Heimilisritið - 01.08.1943, Page 38

Heimilisritið - 01.08.1943, Page 38
Andmæli — og þó . •. Það hefur verið talið óskyn- samlegt og jafnvel hættulegt að andmæla þjóðhöfðingja — þótt slíkt sé að vísu oft vandkvæðum bundið. Trúnaðarmaður Napole- ons, Ney márskálkur, kunni samt lagið á því að leiðbeina honum á réttan hátt. Dag nokkurn ræddu þeir um hina alkunnu rannsókn- arleiðangra Cooks. „Það var sorglegt!“ sagði Na- poleon, „að Cook skyldi adazt skömmu eftir fyrstu ferð sína“. „Já það má nú segja, yðar há- tign“, svaraði Ney. „En til allr- ar hamingju lét Cook það ekki á sig fá, heldur lagði af stað í næsta leiðangur sinn eins og ekk- ert hefði í skorist“. Sjóferðaævintýri Amerísk dansstúlka fór eitt sinn með skemmtiferðaskipi til Suðurlanda. Þegar hún fór að dansa aftur að hálfum mánuði liðnum, söfn- uðust starfssystur hennar um- herfis hana og spurðu frétta. „Þetta var hryllilega andstyggi- leg ferð“, sagði hún. „Káetan mín var niðri á neðsta dekki og við matborðið mitt voru sex upp- þornaðar og gamlar piparmeyjar. Það „var alveg aglegt“. Hinar dansstúlkurnar kinnkuðu kolli. Þær gátu vel skilið hana. „Já, en nú kemur það versta“, sagði hún. „Af einhverjum mis- skilningi átti káetufélagi minn að vera karlmaður. Hann kom inn þegar ég var nýháttuð fyrsta kvöldið". „Hvað ertu að segja?“ sögðu hinar. „Já, hvað finnst ykkur. En það sem var allra, allra verst — hann kunni ekki orð í ensku!“ Hafði drepið þá alla Narvaes hét spanskur einræð- isherra, sem uppi var á 19. öld. Þegar hann lá bánaleguna spurði skriftafaðirinn: Fyrirgefur yðar hátign óvinum sinum ? Hinn deyjandi maður svaraði: Hvaða óvinum ? Ég hef látið drepa þá alla. Norsk nútímafyndni I norskum kaupstað, heimsótti hálfbjáni nokkur bæjarstjórann, sem auðvitað var kvíslingur. „Mig langar bara til þess að spyrja yður einnar spumingar“, sagði hálfbjáninn. „Hvað ætlið þér að gera, ef Þjóðverjar tapa stríðinu ?“ Bæjarstjórinn brosti góðlátlega og sagði: „Þjóðverjar sigra á- reiðanlega“. „En ef þeir myndu nú tapa“, spurði hinn og horfði sljóum augum á höfðingjann. „O, ef svo færi, myndi ég setja upp hattinn og fara“. „Hatinn? Á hvað ætlið þér að setja hann?“ 36 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.