Prentarinn - 01.01.1987, Qupperneq 6

Prentarinn - 01.01.1987, Qupperneq 6
Þóra Elfa Björnsson: Um veginn og daginn í prentiðnaðinum Nú allt með letra lærdómum er lýðnum kennt, og þeir sem ráða ritstjórum og röskri sveit af prenturum eru herrar nú í heiminum með hæstri mennt. Þeir eiga heimsins úrvalslið og æðsta og mesta stórveldið er prent. Líklega hefur það verið fyrir um það bil 57 árum að þetta var ort. Þá voru prentarar herrar yfir iðn sinni og hélst svo allar götur fram til síðustu ára. Lengi vel var það álit almennings að þeir sem lærðu prent (setningu - prentun) eða bókband hefðu hlotið lykil sem jafnaðist á við latínuskóla, allar þær dýrmætu og fróðlegu bækur sem færu um hendur þeirra hlutu að gera þá svo afar menntaða. I dag er lýðnum enn kennt „með letra lærdómum“ en aðferðum til að halda letrinu að fólki hefur fjölgað og prentiðnaðurinn tekið breytingum í samræmi við það. Verk, sem setjarar lásu áður í blýlínum á haus, birtast nú á skermi, hvítir eða gulir stafir á dökkum fleti og prentararnir sem áður kíktu áhyggjufullir á verkin til að fylgj- ast með farfagjöf og hvort eitthvað hefði komið „upp“ í satsinum, lesa nú stafrænar tölur sem segja þeim hvernig ástand verksins er. Og það er svolítið merkilegt að það er ekki prentiðnað- urinn sjálfur sem hefur stjórnað þess- um breytingum heldur eru það fram- leiðendur tækja og búnaðar. Þessir framleiðendur og söluaðilar þeirra hafa í flestum tilfellum enga reynslu úr prentiðnaði, heldur eru þeir úr raf- einda- og vélaiðnaði. Eftir því sem tækin hafa orðið einfaldari og vinnan hreinlegri hefur einokun fagsins brost- ið, því hver sem hefur áhuga og pen- inga getur keypt af dreifiaðilum fram- leiðandans. Þannig má segja að stýring á þróun prentiðnaðarins sé í höndum framleiðenda — prentsmiðjur eru ekki lengur fyrst og fremst seljendur sinnar framleiðslu heldur miklu fremur kaup- endur á kröfuhörðu markaðstorgi Krafa um gjörnýtingu Það að vera kaupandi með fjárfest- ingarskuldbindingar á bakinu, auk launakostnaðar, útheimtir að prent- smiðjan skili fleiri verkum, helst á styttri tíma og með færra fólki. Meðan tæknibylting í prentun var ennþá rós- rauður litur á fjarlægu skýi lét margur vinnuþrællinn sig dreyma um aukinn frítíma og styttri vinnuviku, en raunin er sú að t.d. afkastamiklum (og fok- dýrum) prentvélum fylgir krafa vinnu- veitandans um gjörnýtingu vélarinnar sem þýðir vaktavinnu allan sólarhring- inn. Nú er það svo með blessaðar vél- arnar að það þarf að stansa þær öðru hvoru og þrífa þær. í Danmörku varð raunin sú að atvinnurekendur fengu faglært fólk til þess, þá sem hafa sans fyrir vélum, þekkja til farfa og pappírs og í stað þess að ráða t.d. ófaglærða í þetta verk, eins og sumir höfðu reynt, eru nú fagmenn við vinnu á þrískiptum vöktum og sú vaktin sem kemur að nóttunni þrífur vélina. Sumir spyrja hvort prentarar séu ánægðir með að vinna við „skúringar“ og svarið er já. Þannig hafa vinnu þeir sem annars væru atvinnulausir eða í allt annars konar vinnu utan fagsins, þeir eru meðal sinna líka og verkþættirnir hald- ast innan faggreinarinnar. Aðrar greinar prentiðnaðarins hafa ekki heldur sloppið við markaðasþró- un tækjanna. Má þar nefna setninguna en í stað þess að haldast inni í prent- smiðjunum má segja að unnið sé við setningu nánast hvar sem er og af hverjum sem er. En auðvitað er ennþá sett mikið í prentsmiðjunum en sú breyting hefur orðið að þar er tekið við flestum stærri verkum á diskum utan frá sem síðan eru fullunnin í smiðjunni og eru bæði kostir og gallar sem fylgja því. Kostirnir eru þeir að hægt er að taka við fleiri verkum og ætti að vera hægt að dreifa þeim betur á árið. Texti ætti að vera villulaus og Er þetta þess virði? 6 PRENTARINN 1.7. '87

x

Prentarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.