Prentarinn - 01.10.2003, Page 6
Kristín Helga Gunnarsdóttir
Tölvuskrímslib
Kvalalosti rekur íslenskan rit-
höfund áfram. Hið furðulega jóia-
bókafyllirí stýrir Iífi hans og veld-
ur því að hann skríður ömiagna
inn í híði sitt í janúar, leggst í
laufíð og dæsir - ekki af vellíðan
og ofeldi, heldur miklu ffemur af
síþreytu og ofreynslu. Þar liggur
hann hreyfingarlaus í óratíma,
mænir á tölvuskrímslið sem
bólgnar út á borðinu troðfúllt af
hugmyndum. Því næst tekur hann
á stóra sínum, drattast að skrímsl-
inu og sest við úrvinnslu.
Eins og grískur dans byrjar
ballið hægt og rólega, taktföst
dansspor á lyklaborði, skynsam-
legur vinnutími, passa að borða,
muna að þrífa kotið og hafa
huggulegt í kringum sig. En svo
verður dansinn hraðari. Um sum-
armál er tölvuskrímslið með í far-
angrinum hvert sem leiðir höfúnd-
arins liggja. Það breiðir úr sér á
tjaldborðinu í útilegunni, liggur á
meltunni í bílnum, tekur sumar-
húsið yfir, drattast með í hestaferð-
ina, tekur pláss í bakpoka í fjall-
göngunni og situr á bakkanum og
vælir eins og óþekkt gæludýr í
veiðiferðinni. Að hausti er
skrímslið orðið stórt og fýrirferðar-
mikið. Það kallar á þræl sinn dag
og nótt og gefur ekki stundlegan
frið. Loks fær þrællinn nóg, send-
ir ofvaxinn tilberann frá sér og
bíður óttasleginn eftir því hvemig
honum reiði af hjá útgefanda.
Við taka nokkrar ferðir með
afkvæmið fram og til baka,
vökunætur, martraðir og hjarta-
verkur. Reglubundið mataræði,
uppvask og þvottar eru nú úr sög-
unni. Skítuga nærfatafjallið hækk-
ar og fer að ná skráningu hjá
Landmælingum. Gólfið er orðið
klístrað og skyndifæði og pakka-
matur er daglega á matseðlinum.
Uhu, aha, ummhmm, jamm, ha
og neibb eru einu viðbrögðin sem
/
Vangaveltur um staf og blað
nánasta fjölskylda fær frá þræln-
um um þær mundir. Hvar eru
vettlingarnir mínir? A ég enga
hreina sokka? Veistu að mjólkin er
súr? Hver hellti kaffi yftr ensku-
stílinn minn? Eg veit það ekki,
tautar þrællinn, skellir hurð og
sest fyrir framan skrímslið. Hann
er fyrir margt löngu stokkinn inn í
tölvuna og búinn að loka á eftir
sér. Þar simr hann og rótar í orð-
um og samhengi, orsök og afleið-
ingu og þrasar við fólk sem er
ekki til.
Stöku skjálftaköst gera vart við
sig hjá höfundi þegar fyrirbærið
öðlast eigið líf, feimni við ferlíkið,
móðurlegt stolt sem á örskammri
stundu getur breyst í skömm og
fyrirlitningu. Loks gefur hann
ungann frá sér til ættleiðingar,
sendir hann í útgáfu og prent-
smiðju.
Misvitrir markaðsfræðingar fá
afkvæmið í hendur, ákveða út frá
fræðunum að gleyma fyrirbærinu
eða leyfa því að synda án björgun-
arhrings í jólaflóðinu. Liggi vel á
fræðingunum fær það vængi og
flýgur á fyrsta fanými yfir flóðinu
beint á áfangastað eða aðfangadag.
Eins og bóndi með belju á land-
búnaðarsýningu fer höfundur með
fyrirbæri sitt um sveitir lands á
aðventu og sýnir á því bestu hlið-
amar, en reynir að leyna göllunum
eins og hann best getur.
Heppilegast er að rithöfúndur
gerist vottur Jehóva þar sem jóla-
hald er afskaplega fyrirferðarlítið.
Lífið er bókin og bókin er lífið þar
til skyndilega á hádegi á aðfanga-
dag. Þá er eins og ekkert hafi
gerst, líkt og dagblað hafi komið
út á laugardegi og nú sé kominn
sunnudagur. Höfúndur skríður í
híði sitt og safnar kröftum, en
tölvuskrímslið glottir á skrifborð-
inu.
Samkenndin í lokasinfóní-
unni
Við bókntenn höfúm sameigin-
lega framtíðarsýn, þrátt fyrir allt.
Við eigum hvor annan að eins og
skefti og blað, líkt og segir í vísu
þeirra félaga Tomma og Jenna.
Höfúndur situr í koti sínu, ein-
angraður með tölvuskrímslinu.
Væl í viftu er hans félagi og
kannski hundspott ef hann er lán-
samur í lífinu. Leiðin í prentsmiðj-
una er oftast löng. Hún trónir
þarna uppi á fjallinu eins og kast-
ali. Virkisveggurinn er hár og sík-
ið sem umlykur hana er djúpt. Út-
gefandinn einn kann lykilorðið að
vindubrúnni. Hann valsar inn og
út, en höfúndur stendur í mesta
lagi úti á hlaði við kotið sitt og
lætur sig dreyma um hvað fram
fari í prentmusteri á fjallstindi.
Útgefandinn ber ekki ábyrgð á því
hve höfúndur ratar sjaldan upp
fjallið. Þar er miklu heldur um að
kenna framtaksleysi, feimni,
heimóttarskap og ferðafælni höf-
undar í kotinu litla.
Ef ég vissi ekki betur héldi ég
að bækumar prentuðust af sjálfú
sér. Ég héldi að þær flæddu raf-
rænt frá höfundi inn í tölvu útgáf-
unnar og þaðan í sjálfvirkar prent-
6 ■ PRENTARINN