Prentarinn - 01.10.2003, Side 21

Prentarinn - 01.10.2003, Side 21
vinnslu minnkar og myndvinnslu- tíminn styttist. Þeir sem kvarða skjái sína handvirkt stilla þá gjaman þannig að þeir séu nær þeirri útkomu sem fæst úr prentun eða prófarka- gerð. ICC litstýringakerfi gera hinsvegar ráð fyrir að skjáir séu stilltir á hlutlausan hátt með hjálp litrófsmæla og kvörðunarhugbún- aðar. Mörg myndvinnsluforrit (þ. á m. Photoshop 6 og 7) gefa not- endum möguleika á að skoða myndskrámar sínar í gegnum þann prentprófíl sem er virkur í forritinu þá stundina og er þá jaínvel hægt að láta forritið taka tillit til hvítpunkts pappírsins eins og hann er skilgreindur í prófíln- um eða láta það líkja eftir skilum (kontrast) prentmyndarinnar á pappímum sem vanalega eru minni en skil skjámyndarinnar. Eg ætla ekki að fara nánar út í lýsingar á slíkum stillingum enda eiga þær ffekar við í lýsingum á virkni einstakra forrita, en þegar þessum aðferðum er beitt getur skjámynd á vel kvörðuðum skjá sem er í góðu lagi og er staðsettur í réttu umhverfi orðið fúrðu lík prentaðri útkomu. Mörgum fínnst þó að sam- svörunin milli prentmyndar og skjámyndar verði aldrei nógu ná- kvæm og benda á, og það rétti- lega, að vegna þess hversu ólik litbirtingaraðferð tölvuskjáa er prentun og vegna þess hversu litasviðið er ólíkt sé erfitt að líkja fúllkomlega efitir myndum á pappír á tölvuskjá. Auk þess er ómögulegt að líkja eftir yfirborðs- áferð prentaðra mynda á tölvu- skjám en hún hefur einnig tölu- verð áhrif á það hvemig fólk met- ur litáferð á pappír. Það þarf vissulega að varast að treysta á skjámyndir í algerri blindni og rannsóknir hafa sýnt að mælt heildar-litfrávik flestra kvarðaðra tölvuskjáa sem notaðir em til ná- kvæms litamats er nokkru hærra en talið er ásættanlegt varðandi lit- prófarkir á pappír. Á hinn bóginn er hægt, með góðri kvörðun og ná- kvæmri stjórn á umhverfislýsingu og öðmm þáttum umhverfísins, að ná fúrðugóðri sjónrænni samsvör- un milli mynda á skjánum og ljósmynda eða prentmynda á pappír. Galdurinn felst í samræm- ingu stillinga skjásins og um- hverfísþátta. Frávikin era í sjálfu sér ekki meiri en milli t.a.m. skyggnu og prentaðrar myndar svo dæmi sé tekið en slíkur sam- anburður hefúr verið gerður um árabil í grafíska iðnaðinum. Erfiðlegast gengur að líkja eftir lithita skoðunarljóssins á skjánum. Muninn á milli kvarðaðs skjás sem stilltur er á D50 lithita og D50 ljósgjafa má að hluta skýra með því að fjöldaframleidd- ar pemr haldast ekki alltaf innan þeirra tiltölulega þröngu viðmið- unarmarka sem sett em varðandi slíka ljósgjafa. Það er ákveðnum erfíðleikum bundið að framleiða flúrperar sem hafa jafn mjúka og jafna litrófskúrfu og viðmiðunar- ljósgjafmn D50, en Halógen glópemr útbúnar með sérstökum ljóssíum komast yfírleitt nær. Flúrpemr eru þó algengastar í skoðunarkössum á markaðnum i dag og einnig til herbergislýsing- ar. Að hluta má einnig skýra þennan mun með því hversu erfítt það er í raun að búa til hvítan lit með fosfórdeplum skjásins. Þeir sem hvað mest hafa fjallað um þessi mál benda á að til að ná við- unandi árangri þurfi að nota n.k. sambland handvirkra stillinga og mælinga. Þeir mæla með að fyrst sé skjárinn kvarðaður með mæli- tækjum og skjáprófíll gerður en síðan sé hvítpunktur skjásins stilltur á handvirkan hátt til að hann líkist sem mest Iithita skoð- unarljóssins. Það verður ekki fjall- að nákvæmlega um þessar aðferðir hér en það má vissulega velta þvi fyrir sér hversu nákvæmar slíkar aðferðir em og hvort rnenn séu ekki komnir í hring í þessari um- ræðu eins og svo mörgu öðm er tengist litstýringu. Hvað sem um þetta má segja er eitt víst, og um það em allir sammála, að án þess að huga vel að umhverfisaðstæð- um, lýsingu o.þ.h. er tilgangslaust að ætla að nota tölvuskjái sem prófarkatæki, sama hversu vel kvarðaðir þeir em. Það má að sjálfsögðu ekki gleyma því, að það sem að lokum þarf til að skjápmfur virki eins og til er ætlast em góðir aðlags- og frálagsprófílar og gott mynd- vinnsluforrit sem styður ICC prófíla til að skoða stafrænu myndskrámar. Það er utan við efni þessarar greinar að fjalla um prófíla fyrir aðlags- og frálagstæki en þó þarf að nefha að tilbúnir eða „niður- soðnir“ (canned) prófílar sem framleiðendur láta oft fylgja tækj- um sínum eru engan veginn nógu nákvæmir til að þeir séu brúklegir til nákvæmrar litvinnslu. Jafnvel s.k. „meðaltals" prentprófílar eins og Euroscale eða SWOP em held- ur ekki nógu nákvæmir til að skila viðunandi árangri í nákvæmri lit- vinnslu. Til að ná árangri er nauð- synlegt að nota sérsniðna prófíla sem gefa rétta mynd af þeim frá- lagstækjum sem verið er að vinna fyrir. Um slíka prófíla og gerð þeirra verður ekki fjallað hér en án þeirra er útilokað að skjárinn geti líkt eftir prentaðri útkomu af nákvæmni. Heimildir: Johan Leide/Peter Lundberg: Implementing color management. 1999 IFRA/Tidningsutgaveme. Don Hutcheson: Successful soft proofing (Making your monitor really match the proof). 2000 Hutcheson consulting. Richard W. Harold/David Q. McDowell: Standard viewing conditions for the graphic arts. GATF World Jan/Feb 1999. Gary G. Field: Color and its reproduction. GATF Press 1999. Eric Harsh, Will Hoiland, Scott Baker: Setting up your monitor to display colors consistently (A crash course in monitor science for non-propellerheads). Graphic intelligence agency 2001. Walter Steiger, Markus Datwyler og Sascha Paus: Calibration and colour management on colour display. EMPA/UGRA St Gallen, Sviss 1999. PRENTARINN ■ 21

x

Prentarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.