Heimilisritið - 01.08.1943, Síða 33

Heimilisritið - 01.08.1943, Síða 33
um. Kannske tekst okkur að skjóta eitt eða tvö, áður en við förum heim í kvöld“. ..Stúlkan hafði setið ólundarleg og þögul allan morguninn. Joe bjóst við að það væri af því, að hún væri orð- in syfjuð og leið að sitja svona alla nóttina. Hann vissi því ekki hvaðan á sig stóð veðrið, þegar hún snéri sér að honum og sagði gremjulega: ,.Þú með allar þínar útiíþróttir! Knattspyrnu! Dýraveiðar! Þú gerir út af við mig! Bara af því að ég varð að hjálpa pabba og kunningj- um hans einu sinni á golfvellinum, hugsar þú að ég sé einhver „sport- idjót“, eins og þú! Þú dregur mann með þér, sumar jafnt sem vetur, hingað og þangað. sem þig langar, þegar ég á ekki aðra ósk heitari en að vera heima í friði og ró!“ Hjn hnussaði og bætti svo við: „Komau mér heim. Þar ætla ég að vera í allan vetur og ég vil ekki sjá þig og þitt útisport“. IV/IAÐURINN á brúnu fötunum 1 þagnaði og leit hugsandi í bragði ofan í tómt glasið sitt. „Já, haltu áfram, ljúktu við sög- una!“ sagði maðurinn í gráa frakk- anum. „Ég gen ráð fyrir að þau hafi loks komist að raun um, hversu vel þau áttu saman. og gengið í það heilaga, ha?“ „Gifst? Nei, nei og aftur nei! Hafði hún kannske ekki slegið ry%i í augu honum og látist vera allt önnur en hún var í raun og veru, hvorki meira né minna en í hálft ár? Þóttist hún ekki vera útiíþróttta- kona, án þess að vera það, ha? Joe er of skynsamur til þess að kvæn- ast svo undirförlum kvenmanni! — Hæ, Jack! tvo til“ Maðurinn í gráa frakkanum kall- aði: „Hafðu þá fjóra, Jack“. Sjaljapin langaði í konjak Einu sinni var Sjaljapin í hófi hjá lækni nokkrum. Hann bað lækninn um að gefa sér eit-t glas af konjaki. Læknirinn hik- aði, því að hann vissi að Sjalja- pin var magaveikur og þoldi ekki að smakka vín. „Það er alveg óhætt“, sagði söngvarinn. Ég er svo óupplagð- ur. Eitt glas af konjaki gerir mig að öðrum manni“. Læknirinn lét undan og Sjalja- pin varð hinn glaðasti. Hann danzaði, sagði skopsögur og daðr- aðí við stúlkumar. Þegar hann hafði fjörgað gestina með. glað- værð sinni snéri hann sér að lækninum og sagði: „Þér sjáið það, að eitt lítið konjaksglas hefur gert mig að öðmm manni. Viðurkennið það að ég er orðinn allt annar mað- ur“. „Já, það eruð þér sannarlega*!, svaraði læknirinn. „Ágætt“, sagði Sjaljapin. „Nú óskar þessi nýi maður líka eftir einu konjaksglasi". HEIMILISRITIÐ 31

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.