Heimilisritið - 01.08.1943, Síða 19

Heimilisritið - 01.08.1943, Síða 19
„Auðvitað er hún í klúbbnum, og hún er ekkert lamb að leika sér við. Hún vann mörg verð- iaun þegar hún var í skóla“. „Jæja! Hún getur þá kannske eitthvað í tennis“. . „Já, það máttu reiða þig á. — En við Anne Brown eigum að leika saman — og þú skalt sanna til, að okkur sigrið þið ekki — Anne Brown og Goggy .... það er nú múr sem enginn brýtur“. „Er þetta nú ekki heldur mik- ið sjálfstraust?“ sagði Hislop brosandi. „Nei, taktu bara eftir“. UM kvöldið rakst Hfslop á Peggy Angus.. „Hafið þér heyrt fréttir dags- ins? Við eigum að leika saman á mótinu“. „Það er alveg afbragð“, sagði hún kaldhæðnislega. „Mér er sagt að þér hafið unn- ið verðlaun í æsku. Var það á barnaleikvelli ?“ „Nei“, svaraði hún „það var þegar ég var í vöggu!“ Hann gat varla varist brosi. Hin óbilandi gamansemi hennar var óneitanlega smitandi — og ekki varð heldur um það deilt, að falleg var hún. Hann varð óvænt og ofsalega gripinn af yndisþokka hennar — hann fór hjá sér og tautaði: „Já, já . . . . í þ^þta skipti er það alvara. Nú þarf á hugrekki og þrótti að halda .... og ef slíkt er til í yður — þá sýnið það!“ Án þess að bíða eftir svari kinnkaði hann kolli og gekk burt. AU hittust eklci aftur fyrr en mótið hófst. Keppnin byrjaði klukkan sex. Þó að Hislop gerði sér ekki mikl- ar vonir um leik Angus, þrátt fyrir hrós Goggys, þá átti þeim varla að verða skotaskuld úr því, að sigra fyrstu mótleikarana — Tom Douglas og Mary Sco.tt, sem voru bæði lítt æfð. Þegar klukk- una vantaði fimm mínútur í sex fór Hislop að verða órólegur, en þá kom Peggy Angus loks. Hún var i snotrum tenniskjól, sem fór henni ágætlega. Hislop heilsaði henni með þess- um durgslegu orðum: „Of seint eins og venjulega“. Hún leit snögglega á hann. „Klukkan er ekki orðin sex“. Það var líkast því, sem þessi síðasta ókurteisi hans hefði kom- ið henni úr jafnvægi. Hún var föl og fálát, hann sá eftir að hafa verið svona strákslegur og vissi, að sér bæri skylda til að biðjast afsökunar, en kom sér þó ekki að því. Nú fyrst varð honum ljóst, hversu mjög hann hafði þráð þessa stund, þegar þau væru samherjar .... en vitundin um það gerði honum gramt í geði. Leikurinn hófst — og frá sama augnabliki sýndi hún það svart á hvítu, hve prýðilegur tennis- HEIMILISRITIÐ 17

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.