Prentarinn - 01.12.2003, Page 16
Glœsilegur vélakostur er í prentsal GLR.
Georg Páll Skúlason, Ad Van Boen skólastjóri GLR, Alex de Boer GOC
og Haraldur Dean Nelson.
allar helstu sjónvarpsstöðvarnar
eru til húsa í Hillversum.
Námið skiptist í fjögur ár. Tvö
fyrstu árin eru almennt nám þar
sem nemendur taka almenn nám-
skeið. Raunverkefni eru unnin á
fyrsta og öðru ári. A þriðja ári er
unnið verkefni frá hausti fram að
áramótum. Eftir áramót er starfs-
þjálfun á vinnustað. A haustönn á
þriðja og síðasta ári er unnið hóp-
verkefni en eftir áramót er loka-
verkefni sem unnið er sem ein-
staklingsverkefni.
Sérstök skrifstofa heldur utan
um verkeíhavinnu nemenda. Vef-
setur skrifstofúnnar er
http://xchange.hku.nl
Grafisch Lyceum Rotterdam
(GLR)
Ad Van Boen skólastjóri Grafisch
Lyceum og Arie Von Tilborg
deildarstjóri margmiðlunarsviðs
kynntu nám og skipulag skólans
en hann býður nemendum
menntun á þremur skólastigum:
1. Fyrsta skólastigið, 12-16 ára, þar
sem venjulegu námi er blandað
saman við grafískar greinar.
2. Á næsta skólastigi, ffá 16-18
ára, stunda nemendur hið
venjulega iðnnám.
3. Þriðja skólastigið er háskóla-
stig þar sem nemendum býðst
að taka BA gráðu í grafískum
greinum í framhaldi af iðn-
náminu.
Ef nemendur hafa próf, sem er
ígildi stúdentsprófs, fá þeir einnig
að taka BA gráðu í grafískum
greinum. Það nám fer fram í
samvinnu við Háskólann í Rott-
erdam. I skólanum eru 3500
nemendur og 300 starfsmenn, þar
af 120 kennarar í fúllu starfi
(stöðugildi eru 180), en skólinn
hefur 20.000 m2 til umráða. í
skólanum eru 1500 tölvur fyrir
nemendur.
Prcntfyrirtækið Nederlof
Repro, stafræn vinnsla
Nederlof Repro var forvinnslu-
fyrirtæki þar til eigandinn (Gerrit
Jan Bljuis) fór að hugsa ráð sitt
og sá að það var ekki mikil fram-
tíð i því að búa til filmur og
vinna einungis í forvinnslu (fram
kom í máli stjórnenda hjá GLR
að forvinnslan er að færast yfir í
almenn fyrirtæki). Ákveðið var
því að færa út starfsemina með
því að taka inn tvær stafrænar
prentvélar, Indigo og Karat 74 ffá
KBA. Slíkar vélar eru ekki gerð-
ar fyrir stórt upplag þannig að
fyrirtækið sækist eftir verkefnum
þar sem upplag er minna.
Fyrirtækið, sem hefur 35
starfsmenn, byggir starfsemi sína
á persónumerktri prentun, til
dæmis fasteignaauglýsingum. Þá
er byggt á gagnagrunni sem
hannaður hefúr verið í samvinnu
við fasteignasala. Síðan er prent-
uð út mynd úr gagnagrunni af
fasteigninni ásamt upplýsingum
um hana. Þetta efni er prentað í
Indigo prentvélinni og hefúr
gefið sérlega góða raun. Við-
skiptavinir eru hvattir til að
kaupa nákvæmlega það magn
sem þeir þurfa en ekkert umfram
það því að alltaf er hægt að
prenta viðbót ef þess gerist þörf.
Tæknin er ekki flókin en efna-
hagslífið hefur breytt hugsana-
mynstri fólks þannig að nú er það
prentarinn sem veitir fúllburða
þjónustu. Framtíð í stafrænni
prentun lítur Iíklega þannig út að
upplag mun stækka og persónu-
merkt prentun mun einnig aukast.
Sölumenn verða að þekkja tækn-
ina til að geta selt hana. Einnig
þarf að þekkja þarfir viðskipta-
vina og finna út hvernig hægt er
að selja þeim nýja tækni og fá
fleiri verkefni frá þeim.
Gagnleg ferð
Ohætt er að fúllyrða að margt
markvert bar fyrir augu í ferðinni
og sumt er líkt því sem Prent-
tæknistofnun fæst við þótt allt sé
það smærra í sniðum hér á landi.
Margt af því sem kynnt var varð-
andi starfsþróun og vinnustaða-
rannsóknir gæti vissulega verið á
könnu Prenttæknistofnunar og
það er mat okkar að þessi ferð
hafi víkkað sjóndeildarhringinn
og sýnt fram á mörg sóknarfæri.
Enn fremur sáum við hversu
mikilvægt það er fyrir iðnað eins
og okkar að hafa öfluga endur-
menntun sem styður við fyrir-
tækin og starfsmennina.
Georg Páll Skúlason
Haraldur Dean Nelson
Ingi Rafn Ólafsson