Heimilisritið - 01.08.1943, Síða 27

Heimilisritið - 01.08.1943, Síða 27
ég sendi vörur svo nokkru nemi yf- ir til New York. Það eru einkum knipplingar frá Mecheln og Valenci- ennes. £>að er góður markaður fyrir slíka vöru i Ameríku. Fyrir nokkr- um mánuðum reyndi Bishop að kaupa mig. En ég vil ekki vinna hja honum né nokkrum öðrum. Og nú er hann að reyna að kveða mig í kútinn. Annars verzlar hann alls ekki með slíkar vörur. En til þess eingöngu, að ég geti ekki grætt á mínum vörum hefur hann keypt allt sem hann hefur komizt yfir af knipplingum og öðrum vörutegund- um, sem hann veit, að ég er að senda og ætlar að selja þær með engum hagnaði eða tapi í New York, til þess að ég sé útilokaður frá sam- keppninni. Vörur hans eru með þessu skipi. Og það er útlit fyrir að „Mauretania“ komist í tækan tíma i höfn, en ef. . „Ef, hvað?“ „Já, ég er búinn að segja yður, að þetta eru fyrstu stóru viðskiptin, sem ég hef ætlað mér að gera. En ef Bishop hefði ekki sett fyrir mig fótinn, þá — ja, þá veit ég ekki nema að ég hefði verið eins áleitinn við yður og Budger, Wilson, og hvað þeir nú heita allir. En eins og nú standa sakir, þá. . .“ Klukkan var orðin margt, og þau voru ein á þilfarinu. „Eins og nú standa sakir, megið þér kyssa mig ef yður langar til“. „N. . ..?“ „Eftir hverju eruð þér að bíða — rnaður?" \ TÆStA morgun var yndislegt veð- ur. „Mauritania“ hafði farið með fullri ferð alla nóttina; það fór varla hjá þvi, að skipið kæmist í höfn fyrir hádegi, í síðasta lagi kortér fyrir tólf. Bob Lee var svo að segja orðinn gjaldþrota — en í bezta ♦ skapi af gjaldþrota manni að vera. Hann mætti Dorothy Miller á efsta þilfarinu. Hún var í fylgd með auðugum spjátrungi, Hushley að nafni. Bob gekk til þeirra, til þess að gefa Dorothy tækifæri til að losna við þennan leiðinlega náunga. „Góðan daginn, fröken Dorothy", sagði hann og brosti sínu fegursta brosi. Hún starði á hann undrandi og afundin. „Nú, eruð það þér, Lee?“ Bob vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið. Var þetta sama, töfrandi stúlkan, sem hafði verið draumadís- in hans alla nóttina? Hún leit út á hafið og sagði: „Eg man reyndar ekki e'ftir því, að ég hafi leyft yður að kalla mig skírnarnafni mínu. — Já, vel a minnst, herra Hushley, þér ætluðuð að sýna mér eitthvað viðvíkjandi merkjakerfinu. Eigum við að koma?“ Með kátlega grobbnum hreyfing- um bauð hann henni arminn og þau gengu i burtu án þess að virða Bob frekar viðlits. Bob gekk agndofa af undrun ofan á næsta þilfar og settist í legustól til þess að athuga málið, á meðan iðandi öldurnar spegluðust í hvít- máluðu þilfarsloftinu. HEIMILISRITIÐ 25

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.