Prentarinn - 01.03.1996, Qupperneq 26

Prentarinn - 01.03.1996, Qupperneq 26
FRÉTTIR Adalfundur NGU 10.-13. júní 1996 Nordisk Grafisk Union hélt sitt 20. þing í Gautaborg, Svíþjóð, dagana 10. til 13.júní 1996, fulltrúar FBM voru Sœmundur Arna- son og Svanur Jóhannesson. Túlkur var Magnús Eiitar Sigurðsson. SÆMUIMDUR ÁRNASON Aðalmálefni þessa þings auk venjubundinna aðalfundar- starfa voru jafnréttismál, margmiðl- un, rafeindaprentun og sjálfstæðara Evrópusamband. Þar sem þetta var jafnframt 20 ára afmælisþing voru nokkrir góðir gestir á þinginu úr fyrstu stjórn NGU, þeir Kjell Christofferssen, Ake Rosenqvist og Henning Bjerg. Frá síðasta aðal- fundi hafa starfað nefndir um jafnréttismál og rafeindaprentun og skiluðu skýrslum til aðalfund- ar. I skýrslu um jafnrétt- ismál var m.a. tillaga um að stofna tenginet kvenna á Norður- löndum. Sú hug- mynd fékk ekki hljóm- grunn á þinginu, en ákveðið var að vinna skýrsluna áfram og afla frekari gagna um stöðu kvenna innan félaganna, jafnframt var lagt til að halda ráðstefnu um jafnréttis- mál á næsta ári. Viðamikil skýrsla um rafeindaprentun lá fyrir þinginu, en í henni var fjallað um stöðu og þróun þessarar nýju prenttækni. I skýrslunni kom fram að hröð þróun er í rafeindaprentun í Danmörku, lögð er áhersla á að þetta sé ný prentaðferð sem sé eðli- legt framhald í örri þróun í prentiðn og huga þurfi vel að endurmenntun- arþættinum og að þeir sem vinna við rafeindaprentun séu grafískir félag- ar. Margmiðlun ryður sér til rúms á prentmarkaði og þar eru margir starfshópar sem gera tilkall. Brýnasta verkefni aðildarfélaga NGU er að mennta félagsntenn til nýrra verkefna. Innan EGF verður myndaður starfshópur um marg- miðlun og var samþykkt að Anders Skattkjær frá Noregi verði fulltrúi NGU í því starfi. NGU hefur haft forgöngu í því að leysa þann ágrein- ing er varð milli EGF og IGF og frá síðasta þingi EGF hefur starfað nefnd undir forystu Finn Eriks formanns NGU er lagði fram skýrslu um gang mála. Miklar umræður urðu um skýrsluna og taldi þingið að rétt væri að styrkja stöðu EGF með því að hafa sér skrifstofu óháða IGF með eigin aðalritara. Endanleg skýrsla þessa starfshóps verður lögð fyrir ársfund EGF síðar á þessu ári. Fjárhagur NGU er mjög góður þrátt fyrir nokkra fækkun félagsmanna. I sjóði NGU eru nú um 15 milljónir s.kr. og tekju- afgangur á árinu 1995 varð 291.000 s.kr. Fyrir þinginu lágu tvær lagabreytingar, önnur um lækkun félags- gjalda, er var vísað til stjórnar, en hin um að veita sérstaka viðurkenn- ingu til vinnuvemdar innan NGU. NGU hafa verið einu samtökin auk þýsku samtak- anna sem hafa veitt fé í samstöðu- sjóð IGF. Nú var ákveðið að við sæjum sjálfir um að veita styrki til alþjóðlegs hjálparstarfs og samþykkt að setja 100.000 s.kr. í alþjóðlegt hjálparstarf. Samþykkt var að halda ráðstefnu síðar á árinu um hlutverk NGU í evrópsku og alþjóðlegu sam- starfi. Næsti aðalfundur NGU verð- ur haldinn í Noregi í júní 1997. • Frh afbls. 17. Bókbandssveinafjel. Reykjav. ályktar hjer með að segja sig úr Al- þýðusambandi Islands af þeim ástæðum, að samkvæmt Dagsbrún 9. júlí hefur verið samþykt ályktun á fulltrúafundi sambandsins laug- ard. 6. júlí, sem fjelagið álítur að spilli fremur en bæli fyrir afdrifum samninga þeirra er nú standa yfir milli Islendinga og Dana og að sambandsstjómin hefur sent hátt- virtu Alþingi nefnda ályktun, án þess að hún væri borin undir fjelög þau sem eru í sambandinu, til um- sagnar, áður en hún fór lengra. Ekki voru allir fundarmenn sáttir við þessi málalok. Guðgeir Jónsson, formaður félagsins, vildi ekki una þessum niðurstöðum og lét af formennsku og sagði sig jafnframt úr félaginu. Guðbjöm Guðbrandsson tók þá við formannsstörfum. Guðgeir gekk á ný í félagið á næsta félags- fundi er haldinn var í októbermánuði 1918. Bókbandssveinafélagið sótti á ný um aðild að ASÍ árið 1920 og var tekið inn í sambandið í lok maí- mánaðar það ár. Bókbindarar störfuðu ötullega innan Alþýðusam- bandsins upp frá því og allt þar til félagið gerðist aðili að Félagi bóka- gerðarmanna. Þá er þess að geta að formaður Bókbindarafélagsins, Guðgeir Jónsson, var kjörinn forseti ASÍ haustið 1942. • 2 2 ■ PRENTARINN

x

Prentarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.