Prentarinn - 01.09.2002, Qupperneq 17
Ársfundur Nordisk Grafisk
Union var að þessu sinni
haldinn á íslandi dagana
9.-12. júní 2002. Fulltrúar
FBM á þinginu voru þeir
Sæmundur Árnason og Ge-
org Páll Skúlason. Auk þess
sátu þingið sem áheyrnar-
fulltrúar þau Bragi Guð-
mundsson, Hrefna Stefáns-
dóttir, Vigdís Ósk Sigurjóns-
dóttir og Þorkell S. Hilmars-
son. Magnús Einar Sigurðs-
son var túlkur sem oft áður.
Pá sat Stefán Ólafsson þing-
ið sem starfsmaður og sá
hann um að þinghaldið
gengi samkvæmt áætlun.
Erlendir þingfulltrúar voru
25. Að þessu sinni var full-
trúum gefinn kostur á að
taka maka með í íslandsferð
og voru þeir 16.
Að kvöldi 9. júní var kvöld-
verður með öllum þingfulltrúum
og þingstörf hófust síðan að
morgni 10. júní. Þar sem makar
voru með var sett upp dagskrá
fyrir þá og var farið í tvær útsýn-
isferðir, annarsvegar um Reykja-
vík og á þriðjudag austur að
Stokkseyri.
Aðalfundur NGU var settur kl.
10.00 að morgni 10. júní með
ávarpi formanns NGU, Malte
Eriksson. Þinghald hófst síðan
með kynningu á þingfulltrúum og
farið var yfir dagskrá er var sam-
þykkt. Malte gat þess að undir lið
tvö, lagabreytingar, lægi ekkert
fyrir en á næsta ári yrði væntan-
lega um lagabreytingar að ræða.
En fram hefur komið ábending
frá endurskoðendum um að rétt
væri að starfsárið fylgdi reikn-
ingsárinu og því mun verða lögð
fram lagabreyting á næsta ári í þá
veru.
Því næst var kosin kjörnefhd og
þar var fulltrúi FBM Georg Páll.
Skýrsla stjórnar fyrir síðasta
starfsár var næst til umijöllunar
en engar athugasemdir voru gerð-
ar við hana utan smávægilegra
orðalagsbreytinga. Skýrsla stjórn-
ar var þá samþykkt. í skýrslu
stjórnar kom einnig fram að veru-
leg fækkun er á meðlimatjölda á
milli ára og hefur fækkað í NGU
um 5.610 meðlimi frá árinu 2000.
í reikningum NGU kom fram að
reikningar eru í mínus fyrir síð-
asta ár og er rekstrarhalli 327.000
s.kr. En með ýtrasta aðhaldi í
rekstri, fækkun stjórnarfunda og
styttri fundum og ráðstefiium er
reiknað með að jafnvægi náist á
árinu 2004. A næsta starfsári voru
samþykktar tvær ráðstefnur, þ.e. í
umbúðaiðnaði á þessu ári, og að
umbúðaiðnaðurinn hefði for-
göngu á næstu árum, og á árinu
2003 yrði ráðstefna um kjara-
samninga.
Malte lagði mikla áherslu á að
þessar tvær ráðstefnur væru nokk-
uð samtvinnaðar því að í um-
búðaiðnaði væri mikill vöxtur og
þar væri mikið verk óunnið í
kjarasamningsbundnum ákvæð-
um.
Malte lagði fram ffá stjórn
vinnuáætlun NGU fyrir starfsárið
2002-2003 en þar mun megin-
áhersla verða lögð á eftirfarandi
punkta:
• NGU skal vinna á móti öllum
undirboðum á félagslegum
grundvelli.
• NGU skal vera í forsvari fyrir
félögin í Evrópu- og alþjóða-
samstarfi.
• NGU skal starfa með það að
markmiði að kynna starfsemina
sem eina heild.
• NGU skal starfa með það að
meginmarkmiði að kynna nor-
ræna módelið í verkalýðsmál-
um á alþjóðavettvangi þannig
að NGU sé sterkur málsvari
norrænna félaga.
• NGU skal vera sá aðili er
starfar að faglegum málefnum
innan Norðurlanda, það er best
gert á eftirfarandi hátt:
• Hvetja til menntunar trúnaðar-
manna.
• Stofna vinnuhóp um alþjóða-
samstarf.
• Vinna að möguleikum á sam-
eiginlegum norrænum samn-
ingum án tillits til landamæra.
• Færa inn stöðugar upplýsingar
um ráðstefnur, þing og þátttak-
endur til að vinna að félagslegri
starfsemi.
• A næstu tveim árum skal vinna
af fullum krafti að faglegum
málefnum í umbúðaiðnaði.
Arsfundurinn samþykkti fram-
lagða vinnuáætlun.
Aðildargjöld voru næst á dag-
skrá og var samþykkt óbreytt ár-
gjald sem er 16 s.kr. á hvern
starfandi félagsmann.
Næst á dagskrá voru skýrslur
landanna. Danmörk lagði meginá-
herslu á jafnrétti til launa, en ekki
hefði náðst nægilegur árangur í
jöfnum launum milli kynja og þá
hefði reglum um trúnaðarmenn
verið breytt í andstöðu við félag-
ið.
Finnland skýrði frá því að á
næsta ári rynnu kjarasamningar út
og því yrði starfið á næsta ári um
nýja kjarasamninga og þar yrði
megináherslan lögð á aukið orlof.
Þá er atvinnuleysið mikið vanda-
mál. Svíar skýrðu frá stöðu við-
ræðna við SEKO og Rafiðnaðar-
menn sem eru núna runnar út í
sandinn, þar sem SEKO vildi ekki
leggja niður sín sérsambönd. At-
huga á í ágúst hvort framhald
verði á viðræðum.
Noregur skýrði frá nýgerðum
samningum en þar varð 3%
hækkun á lægstu launum. Fulltrúi
Færeyja gerði grein fyrir stöðu
síns félags, sem er í miklum
vanda en nú eru 38 félagsmenn í
PRENTARINN ■ 17
færeyska félaginu og steíiia þeir
að sameiningu við önnur félög,
því ekki er hægt að halda úti
virkri starfsemi með svo fáa fé-
lagsmenn.
Hans Karlson frá LO í Svíþjóð
var fyrirlesari með sérstakt inn-
legg:
Hver hefur valdið yfir vinnu-
markaðinum?
Hans kom víða við í fyrirlestri
sínum, gat þess meðal annars að
Norðurlöndin væru ein sterkasta
heildin þar sem við værum með
mesta félagafjöldann eða um
90%.
Því værum við með sterkasta
félagslega aflið. Til að efla okkar
sterku stöðu yrðum við að leggja
mikla áherslu á menntunarmálin,
því menntun skapar sterka stöðu.
Þá gat hann þess að ESB væri
staðreynd sem við yrðum að
vinna með, verkalýðshreyfingin
yrði að taka tillit til ESB, því það
væri ekki raunhæft að hægt væri
að komast út úr ESB. Norrænn
heildarsamningur er vandamál því
allir munu vilja styrkja sína stöðu
eða síns félags í launaþróun. Hans
vildi meina að bein tengsl væru á
milli launahækkana og verðbólgu
og að aukin afskipti stjórnmála-
manna af launamálum veiktu
hreyfinguna, þeir stefndu að því
að veikja verkalýðshreyfinguna
og tilskipanir ffá ESB um vinnu-
markaðinn væru af sömu rótum
og veiktu félögin.
Þá var gengið til stjórnarkosn-
inga og verður stjóm NGU
óbreytt, þ.e. Malte Eriksson for-
maður, Pertti Raitoharju varafor-
maður, aðrir í stjórn þeir Roger
Anderson og Bjarne Nielsen.
Fulltrúar NGU í aðalstjóm UNI-
International þeir Bjarne og
Pertti. Þá var formaður FBM kos-
inn annar varafulltrúi í stjórn
UNI.
í stjórn UNI-Grafisk Pertti
Raitoharju og í stjórn UNI-
Europa Malte Eriksson.
Þar sem Malte lætur af störfum
sem formaður GF í Svíþjóð á
næsta ári verður þetta síðasta árið
hans í stjóm NGU.
Aðalfundi lauk með því að
Danmörk boðaði til næsta aðal-
fundar í júní 2003.
Sœmundur Árnason