Prentarinn - 01.01.1999, Blaðsíða 16

Prentarinn - 01.01.1999, Blaðsíða 16
Inngangur Könnun þessi fór fram í janúar og febrúar 1999. Könnunin var gerð símleiðis með viðtölum sem byggðust einkum á opnum spumingum. Þess var ávallt gætt í byrjun samtals að skýra viðmælendum frá því að könnunin væri gerð til að felagið gæti bætt starfsemi sína og þjónað betur þörfum félags- manna. Rætt var við 100 manns sem valdir vom af handahófi úr félagaskrá FBM. Könnunin beindist að ímynd félagsins í hugum félagsmanna og hinum ýmsu þáttum starfseminnar sem snúa að þeim. f skýrslu þeirri sem fylgir hér á eftir eru dregnar saman helstu niðurstöður hvað varðar hverja spumingu fyrir sig. Gerð er grein fyrir svömm með köku- og súluritum, en einnig fylgja hverri spumingu allmörg ummæli, sem lýsa nánar viðhorfum þeirra sem svömðu. Hver finnst þér vera helsti styrkur Félags bókagerðarmanna? Lítill/enginn styrkur, 25% Þjónustan/réttindin, 26% Stórt/sterkt félag, 16% Samstaöan, 23% á við - horfum félags manna Hverjar finnst þér vera veikar hliðar félagsins? Enginn veikleiki, 16% Annað, 7% Utan sambanda, 4% Áhugaleysi, 7% Staða fagmanna, 7% Kjarabaráttan, 44% Tengslaleysi, 15% Hver er reynsla þín af þjónustu FBM? Leitarðu til trúnaðarmanns með úrlausn þinna mála? Hver er reynsla þín af því? Mjöggóð Góð Sæmileg Ábótavant Samantekt Fremur hátt hlutfall aðspurðra hefur ekki svör við spumingunni um sterkar og veikar hliðar félagsins. Þetta bendir til þess að félagið standi mörgum félagsmönnum ekki nærri og eitthvað skorti á tengsl þeirra við félagið. Um þriðjung- ur aðspurðra hafði ekki svör við spumingunni um sterkar hliðar og fjórðungur þeirra sem afstöðu tóku kvað það engar sterkar hliðar hafa. Þeir sem tjáðu sig um styrkleikann töldu til þjónustuna, samstöðuna og félagsandann svo og stærð félagsins og sögu þess. Rúmur fjórðungur hafði ekki svör þegar spurt var um veikar hliðar og einn sjötti hluti þeirra sem afstöðu tóku taldi að félagið hefði engar veikar hliðar. Þeir sem tjáðu sig að öðru leyti um veikar hliðar félagsins töldu flestir að þær fælust í slakri kjarabaráttu. Þeir félagsmenn sem tóku þátt í þessari könnun eru yfirleitt ánægðir með þjónustuna og viðmót starfsmanna félagsins. Em starfsmennimir gjarnan taldir hjálpsamir og tilbúnir að leysa úr málum félagsmanna. Mjöggóð Góð Sæmileg Ábótavant Hvernig líkar þér viðmót starfsmanna? Mjög vel Sæmilega Aðeins um fjórðungur aðspurðra kvaðst leita til trúnaðarmanns með úrlausn mála en þeir sem það gerðu vom þokkalega ánægðir með reynslu sína af því. Ymsar athugasemdir koma fram í sambandi við félagsstarfið og beindust þær einkum að þeirri félagslegu deyfð og þátttökuleysi sem ríkir. Félagsmenn senda forystu félagsins skýr skilaboð þegar spurt er hvemig hún geti bætt tengsl sín við þá. Um þrír fjórðu aðspurðra telja að það eigi að gera með því að forystan heimsæki vinnustaðina og haft þar bein samskipti við félagsmennina. Þátttakendur eru greinilega ánægðir með Prentarann, málgagn félagsins, og mörgum finnst að hann hafi farið batnandi. Ljóst er að fréttabréf, tilkynningar og annað Ifæðsluefni berst greiðlega til félagsmanna og er yfirleitt iesið. Fram kemur að margir vita ekki um heimasíðu FBM og fáir virðast hafa aðstöðu til þess að tengjast henni. Þrír fjórðu þeirra sem afstöðu tóku til spurningarinnar um hvaða áherslur væru mik- ilvægastar í næstu kjarasamningum töldu að það ættu að vera launahækkanir. Tæplega sex af hverjum tíu tóku afstöðu til endurmenntun- 1 6 ■ PRENTARINN

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.