Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.12.2011, Qupperneq 27

Fréttablaðið - 30.12.2011, Qupperneq 27
30. DESEMBER 2011 FÖSTUDAGUR | KYNNING - AUGLÝSING | Líkamsrækt og nsering | 9 Árið 2012 er þitt ár Hjá Lifandi markaði er hægt að gera áhyggjulaus innkaup fyrir heimilið, sækja námskeið og ýmiskonar fróðleik um holla lifnaðarhætti. Fram undan eru námskeið í samstarfi við næringarþerapislann Þorbjörgu Hafsteinsdóttur og opnun nýrrar verslunar. ArndísThorarensen framkvæmdastjóri ásamt Þorbjörgu Hafsteinsdóttur sem mun halda námskeið í samstarfi við Lifandi markað íjanúar. fréttablaðið/stefan „Við finnum að það er mikil vit- undarvakning í samfélaginu. Neytendur eru ekki einungis með- vitaðri en áður um hollustu held- ur gera auknar kröfur um að vita hvaðan vörurnar koma og að það sé tryggt að þær séu framleiddar við góðar aðstæður í sátt við um- hverfið, segir Arndís Thorarensen, framkvæmdastjóri Lifandi mark- aðar þar sem áherslan er á að bjóða hreina mat-, hreinlætis- og snyrti- vöru auk fræðslu og námskeiða. Nýtt ár byrjar af krafti hjá Lifandi markaði í samstarfi við Þorbjörgu Hafsteinsdóttur, næringarþerap- ista, sem mun bjóða spennandi 4-vikna námskeið sem hefjast 10. janúar. Heilbrigður Iffsstíll og upplýst innkaup að leiðarljósi Arndís bendir á að undanfarna áratugi hefur þróunin verið sú að menn reyna að draga úr fram- leiðslukostnaði og lækka verð sem óhjákvæmilega kemur niður á gæðum, m.a. með því að bæta ým- iskonar fyllingar-, litar- og bragð- efnum í matvæli. „Vörurnar okkar eru án skaðlegra aukefna og því óþarfi að lesa innihaldslýsingarn- ar hjá okkur. Við sjáum um það." Arndís segir málin líka skoðuð í víðara samhengi og þar með áhrif neyslu á umhverfið. „Við erum afar þakklát fyrir þann meðbyr sem við finnum með því sem Lifandi mark- aður stendur fyrir í kjölfar nýaf- staðinna áherslubreytinga - að vera valkostur á matvörumarkaði með heilbrigðan lífsstíl og upplýst innkaup að leiðarljósi. Meðal nýjunga hjá Lifandi markaði á nýju ári er samstarf við hjúkrunarfræðinginn og nær- ingarþerapistann Þorbjörgu Haf- steinsdóttur, sem er höfundur metsölubókanna Matur sem yngir og eflir og 10 árum yngri á 10 vikum. Hún mun bjóða einstak- lingsráðgjöf og halda námskeið og hefst það fyrsta, Gerðu 2012 að þínu ári, þann 10 janúar. „ Það sem ég hef verið að gera síðustu ár og áratugi rímarvel við áhersluna hjá Lifandi markaði. Mín reynsla er sú að það er best að byrja smátt og ef hver og einn tekur til hjá sjálf- um sér hefur það sjálfkrafa já- kvæð áhrif á umhverfið. Ég vinn því meira á einstaklingsgrunni og kenni fólki að nýta sér þá matvöru og hjálp sem er í boði með fræðslu og innblæstri. Ég fer yfir það hvern- ig líkaminn virkar og hvaða mat við eigum að borða til að fá hann til að vinna sem best. Ef fólk borð- ar skynsamlega og velur það besta sem náttúran hefur upp á að bjóða gerist hitt nokkuð sjálfkrafa. Við grennumst, fáum meiri orku, okkur líður betur og við lítum betur út." Þorbjörg hefur verið búsett í Danmörku í þrjátíu ár en verið með annan fótinn á íslandi síðasta ára- tug. „Nýtt ár markar alltaf ákveðin tímamót en það er aldrei mikilvæg; ara að tileinka sér nýtt hugarfar en á krepputímum. Lítum á þetta sem tækifæri til að breyta um stefnu. Byrjum á okkur sjálfum með því að heiðra líkama okkar og umhverfi og snúum við blaðinu á nýju ári." Samkeppnishæft verð í Lifandi markaði er hægt að ganga að góðum vörum vísum auk þess sem þangað er ýmiskonar nám- skeið og fróðleik að sækja. „Við vilj- um bjóða vörur frá aðilum sem eru að gera betur og því geta viðskipta- vinir okkar treyst. Það sem kemur mörgum líka á óvart er að við erum með algerlega samkeppnis- hæft verð. Við erum í þessu til langs tíma og viljum vinna með samfé- laginu að betri heilsu og umhverfi. í því skyni leggjum við áherslu á enn betra aðgengi að vörunum okkar og stefnum að opnun nýrrar verslun- ar á nýju ári, segir Arndís að lokum. Nánari upplýsingar um námskeið Þorbjargar er að finna á www.lif- andimarkadur.is Ferskleikinn er í fyrirrúmi i verslunum Lifandi markaðar. I verslunum Lifandi markaðar er hægt að ganga að góðum vörum vísum. P* ||W| j 2,000 IU rvyii Allt á einum stað Borgaj'túni 24 | Hæðasmára 6 | Hafnarborg Hvort sexn það eru bætiefni eöa hollur og lífrænn matur - þá þarftu aðeins að koma við á einum stað til að klára innkaupin. LIFANDI markaður er verslun og veitingastaður fyrir þá sem vilja lifa vel. www.Ufandimarkadur.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.