Heimilisritið - 01.08.1943, Side 7

Heimilisritið - 01.08.1943, Side 7
einu, -að hann hefði ekki tíma til þess. Aldrei þessu vant hafði hún rokið upp á nef sér. „Hvað í ósköpunum ertu eiginlega alltaf að gera í borginni?" Hann hafði brosað, lyft annarri augabrúninni og sagt: „O, hitt og þetta“. Hún hafði litið rannsakandi og undrandi á hann. I fyrsta sinn datt henni í hug, að ef til vill leitaði hann huggunar hjá annarri. Og hvernig sem á því stóð. gerði þessi grunur henni gramt í geði. Því leng- ur sem hún hugleiddi þetta, því sannfærðari varð hún um, að þannig hlaut það að vera. Hún gat ekki sætt sig við slíka minnkun! Hún ætlaði í eitt skipti fyrir öll að fá upplyst, hvernig í öllu lá. Ef hann var ótrúr henni, gæti hún ef til vill krafizt skilnað- ar. Og þegar Saville kæmi aftur frá Indlandi — ef hann kæmi aftur, þá. . Það var ljótt að láta njósna um manninn sinn — innst inni skamm- aðist hún sín. En samt sem áður fór Margaret sjálf til London til þess að ræða við leynilögregluþjón, sem ekki var í þjónustu þess opinbera. Spæjarinn lofaði að láta hana vita jafnskjótt og hann kæmist á spor- ið. Hann fullyrti,' að eitthvað hlyti að vera grunsamlegt við það, að maður hennar skyldi una sér svo vel í borginni, fyrst hann hefði þar eng- um störfum að sinna. Margaret hélt heimleiðis hnevksl- uð yfir sjálfri sér. Maðurinn hennar hafði ávalt sýnt henni hlýju og nær- gætni. Hún hafði ýtt honum til hlið- ar og snúið til hans aftur. þegar hún þurfti á honum að halda. Hann hafði ávallt verið henni góður. þó að hún hefði oft sýnt honum hið gagnstæða. Samvizkubitið fékk vfirhöndina, þegar hún kom á móts við næsta pósthúsið í nágrenni heimilis henn- ar. Hún gekk þangað inn og skrif- aði símskeyti til spæjarans og bað hann um að fresta framkvæmdum, þar til hún talaði við hann aftur. Þá tók hún eftir því, að þarna voru svo margir, sem þekktu hana, að hún hætti við að senda skeytið. LJÚN fór inn í húsið bakdyrameg- 1 1 in og flýtti sér upp í herbergi sitt, til þess að skipta um föt. Bryt- inn varð var við komu hennar og hún hafði naumast lokað dyrunum á herbergi sinu, þegar hann kom ,með miklu írafári. „Það hringdi karlmaður til yðar, frú. Hann kvaðst heita Saville Cross kafteinn — og ég átti að biðja yður um að hringja hann upp. Hérna er símanúmerið hans“.. Hann leit forvitnislega á hana þvi að hann vissi, hvernig öllu var varið. Margaret stóð grafkyrr og dró ekki andann litla stund. Þrjú löng ár höfðu .iðið atburðalaus og nú virtist sem allt ætlaði að gerast á einni svipstundu. Sennilega lék Leon tveim skjöldum; hún gæti losn að við hann — og Saville, sá eini, sem hún hafði nokkru sinni elskað. var kominn aftúr. Og hún hafði alltaf vilað, að ef HEIMIIÍJSRITIÐ 5

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.