Prentarinn - 01.03.1996, Blaðsíða 7

Prentarinn - 01.03.1996, Blaðsíða 7
FÉLAGSMÁL Konur og mannréttindi s T íslensku alfræðiorðabókinni er ~ hugtakið mannréttindi skilgreint á eftirfarandi hátt: Mannréttindi: Tiltekin grund- vallarréttindi sem hverjum manni ber, óháð kynþœtti, trú, kyni, þjóðerni og skoðunum... A Islandi eru stjórnarskrár- bundin m. einkum borgaraleg °S ^tjórnmálaleg frelsisrétt- indi... A 20. öld hafa ýmis ríki sett l' stjórnarskrár ákvœði um félagsleg mannréttindi sem hveða á um skyldur ríkis- valdsins við þegnana á sviði almennrar velferðar, öryggis °S jafnréttis, s.s. rétturtil vinnu, menntunar og inhlbrigðisþjónustu. Samkvæmt þessari skilgreiningu eru mannréttindi ekki bundin kyni og ®«i Þv* að vera óþarfi að skrifa ■’erstaklega um mannréttindi yenna, en raunveruleikinn, fyrr og nt*, er þvf miður annar. Arið 1843 var geftn út konungstil- sklPun sem sagði m.a. að allir karlar yrðu lögráða 25 ára, ekki konur, nema þær yrðu ekkjur. Konur réðu 6.k' makavali sínu sjálfar og ef þær t'ftust réð karlinn yfir eignum þeirra einn. Arið 1850 voru sett fyrstu lög um jafnan rgtt kvenna 0g karla tjj arfs l'r sem áður höfðu konur ekkert nm arfinn að segja væru þær giftar. r>ð 1861 voru sett lög sem veittu °fe>ftum konum lögræði 25 ára eins °8 körlum, en giftar konur sátu enn í suPunni. , . fyrri hluta 19. aldar voru konur Uí eins taldar matvinnungar. Fyrir utan það að fá aðeins 'h-'h af aunum karla, fengu vinnukonur u eins hálfan matarskammt á við a °8 minna af fatnaði. Má segja að Annukonur hafi verið hin „hin °8la stétt“, sem átti sér fáa malsvara. Arið 1946 var í fyrsta sinn samið m Jðfn laun karla og kvenna. Var það hjá Nót, félagi netagerðar- manna, og fékkst þá mesta kaup- hækkun konum til handa sem um getur, eða 62,5% en til karla 24%. Þetta tókst eftir 6 vikna verkfall. Enn í dag eiga konur langt í land með að ná fram launajafnrétti, en án efnahagslegs sjálfstæðis er ekki hægt að tala um full mannréttindi. Félagslegar aðstæður kvenna virðast vera breytilegar eftir tímabil- um - réttindi þeirra eru mismikil á mismunandi tímum. Þróunin virðist ekki vera í eina átt. A velmegunar- tímum nýtur lýðræði og jafnrétti sín betur í þjóðfélaginu. En þegar harðnar á dalnum er réttur þeirra sem minna mega sín, þar með kvenna, þrengdur. Ahrifa þeirra í þjóðfélaginu gætir minna. Um leið aukast áhrif karla. Enn eru konur hálfdrættingar á við karla í Iaunum, þrátt fyrir jafn- réttislög 1976 og ný jafnréttislög 1986 sem eiga að tryggja jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Undanfarið hefur þrengt að vinnumarkaðinum, ríkissjóður rek- inn með halla til margra ára. Nú skal spara. En hvar er skorið niður? f heilbrigðis-, mennta- og félagsmál- um. Á hverjum bitnar þetta mest? Konum, sjúkum og öldruðum. Konur eru fyrst sendar heim þegar þrengir að á vinnumarkaðinum. En eins og áður hefur komið fram er efnahagslegt sjálfstæði kvenna grundvöllur jafnréttis, hvað sem öllum lagasetningum líður. Sönn saga í reglum um öldungadeildir er ákvæði um að nemendur geti nýtt sér atvinnuþátttöku eða húsmóður- starf til eininga í óbundnu vali, skv. þar til settum reglum. Kona um fertugt, fjögurra barna móðir, heimavinnandi sl. sjö ár, var að ræða væntanleg námslok sín við skóla- meistara og vildi hún nýta sér þessa heimild. Það var sjálfsagt mál, hún skyldi bara korna með bréf, undirritað af eiginmanni sínum, þessu til staðfestingar. Konan kaus frekar að bæta við sig nokkrum áföngum og seinka þar með námslokum sínum. Greinilegt er að þrátt fyrir allar lagasetningar á mannréttindabarátta kvenna langt í land. • Kvennaklúbburinn innan FBM hefur loksins hlotið nafn og kallast nú KVENNARÁD FBM. Fundirnir verða fyrsta miðvikudag hvers mánaðar í vetur, sá fyrsti þann 6. nóv. n.k. INGIB JÖRG GUÐMUNDS- DÓTTIR OG GUÐRÚN GUÐMUNDS- DÓTTIR PRENTARINN ■ 7

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.