Prentarinn - 01.10.2003, Síða 9
virkjar gengju inn í þetta sam-
starf. Upphafsforsendan var sú að
stofnað yrði nýtt samband úr þeim
þremur sem tóku þátt í verkefn-
inu en forsendur SEKO breyttust
og það vildi ekki breyta sinni
uppbyggingu. Jan Österlind sem
greindi frá reynslu Svía taldi þó
að það starf sem hefði verið unnið
mundi nýtast vel i áframhaldandi
tilraunum sænskra bókagerðar-
manna til að finna samstarfsaðila.
Hann taldi menn vera á einu máli
um að nauðsynlegt væri að ganga
til samstarfs við annað eða önnur
sambönd svo hægt yrði að halda
úti þeirri þjónustu við félagsmenn
sem nauðsynleg er og eins til að
halda styrk sínum gagnvart at-
vinnurekendum. Jan kom inn á þá
þróun sem verió hefði og væri í
gangi og hefði í for með sér fækk-
un félagsmanna. Hann kom þrá-
faldlega inn á mikilvægi heildar-
samninga sambandsins, nauðsyn
þess að standa vörð um þá og
styrkja þá, ekki síst með hliðsjón
af vaxandi alþjóðavæðingu. Þá
lagði hann einnig áherslu á mikil-
vægi þess að efla alþjóðasam-
starfið.
Fulltrúar frá HK og SID
greindu frá sameiningarmálum í
Danmörku. Fram kom hjá fulltrúa
HK að menn teldu reynsluna af að
ganga í HK og leggja niður
Grafisk Forbund góða. Samnings-
aðstaða prentiðnaðarfólks hefði
eflst en hún hefði verið orðin
býsna veik, einkum á forvinnslu-
sviðinu, þar eð atvinnurekendur
gerðu heldur samninga við önnur
félög um forvinnsluna. Hann
greindi jafnframt frá því að sam-
einingarþróunin héldi áfram og
þann 4. október 2003 mundu HK-
Industri og HK-Service samein-
ast. Þá gerði Simon Togern grein
fyrir uppbyggingu innan HK og
því hvemig prentiðnaðarmenn
væru skipulagðir innan sambands-
ins. Skipulagsmyndin sem er
býsna flókin, a.m.k. fyrir þá sem
standa fyrir utan, virðist engu að
síður gagnast vel og taldi hann að
allt eftir því sem félagsmenn átt-
uðu sig betur á skipulaginu yrðu
þeir ánægðari með sinn hlut. Fram
kom í máli Simons eins og hjá
öðmm að mikilvægt væri að standa
vörð um heildarsamningana (nor-
ræna samninga) og styrkja þá enn
frekar, ekki síst með hliðsjón af
aukinni alþjóðavæðingu.
Fulltrúi SID taldi það hafa verið
rétt hjá umbúðariðnaðarfólki að
fara inn í SID þegar Grafisk For-
bund var lagt niður. Vissulega
væri umbúðariðnaðarfólk fámenn-
ur hópur í stóru sambandi og auð-
vitað þyrfti fólk að halda vel utan
um sitt en það styrkti stöðuna að
hafa svo fjölmennt samband á
bak við sig. Hann lagði hins vegar
áherslu á mikilvægi þess að
treysta hið norræna samstarf og
greindi jafnframt frá því að það
væri gott samstarf á milli umbúð-
ariðnaðaifólks og prentiðnaðarfólks
í HK. Fram kom í máli Dananna
að ljósmyndarar, sem áður höfðu
tilheyrt Grafisk Forbund, hefðu
gengið til liðs við samtök blaða-
manna.
I umræðum sem spunnust undir
þessum lið virtist það vera sam-
dóma álit að eðlilegt og reyndar
nauðsynlegt væri að leita aukins
samstarfs við önnur félög með ein-
um eða öðmm hætti.
Þróun heildarsamninga
Þessi dagskrárliður fjallaði að
stórum hluta til um hugmynda-
fræðina á bak við verkalýðshreyf-
inguna og héldu þeir Ingemar
Göransson, verkefnisstjóri hjá
sænska alþýðusambandinu (LO),
og Staffan Holmertz, aðalsamn-
ingamaður rafvirkja, í þennan
dagskrárlið. Þeir félagar vom afar
líflegir og fóm um víðan völl.
Þungamiðjan var hins vegar enn
og aftur mikilvægi þess að halda
utan um hið norræna heildarsamn-
ingakerfi, sem hefði reynst okkur
vel og gert velferðina meiri á
Norðurlöndum en víðast annars
staðar. Jafnframt töldu þeir mikil-
vægt að treysta stöðu launafólks
með lagasetningum þar sem við
ætti og gert hefði verið. Samtökin
þyrftu því að fylgjast vel með því
sem gerðist á stjórnmálavettvang-
inum og freista þess að hafa þar
áhrif til hagsbóta fyrir félagsfólk.
Utgangspunkturinn í málflutningi
þeirra félaga var það sem kallað
hefiir verið:
Verkalýbsloforöiö
Við lofum og tryggjum að vinna
aldrei nokkurntíma og ekki
undir neinum kringumstœðum
við lakari kjör eða lœgri laun
en þau sem við nú lofum hvert
öðru.
Við lofum að standa við þetta í
þeirri staðföstu vissu að ef við
stöndum við þetta loforð verða
atvinnurekendur að verða við
kröfum okkar.
I máli þeirra félaga kom jafn-
framt fram mikilvægi þess að
vinna með verkalýðsfélögum í öðr-
um löndum, ekki síst í þeim fá-
tæku. Mikilvægt væri að við gerð-
um það sem í okkar valdi stæði til
að kjör bötnuðu hvarvetna í heim-
inum. Það væri ekki einasta mikil-
vægt út frá samstöðuhugsjóninni
heldur væri það ekki síður mikil-
vægt til þess að tryggja okkar eig-
in kjör. I líflegum umræðum undir
þessum lið kom það enn og aftur
fram í máli fólks að mikilvægast í
allri samningsgerð sem við stæðum
frammi fyrir væri að hækka lág-
markslaunin
Farið var til Álandseyja á mið-
vikudeginum en dagskrárliðurinn
sem átti að vera á fundi um borð i
ferjunni um Grundvallarstarf
verkalýðshreyfingar - laða inn
nýja félaga, og Ileiri fyrirtæki í
heildarsamningum féll niður
vegna þessa að fyrirlesarinn var
forfallaður. Þess í stað spjallaði
fólk saman og naut þess sem fyrir
augu bar. Á leið í ferjuna til baka
til Grisslehamn barst svo fréttin
um að Anna Lindh utanríkisráð-
herra Svía hefði verið stungin með
hnífi í vömhúsinu NK í miðbæn-
um í Stokkhólmi.
Á fimmtudagsmorgun þegar
fundur átti að heljast kl. 9.00 barst
svo fréttin um andlát utanríkisráð-
heirans og setti menn hljóða.
Þessi sorglega frétt um gjörsam-
lega glórulaust ofbeldi varð þess
valdandi að í raun varð ekki meira
um fundahöld, nema hvað fulltrú-
ar allra þátttökulandanna vottuðu
Svíum samúð sína og þökkuðu
fyrir velheppnaða og skipulagða
ráðstefnu. Næsta höfuðborgaráð-
stefna verður svo haldin árið 2005
í Helsinki.
bg/mes
PRENTARINN ■ 9