Prentarinn - 01.01.1999, Blaðsíða 18
I I I I I I I I
80
I I I I I | .1 I I . I I I H I I | I
i'n . -r
90
i r roo
I I I I I 1 I I I I I I I
110
I * '
1 20
i i i i i i i
1 30
i I i i i t |
t i i i I t t t
140
I ' '
1 50
ISgiiiIíIiliMigilPgliilililliIiIililQiSiOiIiIiiIliIitlröiIiIiliiHiliiiiiMiui. 1.1 i i i i hn : n i i'rilif®©ri5lai*ii
7,0 8,0 9,0
■ 't < I ■ ■ < ■ I I I I I I I I I I I I : 1 I I I I I I I | I I I
I I I I I I
1.00 . *
1,10
I I I I I I
.1,20
I I I I I I I
Hver er reynsla þín af því?
• Góð, menn vinna bara í því sem þarf að gera
og síðan gengur það í félagið ef á þarf að
halda.
• Ekki alltof góð, árangurinn ekki mikill í
sambandi við innanhússamninga.
• Finnst aldrei koma neitt út úr því og vísað
eitthvað annað. Varðandi öryggismál þá vilja
þeir ekki að félagið taki á því.
Hvað Jinnstþér um félagsstarfið?
• Ég held að það sé ekki þeim að kenna, sem
stjórna félagsstarfinu, hvað samkomumar em
illa sóttar. Það er meira tíðarandinn. Þeir
brydda upp á ýmsu.
• Finnst ekki mikið um það. Ahugi minn og
vinnufélaga minna er ekki mikill. Maður
mætir ekki og enginn biður mann að koma
með sér.
• Gott, þeir era virkir í að gera hluti sem þarf
að gera.
• Hef sótt kvennafundi, sem eru mjög gott mál.
Hvað finnst þér um þá valmöguleika sem
félagið býður uppá íorlofsmálum?
• Allt í lagi. Finnst þó vanta heita potta og þess
háttar til að þeir nýtist betur yfir veturinn.
• Frábært. Þetta eru góðir staðir allt saman,
hafa verið með bústaði á Húsavík. Mættu
kannski vera með þetta dreifðara um landið.
• Góðir, en ég vil endilega að það verði fengið
heitt vatn á þetta svæði. Þótt það kosti mikla
peninga skilar það sér seinna.
• Mjög góðir, þótt ég hafi getað leitað annað.
Mér fyndist að þeir gætu líka boðið upp á
orlofshús á sólarströnd sem nýbreytni.
Gæti verið í gangi allt árið.
• Vantar uppá, hef sótt nokkrum sinnum um
hús en aldrei fengið.
Hefur þú orðið var við launaskrið
undanfarið ár?
Telur þú að félagsmenn elgl að taka ákvarðanir
um mikilvæg málefni á félagsfundum eða ætti
að fela kjörnum fulltrúum félagsins að taka allar
ákvarðanir fyrir félagsmenn?
• Það er ágætt eins og er, nema þeir mættu
vera með fleiri bústaði á fleiri stöðum.
Einhvers staðar annars staðar en inni í Miðdal
þar sem rignir alltaf.
Hvað getur forysta félagsins gert
tilþess að bœta tengsl sín við félagsmenn?
• Eins og málum er háttað í dag er það ekki
hægt öðm vísi en að heimsækja vinnustaðina
reglulega. Venjulegir félagsfundir eru fásóttir.
Hún verður að leita út enn meira en hún
hefur gert.
• Ekkert sérstakt, ég er bara mjög ánægð með
þetta félag.
• Erfítt að eiga við það. Þótt þeir séu góðir
menn þá ná þeir ekki til félagsmanna því þeir
em svona útaf fyrir sig. Við röflum en gemm
ekkert í staðinn til að styðja við bakið á þeim.
• Fáir menn sem starfa þama og margar
smiðjur. Gerðu ekki annað ef þeir ætluðu að
heimsækja allar. Með aukinni fundarsókn
myndu tengslin batna. Þyrfti að liggja vel
yfir þessu.
• Koma oftar norður og kannski gera eitthvað
saman hér fyrir norðan.
• Þeir gera það með styrkjum og hlutum sem
stuðla að því að fólkið leiti til þeirra. Iþrótta-
styrkir, námskeiðastyrkir o.fl. og fólkið kemur
meira við.
Hvernig líkar þér við
Prentarann, málgagn félagsins ?
• Hann hefur stórbatnað. Síðasta tölublað var
alveg til fyrirmyndar faglega séð.
• Mjög gott. Mikill styrkur að því og skapar
ákveðinn sjáanleika.
• Mjög vel, fínt, það svona tekur á því sem
þarf að taka á í faginu og ekkert mikið
ritskoðað málgagn.
• Vel - sérstaklega seinni blöðin. Vil fá að vita
hvað er mikið prentað hér á landi. Tæknilegir
hlutir. Ekki um ferðir til útlanda. Vil fá
upplýsingar úr bransanum, hvað er vel gert.
Hvað gengur og hvað menn eiga að varast.
• Æ, ég verð nú að segja að þó hann detti hér
inn um lúguna þá fer hann með öðru í ruslið.
Það er helst ef maður sér að verið er að
auglýsa námskeið að maður líti í hann, en þá
er það vísast í Reykjavík, svo það hefði mátt
spara sér að opna hann.
Finnst þér eitthvert efni vanta
íPrentarann eða einhverju vera ofaukið?
• Líkar vel að félagsmenn skrifi í blaðið um
kjaramál.
• Mest að hafa ekki greinar of langar til að
menn nenni að lesa þær.
• Það er svolítið einsleitt. Þetta er fagblað en
það em líka svo margir ófaglærðir í þessu
félagi. Þetta má alveg koma fram. Það virðist
vera breytt stefna hjá fyrirtækjunum. Aður var
lagt upp úr því að hafa góða starfskrafta sem
gátu gert við vélarnar sjálfir, nú virðast þeir
bara vilja hafa einhverja meðaljókera á sem
lægstum launum. Þetta er, held ég, breyting
sem kemur með háskólamenntuðu fólki inní
fyrirtækin, fólki sem setur allt gildi á pening-
ana, en ekki mannskapinn og hæfni hans.
Lestu fréttabréfin?
Hvernig finnst þér þœr upplýsingar
skila sér sem félagið sendir frá sér?
• Best það sem er sent í pósti, þær sem era
hengdar upp fara gjaman fram hjá manni.
Hef farið einu sinni inná heimasíðuna.
Svo væri hægt að senda tölvupóst á fyrirtæki
og einstaklinga, ef það væri hægt að
koma því við.
• Skilar sér ekki alveg nógu vel, mættu vera
virkari að minna á tilkynningar og þess háttar
og vera meira í sambandi. Mættu ýta meira á
menn að mæta á fundi og þess háttar, vera
virkari í að ýta við félagsmönnum.
18« PRENTARINN