Heimilisritið - 01.08.1943, Page 5

Heimilisritið - 01.08.1943, Page 5
í því hjónabandi, sem annar aðilinn hef- ur farið meir að ráðum skynseminnar en hjartans þegar stofnað var til hjónabands- ins, vakna fyrr eða síðar vandasamar spum- ing:ar, sem krefjast úrlausnar. að hafði upp ur trúlofun hennar og kafteins Saville Cross. Margaret hafði verið trúlofuð Saville Cross. Hann var af góðum ættum og faðir hans bjó á fögru ættaróðali í Suður-Englandi. Hún minntist þess með sársaukasting i hjarta, er hamingjuóskirnar dundu vfir þau Cross í London, eftir að þau höfðu opinberað. En lífið er hverfult. Þegar hún leit aftur í tímann. átti hún erfitt með að átta sig á, hve nú var langt síðan. Hún vissi það eitt, að hún hafði elskað Saville Cross meira en hún gæti elskað nokkurn annan mann. Hann var sá f.vrsti og síðastl í hjarta hennar. Hár og dökk- ur með beinabert útitekið andlit. Þau höfðu orðið _ ástfangin við fyrsta augnatillit.' Hún hafði farið í samkvæmi með Leon Winston, sem oft var förunaut- ur hennar, þegar hún fór út. Henni hafði alltaf geðjazt vel að honum. Það var beinlínis ekki hægt annað en líka vel við Leon, ef maður kvnnt- ist honum; hann var svo góður og hjálpsamur. Henni fannst hrnn ást- úðlegur, en hún elskaði hann ekki. Henni var kunnugt um að hann ætl- aði að,biðja hennar, og hún gerði sér það ljóst, að hún myndi að öllum líkindum játast honum. En þá skaut Saville Cross skyndi- lega upp. Hann hafði brosað til Margaret, og hinar hvítu tennur hans höfðu virzt enn hvítari, en þær í raun og veru voru, af því að andlit- ið var svo brúnt. Hann hafði veifað til hennar og hún hafði gegnt kalb hans. Og hún vissi, að á meðan hún lifði, þyrfti hann aðeins að veifa til hennar — þá myndi hún yfirgefa allt og fylgja honum. Hann var allt, ser.i hún elskaði og dáðist að. Dökkur á brún og brá, gamansamur, orðhepp- inn og ágætur reiðmaður. Leon Winston var hinsvegar mesti klaufi að eiga við hesta. Þau höfðu trúlofazt fyrirvaralaust. Hún fór með honum á gamla óðalið til foreldra hans. Hún hafði orðið dá- lítið undrandi þegar hún sá, að eign- in var í hinni mestu niðurníðslu, en fjölskyldan var alúðleg og tók henni opnum örmum. Allt lék í lyndi þangað til faðir Margarete var boðið þangað í heim- sókn, og faðir Saville fór að ræða um heimanmund brúðarinnar. Þá kom misskilningurinn í ljós. Fjöl- skylda Saville hafði álitið Margar- ete af auðugu fóllci komna, en sann- leikurinn var sá, að faðir hennar hafði rétt rúmlega til hnífs og skeið- ar. Það gat af þessum orsökum ekki HEIMILISRITIÐ 3

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.