Prentarinn - 01.01.1987, Qupperneq 18
í stuttu
Bókasafnsfréttir
Ýmsar bækur hafa borist bókasafn-
inu að undanförnu og skal það
helsta nefnt hér:
Hafsteinn Guðmundsson færði
safninu eftirtaldar bækur í október
s. I.:
- Einar Jónsson myndhöggvari
1982
- Akureyri 1895-1930. Ljós-
myndir 1982
- Átímum friðarog ófriðar 1924-
1945. 1983
- Höfuðborg og höfuðból 1985
- Saga höfuðborgar í myndum
og máli 1986
Allt eru þetta vegleg verk og hin
vönduðustu. Hafsteinn segir í bréfi,
sem fylgir gjöfinni: „Útlit þessara
verka er mitt yst og innst. . . . Ég
vona að bókasafni stéttarinnar nýt-
ist þessi bókverk á einhvern hátt".
Hafi Hafsteinn heill og þökk fyrir
veglega bókagjöf.
Magnús Þorbjörnsson hefur fært
Bókasafni F. B. M.
- Niðjatal Magnúsar Ormssonar
og Gróu Jónsdóttur frá Gróubæ
á Eyjarbakka, en Magnús Þor-
björnsson sá um útgáfu þess.
Áður hafði Magnús gefið safninu
- Niðjatal Sigurðar Þorbjörns-
sonar og Ingigerðar Björnsdótt-
ur frá Króki í Ölfusi.
- Depill, blað Starfsmannafélags
Hóla, myndir af starfsfólki Hóla
og bikar.
Hafi Magnús þökk fyrir tryggðina
við Bókasafn F. B. M. og skilning-
inn á geymd sögulegra verðmæta,
sem snerta stéttina.
í ágúst sl. barst bókasafni
F. B. M. bókagjöf frá Stórstúku ís-
lands: 11 bækur, 9 eintök af hverri
bók. Mun þeim sérstaklega ætlað
að eiga samastað í orlofshúsum
félagsins. Bækurnar eru bæði
frumsamdarog þýddar. í bókagjöf-
inni eru 5 bækur ætlaðar börnum
og unglingum.
Þökk sé Stórstúku íslands fyrir
bókagjöfina.
Frá Eymundi Magnússyni bárust
safninu að gjöf um 30 bækur á
ýmsu tungumálum. Munu þær
flestar vera frá námsárum Eymund-
ar, en hann nam prentmyndagerð í
Moskvu á fjórða áratugnum, en
lauk sveinsprófi hér heima.
Fagbækur sem keyptar hafa verið:
- Bogens Funktion og Æstetik 2.
útg.
- Boktryckarkonst och bok-
historia genom fem sekler.
- Aktuell grafisk ordbok
- Grafiska ord í dataáldern.
- Elektroniskt Manus.
- Riktlinjer för val av kemikalie-
skyddshandskar.
Bækur sem keyptar hafa verið:
- Safn til sögu Reykjavíkur.
- Jarðabók Árna Magnússonar.
Ekki má gleyma íslensku tímaritun-
um 1986, sem öll hafa borist safn-
inu. Þau hafa mikla skemmtan og
fróðleik að geyma fyrir þá, sem hafa
tíma til að líta í bók.
Bókaforlag Odds Björnssonar
sendi félaginu að venju góða bóka-
gjöf fyrir jólin. Var það Vestur-is-
lenskar æviskrár V auk þriggja ann-
ara bóka.
Bókaarfur Þórðar Pálssonar
prentara
Áður en Þórður lést hafði hann
lagt svo fyrir að bókasafn hans
gengi heilt og óskipt til Bókasafns
F. B. M. Safnið er allmikið að vöxt-
um, 14 allstórir kassar og komið í
vörslu bókasafns F. B. M. Enn hef-
ur ekki unnist tími til að kanna safn-
ið og skrásetja það. En við fyrstu
sýn er hér um margt verðmætra
bóka í góðu ástandi.
Síðar mun í bókasafnsfréttum
sagt nánar frá gjöf Þórðar, sem er
einstök og rausnarleg, þótt aldrei
verði hún goldin á annan hátt en
þann, að stéttarfélagar hans not-
færi sér gjöfina og minnist um leið
manns, sem vildi færa samtökum
sínum þökk og virðingu.
Bókasafnsnefndin.
shsibnberg
Qch bokhistó
>nagenoméi
18
PRENTARINN 1.7. '87