Prentarinn - 01.09.2002, Side 2

Prentarinn - 01.09.2002, Side 2
Látnir lélagar Þór Ingólfsson, fæddur 16. mars 1940. Varð félagi 11. mars 1963. Hóf nám í Prentsmiðju Björns Jónssonar, tók sveinspróf í prentun 1961 og í offsetprentun 1981. Starfaði síðan í Hilmi og Guten- berg frá 1973. Þór lést þann 1. maí 2002. Steinunn Þorvaröardóttir, fædd 23. október 1917. Varð fé- lagi 1. október 1970. Hún vann aðstoðarstörf í Leiftri frá 1968 til 1984. Steinunn lést þann 26. júlí 2002. Baldvin Helgi Einarsson, fæddur 31. ágúst 1915. Varð félagi 1. desember 1935. Hóf nám í Gutenberg 1931 og tók sveinspróf í setningu í desember 1935. Starfaði í Gutenberg til 1942 en fór þá til starfa í Kanada og vann hjá Columbia Press í Winnipeg til 1946. Síðan hjá Morgunblaðinu til 1959 og í Gutenberg til 1985 er hann lét af störfúm sökum aldurs. Baldvin lést þann 12. júní 2002. Steingrímur Thorsteinsson, fæddur 15. nóvember 1920. Varð félagi 11. júlí 1949. Hóf nám í Félagsprentsmiðjunni 1945 og tók sveinspróf í prentun 2. júní 1949. Steingrímur starfaði við iðn sína m.a. hjá Félagsprentsmiðjunni, Stórholtsprenti, Odda, Kassagerð- inni og síðustu árin hjá Gutenberg þar til hann lét af störfum 1987. Steingrímur lést þann 11. ágúst 2002. Matthildur Guömundsdóttir, fædd 11. janúar 1925. Varð félagi 1. mars 1974. Matthildur vann að- stoðarstörf í bókbandi í prent- smiðju Jóns Helgasonar og síðan í Gutenberg þar til hún lét af störf- um sökum aldurs 1994. Matthild- ur lést þann 12. ágúst 2002. Þáll Arnar Guömundsson, fæddur 30. ágúst 1950. Varð fé- lagi 4. nóvember 1974. Hóf nám í prentsmiðjunni Eddu 1970 og tók sveinsprófí setningu 1973. Páll starfaði alla tíð við iðn sína, m.a. í Odda, Frjálsri ljölmiðlun og hjá Morgunblaðinu, þar til hann lét af störfum sökum veikinda 1. janúar 2002. Páll lést þann 18. júní 2002. Jón Már Þorvaldsson, fæddur 9. desember 1933. Varð félagi 10. október 1953. Hóf nám í Prentsmiðju Jóns Helgasonar í október 1950 og tók sveinspróf í setningu 11. júní 1955. Jón starfaði m.a. hjá Þjóð- viljanum, Odda, Skákprent og Félagsprentsmiðjunni, þar til hann lét af störfum sökum veikinda 1992. Jón var í trúnaðarráði HÍP og gjaldkeri árin 1964-1966. Var meðritstjóri Prentarans 1962 til 1964 og var unt árabil í félags- heimilanefnd. Jón lést þann 27. september 2002. Jóhann Guömundsson, fæddur 28. september 1944. Varð félagi 1. janúar 1968. Hóf nám í offsetprentun í Litbrá 1964 og tók sveinspróf 1967. Jóhann starfaði alla tíð við iðn sína, m.a. í Grafík, Umbúðamiðstöðinni, Fjarðar- prenti og prentsmiðjunni Eddu frá 1977 til 1988. Hjá prentdeild Samvinnubanka/Landsbanka sem forstöðumaður á árunum 1988 til 1994. Jóhann var starfsmaður í Svansprenti síðustu árin. Frá 1968 til 1980 starfaði Jóhann einnig að félags- og trúnaðarstörfum fyrir Offsetprentarafélagið og sem varaformaður í stjórn Grafíska sveinafélagsins 1977 og 1978. Jóhann var í prófnefnd í offset- prentun í 9 ár og formaður próf- nefndar í 6 ár. Þá var Jóhann í sameiningarnefndinni er vann að stofnun Félags bókagerðarmanna. Jóhann lést þann 19. júní 2002. Þentti Levo, formaður finnska félagsins frá 1981 til 2001 og stjórnarmaður í Nordisk Grafisk Union frá 1976 til 2001 lést þann 13. júní 2002. 2 ■ PRENTARINN

x

Prentarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.