Prentarinn - 01.01.1987, Síða 12
„Nær allur texti
settur í blý“
Dönsku prentararnir Niels Petri Pedersen og
Jens Sörensen hafa heimsótt Nicaragua og hafafrá
mörgu að segja. í meðfylgjandi grein fjalla þeir
um ástandið í landinu og stöðu bókagerðar-
manna. Þeir félagarnir hafa boðið öllum blöðum
bókargerðarmanna á Norðurlöndum að birta
þessa grein og hafa flest þeirra eins og Prentarinn
gert það, enda fróðlegt fyrir okkur að vita hver
staðan er hjá félögum okkar í öðrum löndum.
Formaður bókagerðarmanna, Caramello, sést hér handsetja Internation-
alinn í frítíma sínum, en bókagerðarmenn sáu um þennan þátt fyrir
hátíðarhöldin 1. maí.
Frábærar móttökur
Stuttu eftir komu okkar
til höfuðborgarinnar í Nic-
aragua, Managua, höfðum
við samband við félag bóka-
gerðarmanna. Jose Morales
suarez, kallaður „Caram-
ello“, formaður félagsins,
bauð okkur velkomna með
glasi af rommi á hverfis-
kránni. Á vikulegum stjórn-
arfundi fyrir hádegi næsta
laugardag var gengið frá
dagskrá fyrir okkur þá daga
sem við ætluðum að dvelja í
Managua. Ætlunin var að
við heimsæktum nokkur
fyrirtæki með ritaranum
Luis Lopez. Jafnframt var
haldinn félagsfundur þar
sem við vorum upplýstir um
Nicaragua og við sögðum
frá lífinu í Danmörku.
Seinna fengum við tæki-
færi til að „vinna“ í
nokkrum fyrirtækjum og
veitti það okkur sýn inn í
hversdagslífið hjá verka-
fólki. Þar fyrir utan heim-
sóttum við 20 mismunandi
prentsmiðjur í landinu og
tókum þátt í vikulegum
stjórnarfundum og félags-
fundum. Pá vorum við með
í að prenta áróður fyrir 1.
maí og tækifæri gáfust til
samveru í frítímanum.
Hvarvetna mættum við
ótrúlegri gestrisni hjá þeim
bókagerðarmönnum sem
við hittum.
Almennar aðstæður
í Nicaragua er blandað
hagkerfi. Eftir byltinguna
1979, þegar Sandinistar
fengu völdin eftir blóðugt
einræði Somoza, voru öll
fyrirtæki sem starfað höfðu í
hans nafni þjóðnýtt, en önn-
ur fyrirtæki í einkarekstri
héldu áfram að vera það.
Hvað prentiðnaðinn snert-
ir eru um 17 fyrirtæki í opin-
berri eign og er starfs-
mannafjöldi í þeim 625. í
einkarekstri eru fyrirtækin
101 og hafa um 2000 manns
í þjónustu sinni.
í höfuðborginni Managua
eru 84 bókagerðarfyrirtæki
en á öðrum stöðum í land-
inu 34 og þar af helmingur-
inn í Leon og Granada.
Fyrir utan að fyrirtækin eru
flest í Managua eru þau þar
jafnframt hin stærstu.
Skipting á milli
starfsgreina
Prentarar eru u. þ. b.
1000, handsetjarar 250,
vélsetjarar og bókbindarar
700, offsetljósmyndarar og
skeytingamenn 100 og að-
stoðarfólk um 450 eða sam-
anlagt u. þ. b. 2600 bóka-
gerðarmenn.
Tækniþróunin
Tækniuppbygging er afar
mismunandi frá fyrirtæki til
fyrirtækis. Hvað prentunina
snertir rekst maður á ailt frá
afgömlum hæðaprentvélum
uppí 2ja lita offsetprentvél-
ar af Heidelberg- og Roland-
gerð auk nýrra blaðaprent-
véla. Meirihluti prentvéla
er þó hæðaprentvélar þó
fjöldi ofsetprentvéla sé tölu-
verður. Það sem kom á
óvart er að þær eru flestar
þýskar af Heidelberg gerð.
Hvað setninguna snertir
er hún að miklum meiri-
hluta til í blýi. Tölvusetning-
artæki sjást varla og eru
nánast einungis á þrem dag-
blöðum. Nær allur texti er
12
PRENTARINN 1.7. '87