Heimilisritið - 01.08.1943, Blaðsíða 19
„Auðvitað er hún í klúbbnum,
og hún er ekkert lamb að leika
sér við. Hún vann mörg verð-
iaun þegar hún var í skóla“.
„Jæja! Hún getur þá kannske
eitthvað í tennis“. .
„Já, það máttu reiða þig á.
— En við Anne Brown eigum
að leika saman — og þú skalt
sanna til, að okkur sigrið þið
ekki — Anne Brown og Goggy
.... það er nú múr sem enginn
brýtur“.
„Er þetta nú ekki heldur mik-
ið sjálfstraust?“ sagði Hislop
brosandi.
„Nei, taktu bara eftir“.
UM kvöldið rakst Hfslop á
Peggy Angus..
„Hafið þér heyrt fréttir dags-
ins? Við eigum að leika saman á
mótinu“.
„Það er alveg afbragð“, sagði
hún kaldhæðnislega.
„Mér er sagt að þér hafið unn-
ið verðlaun í æsku. Var það á
barnaleikvelli ?“
„Nei“, svaraði hún „það var
þegar ég var í vöggu!“
Hann gat varla varist brosi.
Hin óbilandi gamansemi hennar
var óneitanlega smitandi — og
ekki varð heldur um það deilt,
að falleg var hún. Hann varð
óvænt og ofsalega gripinn af
yndisþokka hennar — hann fór
hjá sér og tautaði:
„Já, já . . . . í þ^þta skipti er
það alvara. Nú þarf á hugrekki
og þrótti að halda .... og ef
slíkt er til í yður — þá sýnið
það!“
Án þess að bíða eftir svari
kinnkaði hann kolli og gekk burt.
AU hittust eklci aftur fyrr
en mótið hófst.
Keppnin byrjaði klukkan sex.
Þó að Hislop gerði sér ekki mikl-
ar vonir um leik Angus, þrátt
fyrir hrós Goggys, þá átti þeim
varla að verða skotaskuld úr því,
að sigra fyrstu mótleikarana —
Tom Douglas og Mary Sco.tt, sem
voru bæði lítt æfð. Þegar klukk-
una vantaði fimm mínútur í sex
fór Hislop að verða órólegur, en
þá kom Peggy Angus loks. Hún
var i snotrum tenniskjól, sem fór
henni ágætlega.
Hislop heilsaði henni með þess-
um durgslegu orðum:
„Of seint eins og venjulega“.
Hún leit snögglega á hann.
„Klukkan er ekki orðin sex“.
Það var líkast því, sem þessi
síðasta ókurteisi hans hefði kom-
ið henni úr jafnvægi. Hún var
föl og fálát, hann sá eftir að
hafa verið svona strákslegur og
vissi, að sér bæri skylda til að
biðjast afsökunar, en kom sér
þó ekki að því. Nú fyrst varð
honum ljóst, hversu mjög hann
hafði þráð þessa stund, þegar þau
væru samherjar .... en vitundin
um það gerði honum gramt í
geði.
Leikurinn hófst — og frá sama
augnabliki sýndi hún það svart
á hvítu, hve prýðilegur tennis-
HEIMILISRITIÐ
17