Heimilisritið - 01.08.1943, Blaðsíða 36
fyrirvaralaust. Sá verður vondur.
En ég hlæ að honum. Þá reynir
hann að kyssa mig aftur, en ég
leyfi honum það ekki. Hann hrist-
ir mig þá líklega, en ég kalla
hann skepnu. Bara ef ég gæti
gert hann nógu reiðan, þá slær
hann mig kannske. Það væri al-
deilis uppsláttur! Ég hef aldrei
áður verið slegin af karlmanni.
Þá fæ ég nokkuð sem bragð er
að, til þess að segja Tessy frá
á morgun. Konan hans er samt
asni. Jæja, þá er að hefjast
handa ....
EIGINKONAN:
Nei, sko húsaskúmið þarna í
horninu — ég verð að segja
Emmu frá því, hún litur aldrei
upp fyrir sig. — Er bamið að
gráta? — Skyldi þetta ekki vera
heppilegur tími, til þess að segja
Jóni frá hattinum, sem ég sá í
gær? Hann þarf að fara að láta
klippa sig, en ég minni hann
ekki á það. Ætli að hann gleymi
nú ekki að panta hreingerningar-
mennina í dag? Fari það í heit-
asta. Það er komin rigning og
ullartreyjan mín er úti á snúru.
— Ég vissi að ég heyrði í bam-
inu.
BJARTSÝNISKONAN:
Hann elskar mig!
NAPOLEON GAT SOFIÐ
Napoleon sagði eitt sinn: ,,Ég
hef sérhvert áhugamál í huga mér
líkt og í skúffum. Ég dreg út
eina skúffuna og ýti annarri inn
eftir vild. Ég hef aldrei legið
andvaka vegna óvelkominna hugs-
ana. Ef ég ætla mér, loka ég
öllum skúffunum og sef. Ég hef
alitaf sofnað, þegar ég hef þarfn-
ast hvíldar, og venjulega eftir
eigin viid”.
Þetta minnir á sögu sem sögð
hefur verið af Napoleon í einni
af orrustum hans. Hann svaf
værum svefni í 'tjaldi sínu, á með-
aai byssumar þrumuðu.
Einn af hershöfðingjum hans
læddist inn í tjaldið og tók í
öxl keisarans og hvíslaði:
„Vaknið”.
Bonaparte opnaði annað aug-
að og sagði:
„Hvað viljið þér?”
Hershöfðinginn baðst afsökun-
ar á ónæðinu og skýrði svo óða-
mála frá þvi, að óvinirnir væru
að hefja óvænta árás á hægri
fylkingararm hersins.
„Fylkingararm okkar!” sagði
Napoleon. „Nú farið þér í tösk-
una mína og takið þér skjölin.
sem merkt eru „Árás á hægri
fylkingararm”. Farið þér eftir é-
ætluninni. Góða nótt”.
Svo snéri Na|poleon sér tii
veggjar og steinsofnaði á auga-
bragði.
34
HEIMILISRITIÐ