Aðventfréttir - 01.03.1996, Page 21
þannig eru syndir hinna iðrandi í
hinum nýja sáttmála lagðar á Krist og
fluttar í raun inn í hinn himneska
helgidóm. Og svo sem táknræna
hreinsunin í hinum jarðneska helgi-
dómi var framkvæmd með því að fjar-
lægja syndirnar, sem höfðu saurgað
hann, þannig verður hin raunveru-
lega hreinsun hins himneska helgi-
dóms fullkomnuð með fjarlægingu
eða útþurrkun þeirra synda, sem þar
eru skráðar. En áður en þessu verður
komið í framkvæmd, verður að rann-
saka skráningarbækurnar til að fá úr
því skorið, hverjir séu, fyrir iðrun
synda sinna og trú á Krist, verðugir
þess að njóta friðþægingar hans.
Hreinsun helgidómsins krefst því
könnunar - rannsóknar fyrir dómi.
Þetta starf verður að vinna, áður en
Kristur kemur til að frelsa lýð sinn,
því þegar hann kemur, ber hann
launin með sér til þess að útdeila
hverjum manni eins og verk hans er.
Opb. 22, 12.7
NIÐURLAG
Hátíðleg eru þau svið, sem tengd
eru lokastarfi friðþægingarinnar. YFir-
þyrmandi eru þeir hagsmunir, sem
þar er um að tefla. Nú stendur yfir
dómsuppkvaðning í helgidómnum á
himnum... A þeim tíma framar öllum
öðrum hæfir hverri sál að minnast
hvatningu frelsarans: „Vakið og biðj-
ið, því þið vitið ekki, hvenær tíminn
er kominn." Mark. 13, 33... „Svo þér
skulið vaka,... að hann hitti ykkur
ekki sofandi, er hann kemur skyndi-
lega.“ Markús 13, 35-36.8
TIL UMRÆÐU
Hvaða hluti musterisþjónustunnar
heillar þig mest? Af hverju?
Kveikir hinn raunverulegi friðþæg-
ingardagur í þér ótta eða öryggis-
kennd, eða kannski bæði? Hvernig
útskýrir þú viðbrögð þín við þessari
kenningu?
Hvaða leið telur þú besta til að
kynna þennan boðskap þeim sem
ekki eru sömu trúar og við?
1 Patriarchs and Prophets, bls. 68.
2 Sama rit, bls. 351-355.
3 Deilan Mikla, bls. 434, 435.
4 Sama rit, bls. 426, 427, 428.
5 Sama rit, bls. 435.
6 Sama rit, bls. 430.
7 Sama rit, bls. 436.
8 Sama rit, bls. 507-508.
Ellen G. White var einn
af frumkvöðlum og
stofnendum Sjöunda-
dags aðventista.
Rödd hennar er enn og
ávalll rödd
spámannsins meðal þeirra.
Frábsrar barnabækur
M/)JT1 BJARGAR
,, KONGINUM
MATTI
OGLEYNDARMAL
HÖFRUNGANNA
Texö 01. Jacqœs örotd
Myrxttsreytíog Jcan BrewS
óbo^oest^b
í Mattabókunum er börnunum boðið í skemmtilegt
ferðalag inni í líkamanum. Bækurnar hvetja börn til að
tileinka sér góðan lífsstíl frá unga aldri með hollustu og
góðu fæði, jákvæðu hugarfari og án vímuefna.
Höfundur bókanna og sá sem myndskreytti eru franskir bræður,
Reynir Guðsteinsson þýddi úr norsku.
FRÆKORNIÐ
BÓKAFORLAG AÐVENTISTA
AdvtntF RÉTIIR
21