Prentarinn - 01.03.1996, Blaðsíða 24
STARFSMANNAFÉLÖG
Starfsmannafélagid SSG
Jrentarinn fór á stúfana og hitti fyrir fulltrúa
Starfsmannafélags Steindórsprents-Gutenbergs
(SSG) og komst að raun um að þar er blómlegt
félagslíf.
Félagið var stofnað í kringum 1932 og er
sennilega eitt elsta starfandi starfsmanna-
félag í prentsmiðjum landsins.
Starfsemin hefur verið nánast óslitin frá
upphafi og vaxið stöðugt eftir því sem árin
hafa liðið. Fjöldi starfsmanna er u.þ.b. 75 og
stjóm starfsmannafélagsins skipa: Hörður Bjamason,
Björgvin Pálsson og Stefán Hjaltalín.
Helstu verkefni félagsins eru árshátíðarhald, gefið er út
árshátíðarblað, staðið fyrir leikhúsferðum, ferðalögum,
jólaglögg og mannfagnaði ef tilefni gefast til. Starfsmanna-
félagið greiðir einnig hlut í Mætti fyrir félagsmenn sína og í
leigu á íþróttasal yfir vetrarmánuðina. A árshátíðum standa
starfsmenn gjarna fyrir skemmtiatriðum frekar en að fá
aðkeypt efni. Þetta hefur frekar eflt félagsandann en hitt.
Myndir frá ýmsum viðburðum tala sínu máli.
Þátttakan í hinum ýmsu uppákomum félagsins hefur verið
góð og hefur aukist jafnt og þétt eftir því sem starfsemin
hefur aukist en reynt er að láta félagsstarfið höfða til sem
flestra aldurshópa. Það gefur augaleið að eftir því sem
fyrirtækin stækka eykst aldursdreifíng starfsmanna.
Steindórsprent-Gutenberg tekur vemlegan þátt í kostnaði
vegna árshátíðar og eins er matsalurinn gjarnan lánaður
undir ýmsar uppákomur innan fyrirtækisins. Sömuleiðis
hefur skilningur og velvild ráðamanna fyrirtækisins vaxið
gagnvart öflugu félagsstarfi starfsmanna. •
Steindórsprent-Gutenberg hf.
\
j
20 ■ PRENTARINN