Vísbending


Vísbending - 22.12.2008, Blaðsíða 17

Vísbending - 22.12.2008, Blaðsíða 17
Efnahagskreppur á íslandi í sögulegu Ijósi t að er íreistandi að telja hagsögu íslands fiá lokum 19. aldar til okkar tíma sem velheppnaða aðlögun að nútímalegu markaðsþjóðfélagi. Efnahagslíf tók stórstígum breytingum á þessum tíma og Islendingar komust í hóp ríkustu þjóða heims þegar leið á 20. öldina. Frá 1870 til aldamótanna 2000 óx landsfiamleiðsla á mann að meðaltali um 2,4% á ári sem er talsvert yfir meðalhagvexti í Vestur-Evrópu, ríkasta hluta heimsins. En hagþróunin hefúr ekki verið ein samfelld framfara- og hagsældarsaga. Fram um 1940 voru Islendingar enn með fátækari þjóðum og nam landsffamleiðsla á mann aðeins um 60% af meðaltali annarra landa Vestur-Evrópu. Islendingar þurftu einnig að búa við mikinn óstöðugleika í efnahagslífi því að hagvöxtur var sveiflukenndari en í flestum nálægum löndum bæði vegna breytinga í náttúrulegu umhverfi efnahagslífs og sveiflna á mörkuðum í útlöndum. Hagkerfi eins og hið íslenska verða oft fyrir skellum sem ýmist koma utan fiá eða innan, en aðeins í fáum tilvikum leiða þeir til almennrar efnahagskreppu með tilheyrandi samdrætti í framleiðslu, atvinnu og tekjum. Við skulum huga nánar að kreppum. Kreppur og kapítalismi Á fyrri tímum voru slæmt árferði, uppskembrestur eða jafnvel styrjaldir algengar orsakir efnahagskreppu. Alvarlegar kreppur lýstu sér í hungri og mannfelli enda lifði fólk oft nálægt hungurmörkum og lítið mátti út af bera svo að ekki hlytust stórvandræði af. Kreppur fólust þannig í meiriháttar vandræðum samfélagsins við að afla lífsnauðsynja, sérstaklega matar. Á 19. öld urðu kreppur reglulegri og þær tengdust æ meir alþjóðlegum skellum i framboði eða eftirspum en uppskembresti eða stríði. Órói á fjármálamörkuðurn fór að hafa víðtækari áhrif á efnahagslíf en áður, eins og sannaðist í miklum efnahagssamdrætti i Bandan'kjunum og viða á meginlandi Evrópu eftir 1873. Framgangur kapítalismans og hnattvæðingin sem hófst á 19. öld drógu æ fleiri lönd undir hið alþjóðlega viðskiptakerfi og gerði þau um leið berskjaldaðri fyrir hagsveiflum kapítalismans. Kreppur með fjöldaatvinnuleysi eins og varð á fjórða áratug 20. aldar í Bandaríkjunum vom óhugsandi fýrir borgarastríðið 1861-1865 vegna þess að þá vom flestir starfandi menn einyrkjar eða þrælar. Verðbréfahrun gátu ekki orðið að almennum kreppum fyrr en hlutafélög á markaði og verðbréfaeign vom orðin útbreidd. Fjármálakreppan sem nú heijar á Vesturlönd heföi ekki náð sömu hæðum fýrir nokkmm áratugum þegar efhahagsleg hnattvæðing og flármálakapítalisminn vom miklu skemmra á veg komin. Sumar af hagsveiflum kapítalismans hafa verið svo stórar og langvinnar að það tók samfélögin sem fyrir barðinu á þeim urðu mörg ár, jafhvel áratugi, að vinna sig út úr þeim. Það á t.d. við um tvær stærstu kreppur sem gengið hafa yfir Vesturlönd síðustu eina og hálfa öldina, kreppuna löngu 1873-1896 og kreppuna miklu 1929-1939. Álitamál er hvort fjármálaáfallið sem nú dynur yfir muni leiða til jafndjúptækrar almennrar kreppu eins og hinar fyrri tvær. Heimsstyijaldimar tvær em oft undanskildar þegar rætt er um efhahagskreppur vegna þess skakkaföllin sem af þeim leiddu vom af sérstökum toga, hmni og eyðileggingu af völdum stríðsátaka. Engu að síður varð heimsbyggðin fyrir meira efhahagslegu tjóni af völdum þeirra en nokkurra annarra áfalla, hvort heldur það er metið í samdrætti landsframleiðslu eða á aðra mælikvarða. Efnahagskreppur á íslanái 1870-2000 Nokkur alvarleg samdráttarskeið hafa hrjáð íslenskt efhahagslíf frá síðari hluta 19. aldar til okkar tíma. Þær tengjast skellum sem þjóðarbúið varð fyrir ýmist vegna utanaðkomandi áhrifa (t.d. versnandi viðskiptakjara og sölutregðu á íslenskum afurðum) eða innlendra áfalla (t.d. samdráttar í fiskveiðum). Þessir skellir hafa leitt til þess að landsframleiðsla minnkaði og kjör manna skertust. Helstu samdráttarskeiðin á lýðveldistímanum vom af þessu tagi, þ.e. árin 1948-1952 (rúmlega 7% samdráttur landsframleiðslu), 1967-1968 (6,7% samdráttur) og 1990-1992 (3,6% samdráttur), en í öll þessi skipti varð líka talsvert atvinnuleysi og sýnu mest uppúr 1990. En alvarlegustu áföllin á síðari tímum tengjast vandræðum í fjármálakerfmu, nefhilega á tímabilinu 1882-1887, 1914-1923 og 1929-1939. Súluritið sýnir stærstu samdráttarskeið í hagsögu Islands frá 1870 til samtímans og er mælt frá toppi niður í botn hagsveiflunnar. Hagfræðingar gera ofl greinarmun á samdrætti (e. recessiorí), þ.e. þegar landffamleiðsla dregst saman tvo ársfjórðunga í röð, og kreppu (e. depressiorí), þ.e. haglægð sem veldur meira en 10% samdrætti landsffamleiðslu. Aðeins tvö tímabil geta samkvæmt þessu kallast kreppur, þ.e. 1882-1883 og 1914-1920. Önnur VÍSBENDING I 17

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.