Prentarinn - 01.09.2002, Qupperneq 4

Prentarinn - 01.09.2002, Qupperneq 4
Þorpið „Heimur" er sífellt að mitmka og vegalengdir að styttast, segja menn og nota tœkifcerið og ferðast sem víðast, annað hvort í skemmtatialeit eða til að mennta sig. Út utn allar trissur eru íslendingar og meira að segja bókagerðar- tnenn Itka. Einn afjteim er Davíð Halldórssott en hatm er í námi í Ástralíu, náttar tiltekið í Queensland, í skóla sem heitir Queensland University of Teclmology. Davíð er Jtartta ásamt unn- ustu sinni en tuín er Marín Magnúsdóttir og er í sama skótla og hann en á annarri braut. Hún er í BS-námi í viðskiptafrœði tneð sérhœf- ittgu í almannatengslum og starfsmannastjórnun. Ég spjallaði við Davíð á Netinu fyrir stuttu og eins og söttn- unt íslendingi sœmir byrjaði ég á jtví að spyrja hann um veðrið. - Hvernig er það, er ekki hávetur þarna hjá ykkur núna? „Jú það er víst vetur ef vetur má kalla, hitinn er venjulega i kringum 20 gráður á daginn en hann getur farið niður í 8 gráður á kvöldin sem er mjög kalt að mati innfæddra. Annars held ég nú að fyrir venjulegan Islending þætti þetta nú ekki vera vetur heldur bara gott sumar. Þetta er samt töluverður munur frá desember en þá er hásumar og var hitinn þá oftast í kringum 40 gráður þannig að jólafötin voru stuttbuxur og hlýrabolur. Dagarnir undanfarið hafa verið mjög góðir og hefúr t.d. ekki verið ský á himni sein- ustu 2 vikur, og hitinn oftast í kringum 20 gráður. En annars eru nú veturnir oftast mildir og góð- ir.“ - Ertu ekki búinn að vera á flakki um heiminn undanfarin ár? „Ég hef alltaf haft gaman af því að ferðast og hef reynt að gera eins mikið af því og mögulegt er og haföi nú hugsað mér að reyna að nota tækifærið á meðan ég er í námi hérna og reyna að ferðast eitthvað um Asíu, já og auðvitað Ástralíu, ef efni og aðstæður leyfa.“ - Af hverju valdirðu Ástralíu? „Eftir að ég kláraði nám mitt í Margmiðlunarskólanum þá kvikn- aði sú hugmynd að fara út í frekara nám og fór ég þá að skoða hvaða tækifæri ég haföi varðandi háskólanám. Það er gaman að segja frá því að það nám sem ég stundaði í Margmiðlunarskólan- um hjálpaði mér óumdeilanlega mikið við að sækja um og fá inn- göngu i þann skóla sem ég er í núna og langar mig að þakka öll- Texti: Jakob V. Cubmundsson um í Margmiðlunarskólanum fyr- ir ómetanlega aðstoð og fyrir frá- bært nám. En varðandi skólann sem ég valdi þá var ég með nokkra skóla í huga sem voru staðsettir víðsvegar um heiminn, en þegar kom að því að velja stóð Ástralía uppúr, helstu ástæðumar voru að skólinn bauð uppá það nám sem mig langaði í og ekki spillir fyrir allt það sem Ástralía hefúr uppá að bjóða, það er að segja frábært veður, opið og skemmtilegt fólk, landslag og fjölbreytta menningu. Auk þess hafði ég ferðast um Ástralíu í nokkra mánuði árið 1998 og skoðað meðal annars skólann sem ég er í núna þannig að ég vissi svona hvað ég var að fara út í. Það spilaði líka stórt hlutverk að mig langaði til að læra í ensku- mælandi landi og af þeim löndum sem ég skoðaði hafði Ástralía vinninginn varðandi skólagjöld og uppihald. Þessir hlutir eru frekar hagstæðir samanborið við Eng- land og Bandaríkin en samt sem áður of dýrir." - Hvenær útskrifaðist þú frá Margmiðlunarskólanum? „Ég útskrifaðist frá Margmiðl- unarskólanum í lok árs 2001 eftir eins árs nám í vefsíðugerð. Ég gat valið um dag- eða kvöldskóla til að stunda námið og valdi ég kvöldskóla þannig að ég gat umi- ið með náminu á daginn sem var nú ein af ástæðunum fyrir því að ég lét verða af því að fara i Marg- miðlunarskólann. Það var nú stundum erfitt að tvinna saman skólann og vinnuna en sem betur fer þá hafði ég mjög skilningsríka atvinnuveitendur sem komu til móts við mínar þarfir, þannig að þetta lukkaðist þó svo að þetta væri stundum frekar erfitt. Námið sem ég stundaði í Margmiðlunarskólan- um var einstaklega skemmtilegt og fjölbreytt, en það skiptist þannig að fyrrihluta árs var farið yfir og lært á helstu forrit er not- uð eru við vefsíðugerð auk þess sem við fengum kennslu varðandi útlitshönnun og fleira sem tengist vefsíðugerð og hönnun. Seinni helmingur námsins fór svo í að læra forritun fyrir vefinn auk þess sem unnið var í loka- verkefni jafnt og þétt i gegnum 4 ■ PRENTARINN

x

Prentarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.