Aðventfréttir - 01.03.1996, Page 30
hvað sér hann? Hann sér yndislegan,
fullkominn og elskaðan son sinn.
Hvað sér Guð þegar hann horfir á
mig og þig? Eg veit að hann elskar
okkur mikið en við erum samt synd-
arar.
Opnaðu nú Biblíuna í miðjunni.
Taktu bókamerkið eða pappírs mið-
ann og settu inn í Biblíuna og lokaðu
henni svo. Hver sögðum við að væri
Biblían? Alveg rétt, það er Jesús. En
hver er bókamerkið? Það ert þú. Þeg-
ar Guð horfir á þig núna hvað sér
hann? Nú sér hann sér bara Jesús. Al-
veg eins og bókamerkið er falið í Bibl-
íunni þá erum við falin í Kristi. Þegar
Guð lítur á þig þá sér hann bara full-
komið og fallegt líf Jesú Krists.
Þannig, krakkar mínir, veröur það á
dómsdegi. Ef við játumst Jesú Kristi
þá mun hann taka okkar stað. Hann
er réttlæti okkar og góðleiki.
TIL UMRÆÐU OG
ATHAFNA
Rannsakið Efesusbréfið og teljið
hversu oft það er sagt í honum eða í
Kristi. Það hefur verið sagt að þegar
við klæðumst góðleika Ki ists þá hitn-
ar okkur að innan og það hjálpar
okkur að vera líkari honum. Ræðið í
fjölskyldunni hvort og hvernig þetta
geti verið satt.
HVÍLDARDAGUR
Himinn
ajorö
MINNISYERS: „Og ég sá borgina
helgu, nýja Jerúsalem, stíga nibur af
himnifrá Gwbi, búna sem brúibi, er skart-
ar fynr manni sínum. Og ég heyrði raust
mikla frá hásætinu, er sagbi: Sjá, tjald-
búb Gubs er mebal mannanna og hann
mun búa hjá þeim, og þeir munu vera
fólk hans og Gub sjálfur mun vera hjá
þeim, Gub þeirra. “
Opb 21.2, 3.
ÉG KEM STRAX AFTUR
Flugvélin var full af fólki þegar hún
millilenti örstuttu áður en hún hélt
svo af stað til síðasta áfangastaðar. Þó
nokkrir nýir farþegar bættust í hóp-
inn.
Eiginmaðurinn minn, sem er prest-
ur, var í þessu flugi. Hann tók eftir
ungri móður sem kom í vélina með
tvö börn. Annað barnið var svo lítið
að það þurfti að bera það. Hitt var lít-
il fjögurra ára stúlka. Hún var með
kringlótt blá augu og hrokkið ljóst
hár.
Móðirin var, eins og tamt er með
ungar mæður, með fangið fullt. Hún
hélt á barninu, tösku með barnadóti
og kerru. Hún fann engan stað að
setja kerruna á. Hún varð því að fara
og leita að plássi fyrir kerruna.
Hún útskýrði þetta fyrir stúlkunni
og lét hana fá bók til að lesa. Það síð-
asta sem hún sagði við stúlkuna áður
en hún fór var, „Eg kem strax aftur.“
Litla stúlkan horfði á eftir mömmn
sinni ganga eftir ganginum. Hún leit
ekkert glöð út þegar mamma fór.
Heldur þú að hún hafi lesið mikið í
bókinni? Nei, hún vildi bara fá að vita
hvenær mamma kæmi aftur. Hún
horfði á þann stað sem hún bjóst við
mömmu aftur.
Mamman var ekki lengi í burtu,
bara nokkrar mínútur. En litlu
stúlkunni fannst þetta heil eilífð. Þú
getur ímyndað þér hvað andlit henn-
ar ljómaði af gleði þegar mamma
kom aftur. Það voru fagnaðarfundir.
Litla stúlkan tók gleði sína aftur og
lék við hvern sinn fingur. Mamma
hennar hafði lofað að koma aftur og
eins og allar góðar mæður gerði hún
það líka.
ÞESSI SAMI JESÚS
Þessi saga sem ég var að segja ykkur
minnir mig á sögu úr Biblíunni. Post-
ulasagan 1.9-11, segir okkur frá síð-
ustu orðum Kiists áður en hann var
„upp numinn að þeim ásjáandi, og
ský huldi hann sjónum þeirra. Er þeir
störðu til himins á eftir honum, þeg-
ar hann hvarf, þá stóðu hjá þeim allt
í einu tveir menn í hvítum klæðum
og sögðu: Galíleumenn, hví standið
þér og horfið til himins? Þessi Jesús,
sem varð upp numinn frá yður til
himins, mun koma á sama hátt og þér
sáuð hann fara til himins.“ Hann
kemur aftur.
FRÁ HÁSÆTI GUÐS
Guð gaf Opinberunarbókina í sýn
til Jóhannesar til að segja okkur hvað
myndi gerast á jörðinni. Bókin heitir
Opinberunarbókin vegna þess að
lnin opinberar líf og starf Jesús. Jó-
hannes var á þessum tíma fangi á eyj-
unni Patmos vegna þess að hann vildi
prédika orð Guðs og trúði á Jesú
Ki ist. Það var þegar að aldraður læri-
sveinninn sat einn á eyjunni að Jesús
birtist honum og sagði honum frá því
sem myndi gerast á jörðinni áður en
hann kæmi aftur.
I Opinberunarbókinni segir Jó-
hannes að hann hafi séð hásæti him-
insins. Þar sá hann Guð sitja í hásæt-
inu. Hann sá margar verur sem til-
báðu Guð. Hann sá einnig lambið
sem fórnað var og ljónið af kynstofni
Júda. Englarnir voru að störfum að
gera það sem Guð bauð.
I Opb 5, heldur Guð á bókrollu í
hægri hendi. Bókrollan er innsigluð
með sjö innsiglum - hin fullkomna
tala Guðs. „Og ég sá sterkan engil,
sem kallaði hárri röddu: Hver er
maklegur að ljúka upp bókinni og
leysa innsigli hennar? En enginn var
sá á himni eða jörðu eða undir jörð-
unni, sem lokið gæti upp bókinni og
litið í hana“ (vers 2 og 3).
Jóhannes grét vegna þess að eng-
inn var verðugur opna bókina. Af
hveiju heldur þú að hann hafi grátið?
Eg held að Jóhannes hafi vitað að ef
enginn gat opnað bókina þá átti
hann enga von.
En þá sagði einhver í herbergi há-
sætisins, „Grát þú eigi! Sjá, sigrað hef-
ur ljónið af Júda ættkvísl, rótarkvistur
30
AðventFréttir