Prentarinn - 01.10.2003, Síða 16
Jón Sandholt
Nlyndir á skjá
Skjáprufur og skoðun
stafrænna myndskráa á tölvuskjá
Það er á tölvuslgánum sem
myndskráin birtist i siðasta sinn
áður en hún er keyrð út á pappír.
Tölvuskjáir gegna því mikilvœgu
hlutverki við mat á gœðum og lit-
um stafrœnna myndskráa. Tölvu-
skjáir sýna einnig breytingar
þœr sem lagfœringar í mynd-
vinnsluforritum valda á mynd-
skrám og oft eru skjámyndir
bornar saman við Jyrirmyndir og
prentaðar myndir og þannig not-
aðar að nokkru leyti í stað litpróf-
arka á pappír. Það skiptir því
miklu máli að þeir sem vinna við
litvinnslu geti treyst því að tölvu-
skjáir sýni nákvœma liti og hœgt
sé að láta þá líkja eftir prentaðri
útkomu.
Margir vantreysta þó skjá-
myndum og margir reka sig á að
útkoman úr prentun er oft mjög
frábrugðin því sem menn höfðu
séð á skjánum og verða þvífyrir
vonbrigðum með skjámyndirnar
sínar. Astœðan er að alltof oft eru
tölvuskjáir ekki rétt stilltir og
alltof oft gleymist að reikna með
umhverfi skjásins. Margir sam-
verkandi þœttir koma við sögu
þegar skjár er kvarðaður og
þessa þœtti þarf alla að hafa í
huga.
Umhverfislýsing og aðrir
þœttir í umhverfi tölvuskjáa, sem
nota á til nákvœmrar litvinnslu,
skipta mjög miklu máli og nauð-
synlegt er að hafa góða stjórn á
þessum þáttum. Með réttum still-
ingum á skjá og nákvœmri stjórn
á umhverft hans má sjá nokkuð
nákvœma mynd á skjánum af því
hvernig endanlegur prentgripur
kemur til með að líta út.
Þessi greinjjallar um það
hvað þarftil að fá tölvuskjái til að
sýna nákvœmar myndir sem likj-
ast eins og kostur er því sem
vœnta má að skili sér úr prentun.
Skjáir
I dag eru tvær gerðir skjáa al-
gengastar. Annarsvegar mynd-
lampaskjáir (CRT-Catode Ray
Tube) og hinsvegar s.k. kristals-
skjáir (LCD-Liquid Crystal Dis-
play). LCD skjáir nota s.k. fljót-
andi kristaila og ljósgjafa sem
komið er fyrir aftan við þá til að
birta myndina. Þeir nota mun
minni orku en CRT skjáir og
breytast sáralítið með tímanum
nema hvað ljósgjafinn dofnar
smátt og smátt á löngum tíma en
hann breytir ekki liteiginleikum
sínum að neinu ráði.
Gallinn við slíka skjái er sá
að notandinn verður að sitja ná-
kvæmlega beint framan við þá til
að sjá liti og áferð skjámyndarinn-
ar rétt auk þess sem stundum vill
brenna við að birta skjásins sé
minni út til hliðanna en í miðju
hans. Þeir eru hinsvegar auðveld-
ari í kvörðun og endast betur en
CRT skjáimir. Myndlantpaskjáir
em hinsvegar enn algengastir í
nákvæmri myndvinnslu þó margir
haldi því fram að bestu kristals-
skjáimir á markaðnum séu einnig
gjaldgengir til slíkra nota. Hér
verður því að mestu fjallað um
CRT skjái en vegna þess hversu
ólíkar þessar tegundir skjáa eru er
fátt sameiginlegt í gerð þeirra og
virkni. Hinsvegar gilda sömu lög-
mál um umhverfisaðstæður við
myndskoðun á báðum tegundum.
A myndlampaskjá er innra
byrði glersins framan á skjánum
þakið miklum fjölda rauðra,
grænna og blárra fosfórdepla. Aft-
ast í myndlampanum eru þrjár
rafeindabyssur, ein fyrir hvem
grunnlitanna þriggja, sem senda
frá sér straum rafeinda. Sérstakur
búnaður skerpir þessa rafeinda-
geisla og sendir þá í gegnum
götótta málmplötu (shadow mask)
sem tryggir að hver geisli hæfi að-
eins depla í einum tilteknum lit á
skjánum. Þegar rafeindageislarnir
lenda á lituðu fosfórdeplunum
byrja þeir að glóa og myndimar á
skjánum verða til við það að ljós í
samlægu grunnlitunum 3, rauðu,
grænu og bláu (RGB), berst frá
skjánum til augna okkar. Með
mismunandi samsetningum þess-
ara þriggja gmnnlita er hægt að
búa til mikinn fjölda lita, þó það
séu ekki nærri allir litir sem
mannsaugað getur greint sem
hægt er að mynda á þennan hátt.
Til að mynda eina myndeind eða
díl (pixel) á skjánum þarf þrjá
fosfórdepla, einn í hverjum lit
(RGB).
Ljómi fosfórdeplanna er háð-
ur styrk rafeindageislans sem
lendir á þeim. Rafmerkin sem
ráða styrk rafeindageislanna koma
frá skjákorti tölvunnar. Skjákortið
tekur við stafrænum (digital)
merkjum frá sfyrikerfi tölvunnar
eða notendahugbúnaði, ber þau
saman við lituppfletti-töflu (Look
Up Table - LUT) sem segir til um
hversu háa spennu þarf til að gefa
fosfórdepli á skjánum tiltekinn
ljóma og breytir þeim að lokum í
flaumræn (analog) rafmerki í s.n.
flaumbreytu (Digital to Analog
converter). Ef lituppfletti-tafla
skjákortsins notar 8 bita til að
túlka litgildin þýðir það að skjár-
inn getur sýnt 256 liti samtímis .
16 bita skjákort getur sýnt 32,768
liti samtímis og 24 bita kort yfir
Tölvuskjáir eru löngu orðnir mikilvæg hjálpartœki við litvinnslu. Það
er þó ekki sama hverskonar skjáir eru notaðir við litvinnslu. Þó ekki
þurfi endilega að fjárfesta í dýrum, sérhœfðum litvinnsluskjám þurfa
ákveðin atriði að vera til staðar svo skjáir nýtist eins og til er œtlast
við litaleiðréttingar og aðra litvinnslu.
16 ■ PRENTARINN