Aðventfréttir - 01.03.1996, Qupperneq 7
miðju í tjaldbúðum ísraelsmanna
(4M 2). Staðsettur fyrir miðju skap-
aði Guð þannig samkennd, leiðsögn
°g öryggi.
Þessi samfundastaður var til-
beiðslustaður Israelsmanna (S1
132.7). Hér beygðu þeir sig fyrir
Drottni og þökkuðu honum (S1
138.2) , báðu um hjálp og vörn (S1
28.2) og tilbáðu Guð (S1 43.2-4).
Seinna þegar tjaldið varð að must-
eri komu hópar pílgríma þangað á
hátíðarstundum, gengu um garðana
og sungu kærleika Drottins lof (S1
68.24-26; 42.4). Líklega var för í
musterið til að hitta þar Guð með því
ánægjulegasta sem Israelsmaður tók
sér fyrir hendur.
Við þurfum að vinna að því að
endurvekja slíka gleði í tilbeiðslu í
dag þegar við stöndum frammi fyrir
Drottni. Guð er í seilingarfjarlægð,
við megum gleðjast yfir nærveru
hans. Þessi tilfinning er ekki væmin
tilfinningasemi sem fæðir af sér vímu-
kennda gleði. Gleðin fæðist af þeirri
vissu að við eigum samneyti við Guð
okkar og frelsara sem er uppspretta
lífs okkar og blessana allra (S1 132.14,
15).
Þannig er einnig himneska must-
erið staður þar sem Guð á samneyti
við himneskar verur. Eg sé þær, í
huganum, koma frá öllum hornum
alheimsins að hinu himneska musteri
til að hitta Guð. Job segir okkur af
tveimur slíkum fundum þar sem „syn-
ir Guðs komu til þess að ganga fyrir
Drottin" (Jb 1.6; 2.1).
Við höfum einnig, fyrir trú, að-
gang að musterinu fyrir tilstilli Jesú
Krists frelsara okkar. Vegna blóðs
Krists megum við ganga „með djörf-
ung að hásæti náðarinnar“ (Heb
4.16; 10.19, 20) þar sem Kristur þjón-
ustar fyrir okkur (Heb 7.25).
Við erum hluti af fjölskyldu him-
insins (Ef 2.18, 19) og þegar við til-
biðjum Guð einslega eða sem hluta af
safnaðarheild þá erum við að tilbiðja
Guð í sínu himneska musteri um-
kringdan himneskum verum. Þess
verður ekki langt að bíða að það sem
við lifum í trú í dag verður áþreifan-
legur raunveruleiki (Opb 7.13-17;
14.1-3).
STAÐUR SÁ ER GUÐ
STJÓRNAR FRÁ
Úr musteri Israelsmanna stjórnaði
Guð heiminum sem konungur
heimsbyggðarinnar (S1 99.1; 47.7, 8).
Nærvera Guðs í þessu afmarkaða
rými var vitnisburður um alheims-
stjórn hans. Það var í musterinu sem
Guð opinberaði vilja sinn. A þessum
helgasta stað talaði Guð \dð Móse og
gaf honum fyrirmæli fyrir Israel (2M
25.22). Guð notaði einnig prestana
til að kenna fólkinu þau fyrirmæli
sem Móse voru opinberuð (3M
10.11). Fyrir kom að vilji Guðs var
opinberaður gegnum steinana á
klæðum æðsta prestsins, úrím og
túnnnín (4M 27.21 og Patriarchs ancl
Prophets, bls. 351).
Þegar einstaklingur hafði gengið
þvert gegn \ ilja Guðs og iðraðist þá
var það í musterinu sem hann hlaut
fyrirgefningu. Guð sá til þess að fyrir-
gefningu væri að fá gegnum fórnar-
kerfið (3M 17.11). Einstaklingurinn
kom syndum hlaðinn, berandi byrði
syndanna (3M 5.1) en yfirgaf svo
musterið hafandi hlotið fyrirgefn-
ingu (3M 4.31).
Musteri Israelsmanna var kraft-
mikill miðpunktur lífs, valds, blessun-
ar, verndar og fyrirgefningar vegna
þess að þar var dvalarstaður Guðs
meðal fólks hans. Þar opinberaði
Guð vald sitt til stjórnunar á öllum
þjóðarbrotum jarðarinnar, sem kon-
ungur heimsbyggðarinnar, dómari og
verndari.
Hið himneska musteri Guðs er sá
staður þar sem Guð stjórnar, ekki
bara jörðinni, heldur alheimi öllum.
Ekki er til sá skapaði staður sem fell-
ur utan stjórnarsviðs konungdæmis
Guðs: „Drottinn hefir reist hásæti sitt
á himnum, og konungdómur hans
drottnar yfir alheimi" (S1 103.19).
Israelsmenn vissu vel að hið jarð-
neska musteri var nátengt hinu him-
neska. Það má sjá á bæn Salómons
þegar hann vígði musterið. A sama
tíma og við sjáum fólkið biðja við
musterið á jörðinni sjáum við Guð
leggja við hlustir á himnum (lKon
8.38, 39). Þegar fólkið bað um fyrir-
gefningu þá var því gert að trúa að
fyrirgefning Guðs kæmi að ofan, frá
musterinu þar (vers 30). Það var frá
himnasölum að Guð blessaði fólkið
og landið (5M 26.15). Drottinn, þó
nálægur með nærveru sinni í hinu
jarðneska musteri, átti sér raunveru-
legan dvalarstað í hinu himneska
musteri.
Það er gott til þess að vita að Guð
er enn konungur þessa heims og
stjórnar honum frá musterinu him-
neska. Það að Guð á sér stað á himn-
um meðal skapaðra tryggir að kær-
leiksríkur konungur situr við stjórn
alheimsins og leiðir okkur að lokatak-
markinu, þ.e. að endanlegri útrým-
ingu alls ills úr þessum heimi. Sem
dómari er Guð sá sem sett hefur sið-
ferðisstaðalinn og stjórnar af réttlæd
og náð. Við megum nálgast Guð á
þessum himneska stað „tíl þess að vér
öðlumst miskunn og hljótum náð til
hjálpar á hagkvæmum tíma“ (Heb
4.16). Þetta er mögulegt fyrir tilstilli
Jesú Krists sem opnaði dyrnar að
hinu himneska musteri fyrir okkur.
TIL UMRÆÐU
Hvað má sjá líkt í musteri Israels-
manna og musteri öðrum guðum til
handa meðal heiðingjanna til forna?
Hvernig var musteri Israelsmanna
öðrmdsi en hjá öðrum siðmenning-
um þá? Hversu mikilvægur er þessi
munur? Hvaða áhrif hafði þessi mun-
ur á sýn Israelsmanna hvað Guð varð-
aði?
Israelsmenn til forna höfðu áþreif-
anlegar sannanir á tilveru Guðs svo
sem þrumur og eldingar við Sínaífjall
og eldstólpann sem leiddi þá að
nóttu til og skýið að degi til. Hvaða
sannannir höfum við í dag? Skrifaðu
lista yfir þær sannanir sem þér fínnast
mest uppörvandi.
Hvernig hefur rannsókn á hinu
jarðneska musteri aukið skilning
þinn á því himneska? Gefðu dæmi.
Angel Manuel
Rodriguez situr í stjórn
Biblíurannsóknaráds
abalsamtakanna.
AðventFréttir
7