Heimilisritið - 01.08.1943, Page 35
J
.. . hugsanir d meðan kysst er
UNDIRFÖRLA KONAN:
! Skelfing er þetta leiðinlegt!
Ætli að hann fari nú ekki að
segja mér, hvað hann elski mig
heitt og biðji mig um að skilja
við Adrian! Hver veit nema ég
geri það. Adrian er svo hræði-
lega daufur — ég verð vitlaus ef
ég geri ekki eitthvað. En ef ég
skil við hann, er verst, að Micha-
el verður svo þreytandi eigin-
gjam og vill að ég giftist sér.
Michael? Nei, þá heldur Alan.
Eða er það ekki? Ég vildi að
Janice muldraði ekki svona, þeg-
ar hún kynnir fólk. Guð! Af
hverju hættir hann ekki? Hann
tekur allan varalitinn af mér.
Þó að ég færi nú að skilja við
Adrian og tæki saman við hann,
þá sagði Janice, að hann ynni
sér ekki nema skitnar tuttugu
þúsund krónur á ári, og ég get
ómögulega lifað af því ..
ÖSTÖÐUGLYNDA KONAN:
Kápa þrettán pund, hattur
þrjú pund, það gera fimmtán
pund. Svo þarf ég að fá mér skó
í sama lit, og í gær bauð Andrew
mér í eftirmiðdagskaffi, í dag,
held ég. Nei, það var á morgun.
Eða kannske það hafi átt að vera
í gær? Nei, þrettán og þrír eru
sextán. Af hverju skyldi Hitler
ekki vera giftur. Ég er viss um að
það er della, sem Ann sagði mér
um hann. Hann er svo ofsafeng-
inn á öllum öðrum sviðum ....
TAUGAÖSTYRKA KONAN:
Ég þori ekki að hugsa .... Ég
þori ekki að anda .... Ö, hvers
vegna er ég ekki hamingjusöm
í faðmi Tims? Mikið slær hjart-
að í mér ótt. Bara að ég mættí
deyja .... deyja! Þá gæti ég
svifið á öldum úthafsins og látið
vatnið leika um sál mína. Elsku
góði Jan .... það sem hann skrif-
aði mér .... Hann skildi allt
svo vel .... Ó, að ég gæti farið
til hans núna og sagt honum til-
finningar mínar, en hann giftist
Pauline í gær ....
KONAN SEM KVELUR:
Ég ætla að láta hann halda
áfram svolítið enn, og svo ætla
ég að hrinda honum frá mér —
HEIMILISRITIÐ
33