Aðventfréttir - 01.03.1996, Side 22
Musterið - Ráðstöfun
Guðs okkar til frelsunar
CLAIRE EVA
SÓCUR
SKILABOÐ TIL FORELDRA
OG KENNARA
Mnsterisþjónusta
Gamla testamends-
ins gefur okkur
mynd af frelsuninni
því þar birtist okkur
verk Drottins, Jesú Krists. Það er von
mín að rannsókn á musterinu verði
ykkur jafn mikil blessun og það hefur
verið mér við undirbúning umræð-
unnar.
Nokkrar hugmyndir um hvað er
hægt að gera þessa vikuna eru eftir-
farandi:
1. Að búa til módel af musterinu.
Hægt er að nota skókassa og leir
t.d., eða eitthvað annað.
2. Teiknið myndir af musterinu. Þið
getið teiknað innanstokksmunina
uppistandandi eða liggjandi.
3. Skemmtið ykkur við að baka
kringlótt ósýrt brauð (brauð með
engu geri) eins og skoðunar-
brauðið var.
4. Kveikið kertaljós á meðan rætt er
um ljósastikurnar, eða brennið
reykelsi.
5. Notið spurningarnar úr TIL UM-
RÆÐU dálkinum sem grundvöll
umræðna um það sem við erum
að rannsaka þessa vikuna. Látið
þær verða hvatan að tengdum efn-
um sem ykkur langar að ræða.
HVÍLDARDAGUR
Hvernig getur
Guð elskað
okkur svona
mikið?
MINNISVERS: „Sjáib hvílíkan hœr-
leika fabirinn hefur aubsjnt oss, ab vér
skulum kallast Gubs börn. “ IJh 3.1.
AÐ LENDA í RIGNINGU
í minnisversinu má lesa orðið auð-
sýnt. Annað orð sem þýðir næstum
því það sama er orðið úthellt. Hefur
þú nokkurn tíma lent í hellidembu?
Þegar ég var í þriðja bekk þá gekk
ég í og úr skólanum. Einn efdrmið-
daginn þegar ég var á leiðinni heim
þá sortnaði himininn skyndilega.
Með hárri þrumu þá virtust himnarn-
ir opnast og úthella svölu, hreinsandi
vatni sínu yfir mig! Fyrst óskaði ég
þess að ég hefði tekið með mér regn-
hlíf, en úr því sem komið var lét ég
vatnið renna niður höfuðið á mér,
inn í augu og munn. Eg varð strax
gegndrepa líkt og ég hefði staðið
undir fossi.
Mér fannst þetta frábært! Eg var
gegndrepa og hamingjusöm. Guð
hafði sýnt mér yndislega og vota sköp-
un sína.
GUÐ OG KRISTUR HAFA
LAGT A RAÐIN
Ég þori að veðja að þú hefur ekki
tölu á þeim skiptum sem þú hefur
sungið um kærleika Krists. En hvern-
ig veist þú að Kristur elskar þig?
Hvernig líður þér þegar þú hefur
gert eitthvað rangt? Kannski tókst þú
eitthvað sem þú átdr ekki? Eða kíktir
á próf vinar þíns? Eða særðir ein-
hvern með ljótum orðum eða athöfn-
um?
Hvernig koma foreldrar þínir fram
\dð þig þegar þú gerir eitthvað rangt?
Þykir þeim vænt um þig þó þú gerir
stundum eitt og annað rangt?
F}TÍr langa löngu síðan þá gerðu
langa, langa, langa (og rosalega oft
langa í viðbót) amma og afi okkar,
Adam og Eva, eitthvað mjög rangt.
Þau kusu að trúa Satan í stað þess að
trúa skapara sínum, Jesús, sem
elskaði þau. Vegna þess að þau
treystu ekki Jesú þá syndguðu þau.
Góðu fréttirnar fýrir Adam og Evu
og öll okkur hin eru þær að Guð var
búinn að gera ráðstöfun dl þess að
laga það sem var að. Guð vissi að
Adam og Eva gátu óhlýðnast honum.
Þess vegna voru Guð-faðir og Guð-
sonur búnir að skipuleggja frelsun
þeirra.
Þið þekkið Biblíuversið „Því svo
elskaði Guð heiminn, að hann gaf
son sinn eingetinn“ (Jh 3.16). Nú er
það svo að eftir að Adam og Eva
brutu lögmál Guðs þá var eðlilegt að
þau og öll þeirra börn þyrftu að
deyja. En Kristur elskaði okkur svo
mikið að hann var reiðubúinn að
deyja í okkar stað. Kristur myndi lifa
fullkomu lífi og gefa okkar svo full-
komið líf sitt. Hann hefur verið kall-
aður hin annar Adam vegna þess að
hann kom til að frelsa heiminn og
laga það sem hinn fyrsd Adam eyði-
lagði.
Það var við syndafallið að frelsunar-
áformið var gangsett. Saklaust lamb
varð að deyja. Dauði þessa saklausa
lambs átti að minna fólk Guðs á
hræðilega synd þeirra og einnig Jesú
Kiist, sem er lambið saklausa, sem
fórnað var fýrir syndir okkar.
Vá! Er þetta ekki stórkostlegt.
Löngu áður en þið fæddust, áður en
22
AðventFréttir