Heimilisritið - 01.08.1943, Side 57

Heimilisritið - 01.08.1943, Side 57
ir honum frá þér í neyðarvöm. En nú er bezt að ég fylgi þér heim, svo að þú getir látið þig dreyma um þær yndislegu stund- ir, sem við fáum að njöta saman eftir nokkrar vikur. Ég ætla ekki að eyða tímanum með því að svara þessu bréfi, sem ég fékk áðan, heldur ætla ég að fara beint til Brown og 'tala yfir hausamót- unum á honum“. ,,Gerðu honum ekki of gramt í geði“, sagði Jolette. „Hann er vís til alls“. „Já, alls nema þess, sem er hættulegt fyrir hann sjálfan. Og nú, . þegar þú ert ekki sá eini sem hann á við að etja, getur hann naumast gert nokkuð, sem ekki er mjög hættulegt fyrir hann sjálfan“. Jolette þagði. Hún óttaðist að Jim myndi álíta að hún bæri ekki nógu mikið traust til hans. En hún treysti honum vissulega mjög vel. Þó flaug ein hugsun í gegnum heila hennar, þegar þau gengu út. St. Georg hafði bar- izt við dreka og unnið sigur, en hefði hann einnig getað barizt við nöðru, sem faldist í grasinu og skreið á eftir honum til þess að bíta hann í hælinn? 16. kapítuli. EGAR Sir James Belden kom •til þes að heimsækja Brown, var frúin að spila bridge við vin- konur sínar, en Brown stóð yfir þeim og horfði á. Jim rétti óþrifalegum þjóni nafnspjaldið sitt og brosti með sjálfum sér við þá hugsun, hvem- ig Brown, þessum hugleysingja og baktjaidamakkara, yrði við, þegar hann sæi nafn hans.. Senni- lega kæmi honum þetta svar við bréfinu óþægilega á óvart. „Sir James Belden! Vill hann tala við þig ?“ hrópaði frú Brown upp yfir sig. Henni varð svo um þetta, að hún lét vinkonumar sjá á spilin sín. „Hvemig í ó- sköpunum ....?“ „Já, hann ætlar víst að spjalla við mig um dálítið atriði, sem ég verð honum aðstoðlegur við í kvikmynd sem á að fara að filma, skilurðu það?“ sagði Brown og leit til dyra. „Ég skrepp fram og tala við hann. Annars átti ég ekki von á honum fyrr en í kvöld. Sarah!“ sagði hann og snéri sér að svertingjakerlingu, „láttu manninn ekki bíða fram í for- stqfu. Vísaðu honum inn í borð- stofu og skilaðu til hans að ég komi rétt strax“ Elisu Brown og vinkonum henn- ar fanst ekkert við það að at- huga, þó að hann ætlaði að greiða sér og laga sig dálítið til, áður en hann færi á fund þessa mikla Englendings. Þess vegna var skiljanlegt, að hann færi út um dymar sem vissu út að eldhúsinu. En úr eldhúsinu var bakdyra- útgangurinn. Brown greip gamlan hatt sem hékk þar á snaga og gekk út á götu Stelpukjáninn hafði þrátt fyr- ir allt kjaftað öllu í Belden. Svo HEIMILISRITIÐ 55

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.