Aðventfréttir - 01.03.1996, Blaðsíða 11

Aðventfréttir - 01.03.1996, Blaðsíða 11
ferli endaði með sakfellingu og kross- dauða Efdr fleiri tíma þjáningu á krossinum hrópaði hann „Það er full- komnað“ (Jh 19.30) og dó. Hvorki fyrr né síðar hafa verið töluð orð svo þrungin merkingu. Kristur sem fórn var að de)ja á altarinu fyrir mannkyn- ið og afar fáir skildu það eða fannst eitthvað til þess koma. A meðan við vorum enn syndarar dó Kristur fyrir okkur. Það mun satt reynast að sá sem verðugur var dó fyr- ir þá sem óverðugir voru. Þvílík opin- berun óeigingirni. Kristur kenndi að við skyldum elska hvort annað, jafn- vel óvini okkar og sú lexía var erfið. Þar sýndi hann berlega hvað hann átti við, hann gaf líf sit fyrir okkur svo full vanþakklætis. Með fordæmi hans byrjar pílagrímsferð okkar til skiln- ings. Hversu mikið hann elskar okk- ur! Hversu einfalt hefði ekki verið að afneita okkur sem syndurum og snúa sér að nýsköpun? Þess í stað er allur máttur himinsins notaður til að frelsa okkur frá heimskunni og dauðanum sem afleiðingu hans. Sem aðventistar höfum við innsýn í að meira átti sér stað þegar Kristur dó. Þetta snýst ekki bara um þennan heim, sem það vissulega gerir þó, heldur alheiminn allan sem heldur niðri í sér andanum yfir því sem fyrir okkur hefur verið gert. Ki afa Lúsífers á okkur, sem föst erurn í neti syndar- innar, er sú að Guði sé ómögulegt að sýna náð án þess að bijóta á réttlæt- inu. Lögmál orsaka og afleiðinga verður að halda velli. Ef laun syndar- innar eru dauði þá verður hver og einn að fara til sinnar grafar, ekki til tímabundins svefns, heldur til eilífs dauða. Rökin virðast skotheld. I sínum ótrúlega kærleika stóð skaparinn andspænis skelfilegu vali. Alheimur fylgdist með. Það sem hann varð vitni að var það ótrúlegasta af öllu ótrúlegu. Skaparinn ákvað að verða einn af oss, stíga inn í syndugan heim okkar og gefa líf sitt til að full- nægja réttlætinu. Sannarlega eru laun syndarinnar dauði. Afleiðing uppreisnarinnar er óumflýjanleg, henni verður að taka. Hann beraði axlir sínar til að taka samlögðum þunga syndarbyrðar mannkynsins. Drottinn lagði á hann sekt þá sem hlaut að enda með dauða. A Golgata- hæð tók frelsarinn því við sekt okkar allra og tók þar út refsinguna. Hann dó hinum öðrum dauða. En gröfin fékk ekki haldið honum þar sem hann var óflekkaður synd og því reis hann við kall föður síns. „Fyr- ir því hefur og Guð hátt upp hafið hann og gefið honum nafnið, sem hverju nafni er æðra“ (F1 2.9). Við höfum hugleiðingu þessa á upphafn- ingu Jesú Krists. Nú má betur skilja hvers vegna slík upphafning og dýrð er viðeigandi. Hann steig upp úr gröf sinni sem sigurvegari yfir synd og dauða hafandi áunnið sér þann rétt að gefa þeim sem á hann trúa hlutdeild í sigri sínum. Hann bar synd okkar og sekt að krossinum. Hann losaði okkur með sínum mikla mætti undan þeirri hegningu sem okkar beið. Hann lifir að eilífu til að miðla frelsi og friði í ótæmandi náð sinni. Við, sem eigum ekkert slíkt skilið verðum arfþegar örlætis hans. Nú skiljum við betur hvers vegna frelsunina er að finna í Kristi, og ein- ungis í Ki isti, því það er hann sem út- hlutar því réttlæti sem þeir fá sem á hann trúa. Þetta er ástæðan fyrir lof- söng himinsins lambinu til dýrðar, lambinu sem fjarlægði alla synd. Þessi einstaki atburður í sögu eilífðar- innar á sér stað í þetta eina skipti, okkur til frelsunar. Þannig erum við frelsuð fyrir fórn hans. Alheimur allur hefur öðlast frekara innsæi einnig. Guð er sann- arlega kærleikur, kærleikur sem á sér gildi langt ofan okkar skilnings. Al- heimur vitnað hversu langt Guð er reiðubúinn að teygja sig til að frelsa einn lítinn heim meðal þeirra milljón heima sem til eru. Hversu dýrmæt hlýtur sköpun hans að vera honum. Allar stoðlausar ásakanir Lúsífers falla um sjálfar sig og kærleiksrík per- sóna Guðs erum öllum opinberuð. Fyrir opnun tjöldum, fyrir alla að sjá, sigraða hann Satan. Nú má öllum ljóst vera hvers vegna dómur hans verður réttlátur. FULLKOMNAÐ! Hámark deilunnar miklu milli Krists og Satans átti sér stað þegar Kristur starfaði á jörðinni. Allt frá upphafi beitti Satan allri sinni illsku gegn Kristi en án árangurs. Við enda- lokin ávarpaði óvinurinn Krist enn einu sinni. Ellen G. White talar um að meðal skrílsins sem safnaðist um krossinn hafi verið stór, karlmannleg vera í líki manns. Hann sem byrjaði uppreisn sína sem Lúsífer á himnum var nærstaddur á þessu mikilvæga andartaki í Jerúsalem. Við getum ein- ungis reynt að ímynda okkur hvað fór þeirra á milli þegar augu Krists litu þennan óvin sinn, Lúsífer, meðal múgsins. Myndi Kristur, skapari heimsins, virkilega láta verða af áætl- un sinni og deyja fyrir sköpun sína, eða mundi hann snúa aftur til himna- sala að vera hjá föðurnum? Nærvera Guðs sem hafði haldið Kristi gang- andi var nú á bak og burt og skuggi syndarinnar hvíldi á honum og murk- aði úr honum lífið. Síðasta óp hans, „Það er fullkomn- að“, markar þann tíma þar sem ekki varð aftur snúið. Hlutverki hans var lokið og dómurinn yfir Satan tryggð- ur. Réttlæti og náð voru sameinuð. A þessu andartaki var frelsunin tryggð. Hlið himinsins opnaðist þeim sem trúa. I dag ílytjum við hinn stórkostlega boðskap um frelsun Kj'ists um allan heiminn og köllum þannig alla að krossinum þar sem frelsunin er ör- ugg. Boðskapur okkar er sá yndisleg- asti sem um getur meðal þeirra sem gefa Kristi aðgang að lijarta sínu. Það eru forréttindi okkar að vera honum vitni og liorfa fram lil endurkomu Krists, frelsara okkar og herra. TIL UMRÆÐU Hvernig hefur þú upplifað Kiist sem bæði lamb og ljón í þínu lífi? Gefðu dæmi. Hvernig hafa staðreyndirnar um sköpunina, holdtekjuna og endur- komuna haft hagnýt álirif á ákvarðan- ir þær sem þú tekur í lífmu? Hversu raunveruleg og yfirvofandi er endur- kontan þér? George Reicl er stjórnarfor- maflur Biblíurannsókna- rdös aðalsamtakanna. AðventFréttir 11

x

Aðventfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.