Aðventfréttir - 01.03.1996, Qupperneq 31

Aðventfréttir - 01.03.1996, Qupperneq 31
Davíðs, hann getur lokið upp bókinni og innsiglum hennar sjö“ (vers 5). Þá, í stað ljóns sá hann lamb sem leit út eins og því hefði verið slátrað. Lambið stóð fyrir miðju hásætinu. Allar verur og öldungarnir krupu fyr- ir lambinu og þúsundir þúsunda engla sungu, „Maklegt er lambið hið slátraða að fá máttinn og ríkdóminn, \ isku og kraft, heiður og dýrð og lof- gjörð“ (vers 12). Þá bættustvið þenn- an hóp, „allt skapað, sem er á himni ogjörðu og undir jörðunni og á haf- inu, allt sem í þeim er, heyrði ég segja: Honum, sem í hásætinu situr, og lambinu, sé lofgjörðin og heiður- inn, dýrðin og krafturinn um aldir alda“ (vers 13). Opinberunarbókin heldur svo áfram og segir okkur frá endalokum þessa heims eins og við þekkjum hann. Vegna þess að lambið er mak- legt þá eru innsiglin brotin og bók- rollan opnuð. Sterkir englar fara til verka tíl að gera vilja Guðs á jörðinni. Ibúar jarðarinnar eru dæmdir og börn Guð eru frelsuð. Fyrst eru þeir sem hafa dáið í Kristi hrifnir til him- ins og síðan allir sem eru lifandi. BORGIN HELGA KEMUR NIÐUR I þessari sýn sá Jóhannes borgina helgu þar sem Guð og fólk hans býr. Hún kom niður af himni. Jóhannes var hamingjusamur þegar hann lýsti borginni: „Hún hafði dýrð Guðs. Ljómi hennar var líkur dýrasta steini, sem jaspissteinn kristalskær. Hún hafði mikinn og háan múr og tólf hlið og við hliðin stóðu tólf englar og nöfn þeirra tólf kynkvísla Israelssona voru rituð á hliðin tólf“ (Opb 21.11, 12). Lestu lýsinguna á borginni í Op- inberunarbókinni. Grunnur borgar- innar og veggir voru þaktir eðalstein- um. Jóhannes nefnir suma af sömu steinum og æðsti presturinn hafði á brjóstbrynju sinni! Líkt hann eitt sinn hafði okkur nálægt hjartastað þá umlykur hann okkur kærleika þar. Borgin heilaga í minnisversinu verður hér á jörðinni. Raunverlegt musteri Guðs verður hjá okkur að ei- lífu. Þegar Kristur var hér á jörðinni þá bað hann Guð-föður, „Faðir, ég vil að þeir, sem þú gafst mér, séu hjá mér, þar sem ég er, svo að þeir sjái dýrð mína, sem þú hefur gefið mér, af því að þú elskaðir mig fyrir grund- völlun heims“ (Jh 17.24). Þegar Kristur kemur aftur þá mun- um við sjá hann augliti til auglitis. Það verður ekkert sem skilur okkur að frá honum. Við munum líta dýrð hans. ÞAR TIL ÞÁ Ef við elskum Jesús þá höldum við boðorðin hans og fylgjum honum hvert sem það kann að leiða okkur. Við erum mikilvæg í hans augum og hann þarf að vera mikilvægur í okkar hugum. Við skulum horfa til Jesú. Guð seg- ir okkur að með því að horfa á hann þá verðum við eins og hann. Ekkert „getur skilið okkur frá kærleika Guðs sem er í Jesú Kristi; ekki vegna þess að við höldum svo fast í hann heldur vegna þess að hann heldur okkur ör- ugglega“ (The Acts of the Apostles, bls. 553). Kristur segir okkur, ,Já, ég kem skjótt. Amen.“ Já, „Kom þú, Drottinn Jesús!“ (Opb 22.20. Claire Eva kenndi 2. beltk í Spring Valley Academy í Centerville, Ohio. Hún er nýflutt ásamt manni sínum til Maryland. AðventFréttir 31

x

Aðventfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.