Heimilisritið - 01.08.1943, Blaðsíða 48

Heimilisritið - 01.08.1943, Blaðsíða 48
j Spurningar og svör i Óvænt barn. Ég er ógift og á von á barni. Ég elska barnsföðurinn, en ég veit að hann giftist mér aldrei. Hvað á ég að gera? Vinasnauð. Ég get ekkert ráð gefið þér annað en það, að treysta á guð og gæfuna. Auðvitað elurðu barn- ið, og faðirinn verður að greiða logboðið meðlag með þvi, eða meira ef hann er prúðmenni og hefur sæmileg auraráð. Þú mátt vita það, að hraust og vel skapað barn færir þér mikla ánægju og það er langt frá því, að þú þurf- ir að „örvæn,ta“ þó þú eignist barn utan hjónabands. Flasa. Hvað á ég að gera til þess að losna við flösu úr hárinu? Mörg ráð hafa verið reynd gegn flösunni, en fá eða engin dugað til fulls. I bókinni „Fegrun og snyrting“ er kennd mjög rót- tæk og erfið aðferð til þess að uppræta flösuna úr hörundi. Er mjög trúlegt að þeir, sem fara nákvæmlega eftir því sem þar er sagt, ráði niðurlögum þcssa algenga vágests. — Ég ætla þó eindregið að mæla með lyfi, sem rakarastofan i Eimskipafélagshús- inu hefur reynt og er mikið not- að. Mun það einungis fást þar. Því er nuddað vel inn í hársvörð- inn og skolað af með heitu vatni. Rakarastofan veitir almenningi höfuðböð þessi gegn sama gjaldi og algeng höfuðböð. Of þur húð. Eva min. Þegar ég er búin að þvo mér í framan finnst mér húðin strengjast og verða ójöfn. Það er sama þó að ég noti mild- ustu andlitssápur. Hef ég ekki of þurra húð ? Geturðu gefið mér einhverjar ráðleggingar ? Hanna. Þetta er einmitt óyggjandi merki um of þurra húð. Eftir andlitsþvottinn skaltu því bera á andlitið mjög feitt og nærandi krem, sem þurrka má af sér með baðmullarhnoðra. Kremið á að, innihalda lanolin (dýrafeiti) eða jurtafeiti og vera ljóst á lit, ógagnsætt og mjög mjúkt, þegar þú nuddar það á milli iingurgóm- anna. Slíkt hreinsunarkrem, sem er gott næturkrem, fæst í snyrti- vöruverzlunum, en það má bara helst ekki innihalda málmoliur, sem eru algengar i snyrtivörum. Hið sama ber einnig að forðast þegar valið er krem undir púður. Annars er þur húð miklu sjaldgæf ari á sumrin en veturna. — Það er sjálfsagt að leita húðsérfræð- ings ef húðin er mjög þur, ekki sízt ef hún er feit að sumri en þur að vetri. Eva Adanis. 46 HEIMILISRITIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Heimilisritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.