Heimilisritið - 01.08.1943, Síða 22

Heimilisritið - 01.08.1943, Síða 22
af því að hann hafði gefið í skyn að hann efaðist um hugrekki henn ar og þrautseigju ....... og hún hafði leikið þennan erfiða leik með skaðbrennda hönd. Auðvitað hlaut hún að fyrirlíta hann! Og vissulega hafði hún ætl- að sér að auðmýkja hann .... og tekist það! Hann hafði óstjórn- lega löngun til þess að hlaupa eins og fætur toguðu í klúbbinn og biðja hana um fyrirgefningu. En .... það var alveg ógerning- ur! Hún myndi sennilega ekki einu sinni hlusta á það, sem hann ætlaði að segja henni. En hann vissi, að áður en langt um liði myndi hann hitta hana aftur .... og honum varð l]óst að frá því hann fyrst sá Peggy Angus hafði harn elskað hana. Skopsögur um Fordbílinn Hver lúxusbíllinn á eftir'öðrum ók upp að gullna hliðinu, en Sankti Pétur hleypti engum bíleigendanna inn í Paradís. Loksins kom maður í gömlum Fordbíl. Þá sagði Sankti Pét ur: „Farðu bara inn góði maður. Þú hefur átt við nóga erfiðleika að stríða á jörðinni, af völdum þessa bíls“. Svona voru sögurnar hérna áður fyrr um Fordbílinn, en þær hindruðu þó ekki sívaxandi vinsældir hans. Jafnframt spreyttu gárungarnir sig á því að finna uppnefni á þennan ódýra ameríska b;l. Hann var nefnd- ur negrahjólhestur, sardínudós, pípuhattur á hjólum, útibaðker o. s. frv. Blað nokkuð í Ameríku kom með þá tillögu, að i stað þess að lífláta stórglæpamennina í rafmagnsstóln- um, skyldu þeir dæmdir til þess að reyna að snúa Fordbíl í gang. Tillag- an byggist á því, að það var hin versta þrælavinna að koma fvrsta FordbHnum í gang. Til þess þurfti krafta í kögglum og vöðvamikinn handlegg og ekki síður mikla þraut- seigju. Annað Amerískt blað skýrði frá asna og Fordbíl, sem áttu tal sam- an. „Hvað ertu eiginlega?“ spurði asn- inn. „Ég er bíll“, svaraði Fordinn. Asninn brosti í kampinn og sagði: „Já, einmitt! Þá er ég líka hest- ur!“ Það er broddur í þessari sögu. Hér er að lokum saga, sem mun vera dönsk að uppruna. Maður nokkur var að ganga fra bílnum sínum, frostkaldan vetrardag og breiddi teppi yfir vatnskassann til þess að verja hann frostinu. ,Þá veit hann ekki fyrri til en smástrák- ur stendur við hlið hans og segir storkandi: „Þú þarft ekki að breiða teppi yfir bílinn. Ég er búinn að sjá, að það er bara Ford“. 20 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.