Heimilisritið - 01.08.1943, Síða 52
Gáfnapróf
1. Ef 3 kettir drepa 3 rottur
á 3 mínútum, hvað eru þá 100
kettir lengi að drepa 100 rottur?
2. Hvort er réttara að segja
sjð og fimm eru elléfu, eða sjö
og fimm er ellefu?
3. Maður nokkur átti seytján
kindur. Allar nema níu dóu. Hve
margar átti hann eftir?
4. I hvaða Mósesbók er sagt
frá því, þegar Abel drap Kain?
5. Við vitum að tólf einseyris-
frímerki eru í dúsíni. EJn hvað
eru mörg tveggjaaurafrímerki í
dúsíninu ?
6. Hvað er það sem dauðir
menn éta, og ef lifandi menn
ætu það yrði það þeim að bana?
• 7. Tveir Indíánar gengu saman.
Annar var stór, en hinn lí.t-
ill. Stóri Indíáninn var sonur
hins litla, en sá litli var ekki
faðir stóra Indíánans. Hvemig
gat það verið ?
8. Er leyfilegt, samkvæmt ís-
lenzkum lögum, að kvænast syst-
ur ekkju sinnar?
9. Taktu tvö epli frá þremur
eplum og hvað hefurðu þá mörg?
10. Visindamaðurinn, sem sagð-
i&t liafa fundið pening dagsett-
an 649 f. Krist, var annað hvort
að ljúga, eða að gera að gamni
sínu. Hvers vegna?
8X8 = 1000
Getið þér skrifað 8 sinnum 8
svo að útkoman verði 1000 ?
liús prófessorsins.
,,Eg ner oyggt mér hús”, sagði
prófessor Popoff, „sem er með
gluggum á öllum hliðum og samt
snúa allir gluggarnir í suður”.
Pmfessorinn var með fulb’
viti. Hveraig er þetta hægt?
Það virðist auðvelt en ....
Legðu eldspýtu yfir nöglina á
löngutöng og styð fingurgómum
visifingurs og baugfingurs ofan á
sinn hvorn enda eldspýtunnar. —
Reyndu svo að brjóta hana.
Veiztu það?
Hver er bezti kunningi og trún-
aðarmaður Barbara Stanwyck ?
Joan Crawford — Gary Cooper
— hárgreiðslukona hennar.
Svör á bls. 52.
50
HEIMILISRITIÐ