál varða. „Þetta leggst kannski ekki beint þungt á fólk en hefur breytt lífi okkar allra þannig að við erum meðal annars að sækja styrk hver til annarrar með karókí-söng,“ segir Heiða og bætir því við að söngurinn sé sálinni nauðsynlegur. Bestu konurnar héldu óformlegan stofnfund fyrr í vetur en á laugardag var látið til skarar skríða fyrir alvöru með huggulegri kvöldstund sem varð fjörugri eftir því sem leið á kvöldið. „Elsa Hrafn- hildur Yeoman borgarfulltrúi bakaði pitsur en hún byrjaði nefnilega að reka pitsustað þegar hún var fjórtán ára.“ Og svo var sungið karókí þar sem Heiða sjálf var frek til fjörsins. „Ég söng svolítið mörg lög og mér var sagt eftir á að það hefði ekkert alltaf verið skemmtilegt. Svo var ég líka með svona plötukynningar sem konurnar kunnu víst lítið að meta.“ Heiðu telst til að félagið telji um fimm- tán konur. „Þetta eru alla vega margar konur og allt góðar konur. Ég held að þetta séu bara öflugustu konur á land- inu.“ Félagið ber því væntanlega nafnið Besta kvenfélagið með rentu. Heiða segir samræðurnar á milli kvennanna mjög djúpar á milli þess sem þær taka lagið. Auk Heiðu og borgarfulltrúanna Evu Einarsdóttur og Elsu Hrafnhild- ar Yeoman eru Magga Stína, Margrét Vilhjálmsdóttir, Hjördís Sjafnar Ingi- mundardóttir, Diljá Ámundadóttir og Erna Ástþórsdóttir, sem allar áttu sæti á lista, í félaginu. Þá eru Jóga, eig- inkona Jóns Gnarr, Svanborg Þórdís Sigurðardóttir, kona Óttars Proppé, Steinunn Sigurðardóttir, eiginkona Páls Hjaltasonar, og Tobba Marinós, kærasta Karls Sigurðssonar, með í sel- skapnum ásamt fleiri hressum konum. Heiða segist almennt telja að karlarnir í flokknum hafi mjög mikinn skilning á félaginu. „Við höfum samt aðallega fund- ið fyrir öfund ef eitthvað er. Þetta eru náttúrlega allt menn sem eru búnir að djamma frá sér allt vit og mega ekkert við neinu svona löguðu lengur. Þannig að það gætti svona ákveðinnar djammöf- undar hjá þeim á sunnudaginn.“ toti@frettatiminn.is  konur í Besta flokknum stofna Besta kVenfélagið Veita hver annarri styrk með karókí-söng Konur í borgarstjórnarflokki Besta flokksins, eiginkonur og kærustur borgarfulltrúa ásamt fram- kvæmdastjóra flokksins og konum af framboðslista hafa þjappað sér saman undir merkjum Besta kvenfélagsins. Þær gerðu sér glaðan dag á sínum fyrsta formlega fundi á laugardagskvöldið var og sungu karókí. Eitthvað örlar á öfund hjá karlpeningnum í flokknum sem er skilinn útundan. Ég held að þetta séu bara öflug- ustu konur á landinu. 54 dægurmál Helgin 18.-20. febrúar 2011 Skálmöld yfirvofandi í Kópavogi Óvænt brotthvarf Hildar Dungal úr bæjarstjórn- arflokki Sjálfstæðis- flokksins í Kópavogi þykir líklegt til að draga dilk á eftir sér þar sem með breytingunni sem fylgir í kjölfarið nær Gunnar I. Birgisson, fyrrverandi bæjar- stjóri, vopnum sínum og er líklegur til að gera oddvitanum Ármanni Kr. Ólafssyni lífið leitt. Gunnar hugsar Ármanni þegjandi þörfina eftir að sá síðarnefndi fór gegn honum í fyrsta sæti flokksins í síðasta prófkjöri. Þegar Aðal- steinn Jónsson íþrótta- kennari tekur sæti Hildar má því segja að bæjarstjórnar- flokknum sé skipt í miðju. Aðalsteinn er skilgreindur sem „Gunnarsmaður“ og þar sem flokkurinn á fjóra í bæjarstjórn er Gunnar kominn með skjaldsvein á móti Ármanni og Margréti Björnsdóttur. Þórarinn Þórarinsson toti@ frettatiminn.is  huldar Breiðfjörð sýndi þýskum Blaðamönnum landið Hallgrímur Helga sá um grínið B ókin Góðir Íslendingar, eftir Huldar Breiðfjörð, sem kom út árið 1998 verður gefin út í Þýska- landi síðar í þessum mánuði. Hópur þýskra blaðamanna var á landinu um helgina af þessu tilefni og kynntu þeir sér land og þjóð um leið og þeir eyddu tíma með höfund- inum. „Ég fór með þau á Snæfellsnes og sýndi þeim Stykkishólm og svo tók Halldór Guðmundsson við keflinu og fór meðal annars með þau í Gljúfrastein, segir Huldar sem tók einnig að sér að leiða blaðamennina um næturlíf Reykjavíkurborgar. „Við fórum beint af Snæfellsnes- inu í bæinn og kíktum á nokkra bari og þar slóst Hallgrímur Helgason í hópinn. Hann kom sterkur inn og sá um að halda uppi stuðinu með bröndurum, sem var mjög gott vegna þess að ég var búinn með alla mína. Þjóðverjunum þótti merkilegt að hitta sjálfan höfund 101 Reykja- vík enda hefur Hallgrímur verið að gera það gott í Þýskalandi.“ Íslenskar bókmenntir verða í brennidepli í Þýskalandi á þessu ári þar sem bókamessan í Frankfurt verður undirlögð af íslenskum bók- um og það hittist þannig á að bók Huldars er með þeim fyrstu sem koma út á þýsku í kringum mess- una. Hann segir Þjóðverjana hafa sýnt landi og þjóð mikinn áhuga. „Þjóðverjar eru kurteist fólk en ég skynjaði ekki annað en að áhugi þeirra væri einlægur.“ Huldar dvelur á Íslandi um þessar mundir og gerir ráð fyrir að verða hér fram á vor. Eftir Þjóðverjaheim- sóknina getur hann svo vel hugsað sér að taka stefnuna á Frankfurt síðar á árinu. Þjóðverj- unum þótti merkilegt að hitta sjálfan höfund 101 Reykjavík. Heiða Helgadóttir lét heldur betur til sín taka í karókí-hópefli kvenna í Besta flokknum. Feitukallafélagið á RÚV Í fyrrahaust bundust fjórir þungavigtarfréttamenn á RÚV, þeir Svavar Halldórsson, Ægir Þór Eysteinsson, Ingólfur Bjarni Sigfússon og Hallgrímur Indriðason, fastmælum um að reyna að leiðrétta þyngdartöluna á vigtinni og færa hana til betri vegar – niður á við. Utan um átak þetta stofnuðu þeir Feitukallafélagið og nú, þegar uppgjör hefur farið fram, lítur út fyrir að hægt sé að útskrifa Hallgrím og Ægi og félagið verði því framvegis dúett. Hallgrímur og Ægir sýndu báðir mikla hörku og hafa náð af sér tveggja stafa tölu hvor, á meðan öllu minna fer fyrir staðfestunni hjá Svavari og Ingólfi Bjarna sem hafa lítið rýrnað á tímabilinu. Lj ós m yn d H ar i Opið virka daga kl. 9 -18 og á laugardögum kl. 11 - 16 Rafknúnir hægindastólar sem auðvelda þér að setjast og standa upp Fjölbreytt úrval Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is Huldar Breiðfjörð brá sér í hlutverk leiðsögu- manns fyrir þýska blaða- menn og naut liðsinnis Hallgríms Helgasonar á endasprettinum. Hjálpartæki ástalífsins í Dyngjunni Fyrsti þáttur Dyngjunnar, þar sem þær Björk Eiðsdóttir og Nadia Banine fá til sín konur og ræða allt milli himins og jarðar sem þær láta sig varða, var sýndur á Skjá einum á þriðjudag. Þá var holdafar og þokkafullur klæðaburður áberandi í samræðunum og ætla má að enn hitni í kolun- um í næsta þætti. Það sást nefnilega til þeirra stallsystra í kynlífstækjaverslun í borginni í vikunni og þótti ljóst að þær væru þar í rannsóknarleiðangri. Því má reikna með líflegu spjalli um holdsins lystisemdir í kvennadyngjunni á þriðjudagskvöld og ef egg ber á góma þá er næsta víst að þau verða hvorki harð- né linsoðin.

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.