Heimilisritið - 01.08.1943, Side 41

Heimilisritið - 01.08.1943, Side 41
Eins og af rælni sagði hún hikandi. „Hafið þið heyrt það, að mér hefur beinlínis verið kastað á- dyr? Jim giftist á mánudagimi var, ákaflega fínum kvenmanni. Hvað segið þið um það?” „Prýðilegt”, svaraði Gordon „Þú varst allt of góð handa hon- um. Eg hef heldur aldrei getað skilið, hvað þú sást í honum. Hvernig lízt þér á mig Gerda?” „Og mig?” sþurði Williams og bað um meira vín. Gerda hresstist af matnum og víninu. Þau sátu svo lengi yfir borðum, að þau urðu að taka leigubíl, til þess að komast á hnefaleikana í tæka tíð. En þrátt fyrir það var mótið byrjað þegar þau komu. Á leiðinni sungu þau hástöfum í bíinum. Þetta var yndislegt kvöld — kæfandi hiti -— óp og háreysti — og bílaljós- in blinduðu þau öðru hverju. Þeim var fylgt til sætis á góðum stað. Áhorfendasalurinn var eins og sjóðandi, kraum- andi nomaketill. — Það var æpt og argað, biaðrað og þvaðrað. Gerda sá mikinn fjölda svart- klæddra manna, sem sátu á næstu bekkjum og sveifluðu stöðugt samanbrotnum dagblöðum fyrir andliti sér, til þess að kæla sig. Gordon og Williams voru nákvæm lega eins og hinir — þeir reyktu. tuggðu tuggugúmmí — reyktu sígarettur og hölluðu sér með oln- bogana fram á lfné sér, til þess að sjá betur það sem gerðist. Gerda horfði með mestu á- nægju á hnefaleikarana, sem dönzuðu á auða svæðinu í miðj- um salnum. Þeir stukku fram og aftur — slógu og beygðu sig .... Hljómurinn af höggunum sem hittu, höfðu sérkennilegan hrynj- anda. Svo kom aðalbardaginn. Hnefa- leikarinn, sem líktist Jim í út- liti var í rauðum stuttbuxum. 1 þrjátíu skrefa fjarlægð mátti vel halda, að þetta væri Jim — sama fallega andlitið — sama breiða brjóstið — sömu vöðva- miklu handleggimir — þegar hann heilsaði áhorfendum og tók á móti fagnaðarópum þeirra. Gerda fannst það kjánalegt, að sjá Jim hneigja sig fyrir fólk- inu. Jim hóf strax mikla sókn og hitti hinn, sem var rauðhærður, á bringuna, þungt. högg, svo að söng í. — Áhrif vínsins mögnuð- ust. Hún fann að æðamar þrútn- uðu á gagnauganu. Hún brosti óþreyjufull og hugsaði: ,.Jim sigrar alltaf! Hann drep- ur — hann ber hann eins og harðfisk — hann getur það”. Hún virti hann fyrir sér án afláts. Kinnar hans vom rjóðar af kappi og hún gat ekki varist þeirri hugsim, hversu unaðslegt það hafði verið að strjúka þenn- an vanga. Eftir nokkia stund kom sá rauðhærði góðu höggi á höku Jims. — Jim hörfaði aftur á bak og hristi höfuðið eins og liaim vildi hrista höggið af sér. Gerda HEIMILISRITIÐ 39

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.