Aðventfréttir - 01.03.1996, Síða 28
fyrir ofan lögmálið. Þannig stökkti
hann blóðinu sjö sinnum (sjö er full-
kominn tala). Hann gerði svo slíkt
hið sama með geitarblóðinu. Þegar
hann yfirgaf musterið þá voru syndir
allra yfirfærðar á æðsta prestinn.
Þá fór æðsti presturinn út í forgarð-
inn og stökkti blóði á altarið þar ein-
nig til að þvo það.
Hvað varð þá um hina geitina? Or-
lög geitanna var ráðin með að kasta
hlutkesti um þær. Þetta er eins og að
kasta peningi. Onnur geitin var
brennifórn hin var sektarhafurinn.
Eftir að presturinn kom út úr hinu
allra helgasta og Guð hafði tekið við
fórnunum þá setti hann hönd sína á
sektarhafurinn og játaði syndir Israel
sem hann bar með sér. Geitinni var
svo sleppt í eyðimörkina. Sektarhaf-
urinn tók þá á brott alla synd. Fólkið
var alveg dásamlega hamingjusamt
þegar syndir þeirra voru á brott. (Les-
ið Patriarchs and Prophets, bls. 355).
JESÚS KRISTUR - ÆÐSTI
PRESTUR OKKAR
Jesús er æðsti presturinn okkar (sjá
Hebreabréfið). Hvað merkir það? Þú
manst að jarðneska musterið er bara
eftirmynd af því himneska. Þannig er
það líka með æðsta prestínn. Við
skulum athuga hvað Guð er
að reyna að segja okkur.
Dýrmæt klæði æðsta prests-
ins segja okkur að verk hans
er heilagt. Verk Jesú fyrir okk-
ur er heilagt og virt af Guði.
Manstu eftir steinunum tólf?
Hann hafði þessa tólf steina
yfir hjartanu til að sýna hver-
su mikilvægir hinir tólf ætt-
bálkar voru honum.
Heldur þú að Kristur sé
með okkur við hjartastað?
Það er hann svo vissulega! Við
erum ekki bara við hjarta
hans, við erum í því!
Æðstu prestarnir stigu inn í
návist Guðs í hinu allra helg-
asta. Eftir dauða sinn fór
Kristur til návistar við Guð á
himnum. Hvernig var það
öðruvísi en hjá hinum jarð-
neska presti? Jesús er æðsti
prestur, hreinn, flekklaus og
heilagur. Hann fór inn í heil-
agra musteri en hið jarð-
neska, musteri sem er ekki
byggt af manna höndum
heldur himneskum verum
(Heb 7.26; 9.24).
Kristur fór inn í nærveru Guðs með
sitt eigið blóð, ekki blóð nautgripa
eða geita. Þú skilur, presturinn ájörð-
inni varð að fara inn í musterið einu
sinni á ári með blóð fórna sem gátu
ekki fjarlægt synd. Jesús fór inn í eitt
einasta skipti með sitt eigið blóð og
það dugði til að hreinsa burt alla synd
og frelsa okkur um eilífð (Heb 9.12,
27).
Manstu að þegar Kristur dó þá rifn-
aði fortjaldið milli hins heilaga og
allra helgasta? Biblían segir okkur að
með blóði sínu opnaði Kristur nýja
leið gegnum tjaldið að föðurnum. Sú
leið er í gegnum Jesú Krist. Þegar
Kristur dó á krossinum þá opnaðist
okkur leið að nálgast Guð. Jesús Krist-
ur er bæði fórn okkar og æðsti prest-
ur (Heb 10.19, 20).
Jesús frelsar okkur algjörlega ef við
leitum til hans. Hann er leiðin. Hann
er fortjald okkar. Hann opnaði okkur
leið að hásæti Guðs.
Minnisversið okkar segir að Jesús
biðji fyrir okkur. Það þýðir að Jesús
ekki bara dó fyrir okkur heldur talar
líka okkar máli. Hann er nokkurs
konar lögfræðingur sem talar máli
skjólstæðinga sinna. Hann er Kortn-
ey, sem talaði fyrir Amad. Jesús er við
hægri hönd Guðs (sem er betri hönd-
in) og talar fyrir okkur.
inn sem þýddi þájá ef það var
hægri steinninn eða nei ef
það var sá vinstri.
Af hveiju heldur þú að Guð
hafi valið þennan fatnað á
prestana? Vegna þess að hann
vildi að allir skildu að hlut-
verk æðsta prestsin er sérstakt
og heilagt verk.
VERK ÆÐSTA
PRESTSINS
Áður en æðsti presturinn
fór inn í hið allra helgasta á
friðþægingardaginn mikla þá
undirbjuggu Israelsmenn
daginn af kostgæfni. Tjald-
búðin öll var þrifin, þeir ját-
uðu syndir sínar og báðu til
Guðs. Þetta var dagur bæði
blessunar og dóms. Hvaða
fórnum yrði tekið? Mundu
syndir þeirra verða fyrirgefn-
ar? Mundi musterið verða
hreint og fínt aftur?
Á þessum helga degi þá tók
æðsti presturinn af skraut-
klæðnaðinn áður en hann fór
inn í hið allra helgasta. Guð hafði
skipað svo fyrir að hann skyldi klæð-
ast heilögum kyrtli með mittislinda
og hafa á höfði sínu vefjahött.
Eg er viss um að æðsti presturinn
skalf þegar hann steig inn í hið allra
helgasta. Fólkið bað og beið í ofvæni
eftir blessun Guðs. Þeim var gert að
bíða fyrir utan en í huga og hjarta fyl-
gdu ])eir allir æðsta prestinum inn.
Þeir hlustuðu eftir bjöllunum á klæð-
um prestsins. Þeir biðu spenntir eftir
að hann kæmi aftur út. Þeir vissu að
ef æðsti presturinn játaði ekki syndir
sínar þá mundi Guð eyða honum fyr-
ir ásjónu sinni.
Á friðþægingardaginn mikla völdu
þeir ungnaut og tvær geitur. Fyrst
fórnuðu þeir nautinu fyrir æðsta
prestinum og allri hans fjölskyldu.
Þar næst fórnuðu þeir einni geit fyrir
syndir fólksins.
Áður en hann tók blóð fórnardýr-
anna þá fór æðsti presturinn með tvo
hnefa reykelsis inn í hið allra helg-
asta. Hann tók líka brennandi kol frá
altarinu sem var frammi fyrir Guði.
Hann bar eld að reykelsinu svo reyk-
mökkurinn þakti náðarstólinn.
Þannig varði hann líf sitt frammi fýrir
dýrð Drottins.
Þar næst tók æðsti presturinn blóð
nautsins og stökkti því á náðarstólinn
28
AðventFréttir