Prentarinn - 01.03.1996, Qupperneq 21
BÓKBINDARAR í HEILDA ÖLD ■■■
Pjeturs þáttur
Gudmundssonar
Pjetur G. Guðmundsson kom mjög
við sögu félagsins árið 1908. Hann
sagði af sér formennsku í félaginu
h'nn 2. júní og var Guðbjörn Guð-
brandsson kjörinn í hans stað með
öllum greiddum atkvæðum. Tæpum
mánuði síðar var Pjetri vikið úr
félaginu! Af einhverjum ástæðum
sem ekki eru kunnar kvaðst Pjetur
ekki undirrita samninga félagsins
sem þá höfðu verið samþykktir
skömmu fyrr, vildi hann fremur láta
’-emangra sig“ innan félagsins.
k’etta sérkennilega mál var rætt á
fjölmennum fundi sem haldinn var
1 Lækjargötu 6 hinn 1. júlí 1908.
Pjetur var ekki meðal fundargesta.
egar umræður höfðu staðið
ðrykklanga stund bar Gísli
kruðmundsson upp tillögu um að
reka Pjetur úr félaginu og var hún
samþykkt í einu hljóði.
Aður en fundargestir héldu heim-
eiðis þá um kvöldið samþykktu þeir
jtð kjósa nýjan fulltrúa til sambands-
Plngs: „töldu fundarmenn það sjálf-
sagt að ekki væri hægt að brúka
Pnnn mann fyrir fulltrúa, sem væri
® ki fjelagi, og vildi ekki neitt með
Pað hafa...“ { hans stað var kjörinn
stján J. Buch. Formanni var falið
3 Pikynna Pjetri þessi merku
hðindi.
jetur G. vildi ekki una þessari
n> urstöðu þegjandi. Beitti hann
a rifum sínum innan Verkamanna-
snmbandsins og fékk því til leiðar
f°mið að hann yrði áfram fúlltrúi
apins- Því vildu bókbindarar
® ' i hlíta og lauk deilunni á því að
uamþykkt var með öllum 12 greidd-
m atkvæðum á félagsfundi hinn
september að Bókbandssveinafé-
1.
•agið
band
1 segði sig úr Verkamannasam-
inu. Var formanni falið að til-
féínnU ^ sanabandsins. Nokkrir
ur f®Smenn 'öldu hag félagsins bet-
/-Sið í samstarfí við danska
ske 'ndara og var Þeim sent heilla-
yti á 35 ára afmælisári þeirra.
t k-'^6tUr ^nðmundsson var
mn 'nn í Bókbindarafélagið á ný
á fundi hinn 9. júní 1909 og tók
hann virkan þátt í störfum þess upp
frá því.
Alþýðusamband íslands
Stofnun Alþýðusambands íslands og
lög þess voru til umræðu á fundi
Bókbandssveinafélags Reykjavíkur
mánudagskvöldið 6. mars 1916.
Þorleifur Gunnarsson, formaður
félagsins, las drög að lögum ASI
fyrir fundarmenn og fór um þau
nokkrum orðum. Að því búnu urðu
töluverðar umræður um málið og
voru fundarmenn „ekki allir á eitt
mál sáttir, en virtust þó allir stefn-
unni fylgjandi að undanskildum
Lúðvík Jakobssyni, sem þó virtist
ekki beint á móti.“ Fundarmenn
gerðu einnig breytingatillögur við
lög ASÍ og umræðunni lauk á því að
Gísli Guðmundsson og Þorleifur
Gunnarsson voru kjömir fulltrúar
félagsins til að annast stofnun ASI,
en þeir höfðu verið tilnefndir af
stjóm félagsins í árslok 1915.
Þorleifur var síðar kjörinn formaður
undirbúningsnefndarinnar.
Bókbandssveinafélagið var eitt sjö
stofnfélaga Alþýðusambandsins.
í nóvembermánuði voru þeir Gísli
Guðmundsson og Guðgeir Jónsson
kjömir fulltrúar félagsins á fyrsta
þing Alþýðusambands íslands þá
um haustið.
Úrsögn úr
Alþýðusambandinu
Sambandsmálið vekur mesta athygli
í þeirri umræðu er fram fór meðal
bókbindara árið 1918. Hinn 10. júlí
komu bókbandssveinar til fundar á
bókbandsvinnustofu ísafoldar og var
þeim heitt í hamsi. Tilefni fundarins
var fundarsamþykkt fulltrúafundar
ASÍ um sambandsmál íslands og
Danmerkur. Eftir miklar og fjömgar
umræður var samþykkt svohljóðandi
tillaga:
Frh. á bls. 22.
Hið íslenska
bókbindarafélag
var stofnað
ll.febrúar 1906 í
kvistherbergi á
heimili Pjeturs G.
Guðmundssonar
á Laugavegi 18.
Þar stendur nú
hús Máls og
menningar.
PRENTARINN ■ 1 7