Heimilisritið - 01.08.1943, Side 40

Heimilisritið - 01.08.1943, Side 40
æ*Juðu þeir að bjóða henni kvöld- verð og svo á einhvem skemmti- legan stað. „Kannske ég komi”, sagði hún og varð al}t í einu full af áhuga. Þau kvöddust og hún spratt fram úr rúminu. En h,ún gat ekki hugsað skýrt. Það eina sem hún vissi með vissu, var, að fram- tíðin blasti \dð henni myrk og köld, og það eina sem hún mundi, var eitthvað vont, eitthvað ljótt og beiskí. Hún gekk inn í baðherbergið sitt og fékk sér brennandi heitt bað, svo heitt að svitinn draup af henni, og því næst lét hún rcnna ískalt vatn yfir sig. Hún klæddi sig í rökkrinu og kveikti fyrst Ijós, þegar hún fór að snyrta hár siti og andlit. Hana hrj'llti við, þegar hún, sá spegiimynd sína og virti litla stund fyrir sér þessa dapurlegu mynd — sljóa, veiklulega og ná- föla. - - Gordon kom einn og sótti hana. Gerda rétti honum hendina, og þegar hún snerti hönd hans varð hún undrandi og hugsaði með sjálfri sér: ,,Ég kem við mannlega hönd”. Hann tók utan um hana og kyssti hana, og hún endurgalt honum kossana. ,,Það væri óskandi að við þyrff- um ekki að vera með Williams“, sagði hann. Hún minntist þess, sem Jim hafði sagt, að veikgeðja og vilja- lítið fólk reyndi að drekkja sorg- um sínum með tilgangslausum kossum og blíðuhótum. — En hvaða hugmynd hafði hann um það? — Nú skynjaði. hún. að þessi maður var jafningi hennar — að hún hafði saman að sælda við sína líka .... Það fannst henni eitthvert vit í. Þau gengu saman eftir got- unni. Myrkrið var að skella á. og loftið var þungt og mollulegt. Þau náðu í bíl við næsta götu- hom og fóru í honum til veit- ingahússins, þar sem WiLliame beið þeirra. Vínföng voru á borðinu og maturinn kom strax Wilhams las upphátt úr dag- blaði um hnefaleikarana og sýndi þeim myndir af. þeim. „Líttu bara á”, sagði hann við hana. „Þetta er ekki ósvipað Jim, vini þínum”. Gerda horfði forvitnislega á myndina í dagblaðinu og hénjn virtist eins og Jim væri horfinn henni — þetta var eins og mar- tröð, sem var að fjara út. Hún leit aftur á myndina, en henni virtist minni sitt afneita honum. Hún reyndi að rifja upp þann sársauka, sem hún hafði orðið að’ þola, eins cg navn, sem yfir upp sár, til að komast að raun um. hvort það fyndi til sársauka. Og allt í einu mundi hún allt. Auðvitað gat það ekki verið Jim. Hann hafði aldrei æft hnefa- leika. En hinsvegar var maðurinn sem ljósmyndin var af, alls ekki mjög ólíkur Jim. 38 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.