Vísbending - 22.12.2008, Blaðsíða 4
BENEDIKT JÓHANNESSON
Vitnið
Frásögn af uppljóstrara í samráðsmáli þar sem ekki var allt sem sýndist
Mark Whitacre var einn af yfirmönnum í Archer Daniels
Midland (ADM), stóru amerísku efeavörufyrirtæki.
Whitacre var ftábært vitni. Þegar bandariska alríkislög-
reglan FBI fær samkeppnismál til rannsóknar em sönnunargögnin
stundum mikil en sjaldnast afgerandi. Auðvitað byggist mál af þessu
tagi þar og annars staðar á því að einhver innan fyrirtækisins skýri
málin, tengi saman lausa enda og setji öll gögnin í eðlilegt samhengi.
En Whitacre gerði miklu meira en að skýra málin. Hann tók upp fundi
með fulltrúum fyrirtækisins og keppinautunum. Það var ekki hægt að
hugsa sér betri sönnunargögn í einhveiju viðamesta verðsamráðsmáli
sem FBI og ákæmvaldið höfðu nokkm sinni séð. Eini gallinn var sá
aó vitnið var afar einkennilegur maður. Hann svitnaði í yfirheyrslum,
en það var svosem enginn glæpur, en var heldur ekki sjálfum sér sam-
kvæmur sem var verra. Það var eitthvað sem gekk ekki upp.
Iðnnjósnir
Það er alþekkt að keppinautar reyna að komast að framleiðslu-
leyndarmálum hvers annars. I Bandaríkjunum vom menn lengi vel
sannfærðir um að velgengni Japana í efhahagsmálum byggðist ekki
síst á því að þær stælu uppfinningum annarra. Þess vegna höíðu fram-
kvæmdastjórar ADM vara á sér þegar keppinautamir komu í heim-
sókn. Keppinautamir vom reyndar líka viðskiptavinir því að sumir
þeirra seldu ADM hráefni og aðrir keyptu af þeim vömr í sína ffam-
leiðslu. Hluti af ffamleiðslunni byggðist á lifandi gerlum og þá skipti
miklu máli hvaða fyrirtæki hafði forskot í rannsóknum.
Það kom illa við forstjóra ADM þegar Mark Whitacre, sem var
í stjömuliði stjómenda, ungur maður með doktorsgráðu sem hafði
verið yfirmaður í einni af stærstu deildum fyrirtækisins sagði frá því
að japanskur maður sem hann tiltók hefði hringt í sig og sagt sér ffá
því að hann vissi mjög margt um fyrirtækið. Meðal annars vissi hann
að ffamleiðsla á ákveðnu sviði hefði átt í miklum vandræðum. Það
kom ekki til af góðu að Japaninn vissi svona mikið; það var einhver í
fyrirtækinu sem lak til þeirra upplýsingum. Meginástæðan fyrirþví að
hann hringdi var samt sú að hann taldi sig hafa lausn á vanda ADM,
japanska fyrirtækið hefði einmitt rétta gerilinn til þess að laga ffam-
leiðsluna. Fyrir gerilinn vildu Japanimir fá 10 milljónir dala.
Þetta var lygileg saga en gat allt verið rétt. Forstjórinn þekkti auð-
vitað þetta japanska fyrirtæki og það stemmdi að maðurinn sem hafði
hringt hafði nýlega komið í heimsókn. Hann sagði Whitacre að láta
sig vita efhann fengi fleiri símtöl.
ADM varekkert smáfyrirtæki. Forstjórinn og stjómarformaðurinn
vom feðgar. Fjölskyldan hafði lengi ráðið fyrirtækinu þó að það væri
á markaði og þekktir menn í stjóm. Þingmenn og forsetar höfðu reglu-
lega samband við feðgana og á sínum tíma sá eldri Michael Gorbac-
hoff, leiðtoga Sovétrikjanna, fyrir bandarískum ráðamönnum. Sam-
böndin vom í góðu lagi hjá þeim feðgum. Þegar þeir ræddu málið um
kvöldið ákvað sá eldri að þetta væri ekki mál fyrir bæjarlögregluna.
Hann hringdi í vini sína hjá CIA og bað þá að skoða málið. Þetta var
árið 1992 og heimurinn var að læra á samskipti eftirkalda stríðið.
CLA má lögum samkvæmt ekki skipta sér af málum innan Banda-
ríkjanna þó að stundum hafi orðið misbrestur þar á . Þó að þama væri
um að ræða alþjóðlegar iðnnjósnir tók það ekki langan tíma fyrir
yfirmenn njósnaþjónustunnar að beina málinu til alríkislögreglunnar
FBI. Svona mál áttu heima þar.
Nokkmm dögum seinna vom fúlltrúar FBI í Illinois komnir á fúllt í
rannsóknina. Ekki var hægt að segja að þetta væm James Bond týpur.
Miklu ffemur þróaðir sveitalögregluþjónar. Samt vom þeir hluti af
stærstu rannsóknalögregluliði í heimi. Rannsóknin byggðist fyrst og
íremst á viðtölum við Whitacre sem sagði þeim að Japaninn hefði
hringt nokkmm sinnum í sig undanfarinn mánuð og boðskapurinn
alltaf sá sami. FBI ákvað að hlera síma Whitacres. Japaninn hringdi
ekkert næstu tvær vikur.
Whitacre líkaði ekki að þurfa að svara spumingum FBI. Honum
fannst þetta innrás í einkalíf sitt. Þaðan af síður fannst honum gott
að síminn væri hleraður. Hann kvartaði undan því við yfirmenn sína
4 | VÍSBENDING