Prentarinn - 01.01.1999, Blaðsíða 9
Ásdís ívarsdóttir
I Starfsmannafélagi
Asprents/POB renna saman tvö
félög, og sama máli gegnir um
fyrirtækið.
Starfsmannafélag POB var
stofnað árið 1957 og var starfrækt
í 40 ár á hefðbundinn hátt með
árshátíðum, þorrablótum, spila-
kvöldum og sumarferðalögum og
síðustu árin var gefíð út mánaðar-
legt innanhússblað. Nítján
hundruð og níutíu var Starfs-
mannafélag Asprents stofnað og
starfaði með hefðbundnu sniði þar
til 1995 erfélögin sameinuðust
með samruna POB og Asprents.
Síðan þá hafa verið árvissar
árshátíðir með margvíslegu sniði.
Við höfum tekið litla sali í bænum
á leigu og yfirleitt reynt að vera út
af fyrir okkur. I fyrra fórum
við í rútu í stórhríðar-
veðri austur á Húsa-
vík og héldum árs-
hátíð okkar á
hótelinu þar og
gistum náttúr-
lega á staðnum.
Þessi árshátíð
mæltist sérlega vel
fyrir og var vel sótt.
Skemmtiatriði hafa
alltaf verið heimatilbúin og
þykir það sjálfsagt á þessum bæ.
Þar eru t.d. annálar, leikþættir og
söngvar með heimatilbúnum
textum. Allt upp á grínið að sjálf-
sögðu. Utiveislur að sumri eru
árvissar orðnar fyrir alla fjöl-
skylduna. Þá er jafnan glóðar-
steikt lamba- eða svínakjöt á
boðstólum. Farið er í leiki og
sungið við gítar- eða harmoniku-
undirleik. Oft fer þetta fram suður
í Kjamalundum, sunnan Akur-
eyrar, eða við siglum um fjörðinn
okkar og skreppum í land á
góðum stað til að glóða kjötið.
Eitt sumarið fórum við í
gúmbátaslark hjá fyrirtækinu
Hestasporti í Skagafirði. Þá sigld-
um við niður Blöndu og vorum
ýmist í bátunum eða syntum bara
með þeim niður ána. Fórum upp í
kletta og stukkum út í og lékum
okkur á ýmsa lund. I ferðinni
skoðuðum við Blönduvirkjun.
Þetta endaði svo með matarveislu
á Vindheimamelum í Skagafirði.
Stöku sinnum finnum við svo
tilefni til að koma saman og halda
skemmtikvöld á einhverjum
góðum stað á Akureyri. Allt þetta
er vel til þess fallið að efla sam-
heldni og gott þel með starfsfólki.
Félagar í Starfsmannafélagi
Ásprents/POB eru 41 og senda
þeir kollegum um land allt
bestu kveðju.
mH